29/05/2026
Kæru félagar
„Ja, fussum svei!“ Nú verður Soffía ekki ánægð, því við höfum fengið hann Brynjar hennar til að stinga af í fyrramálið, frá huggulegheitum þeirra hjóna, til okkar á laugardagsfundinn. Ekki er víst að Anna K. mæti með honum, þó sé komin til landsins, né vitað um aðra fylgifiska - en Brynjar verður örugglega með „góða skapið!”
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík náði mikilvægum árangri í kosningunum og hefur nú aftur tryggt sér stjórnartaumanna í höfuðborginni með hjálp vina sinna, í Framsóknarflokknum og Viðreisn.
Félagið býður að því tilefni Brynjari Þór Níelssyni, borgarfulltrúa,
fyrrum formanni Lögmannafélagsins og Alþingismanni til margra ára,í heimsókn yfir til nágrannaborginnar, Kópavogs, til að ræða við félagsmenn og hvern sem vill hitta hann eða gleðjast með okkur yfir áfanganum; ræða sigurinn, hvernig honum var náð og hvað hann mun þýða.
Laugardagsfundurinn verður að venju kl.10:00 í fyrramálið í Hlíðarsmára 19 og boðið upp á kaffi og með því, brauð og annað bakelsi.