Hjálparsveit skáta í Kópavogi

Hjálparsveit skáta í Kópavogi Björgunarsveit sem sinnir útköllum þegar fólk eða verðmæti eru í hættu. Hægt er að leggja sveitinni lið með beinum hætti með millifærslu í banka eða heimabanka.

Hjálparsveit skáta í Kópavogi er björgunarsveit sem byggð er upp af sjálboðaliðum og sinnir björgunar, leitar og hjálparstarfsemi þegar mannslíf eða verðmæti eru í hættu. Við höldum námskeið og æfingar fyrir félaga sveitarinnar til að auka færni þeirra og öflum þeirra tækja og tóla sem nauðsynleg eru. Reikningsnúmer: 0322 - 26 - 445 Kennitala: 410271 0289.

Föstudaginn 29. maí sl. æfðu félagar Hjálparsveitar skáta í Kópavogi með flugdeild Landhelgisgæslunnar. Lagt var úr höfn...
02/06/2026

Föstudaginn 29. maí sl. æfðu félagar Hjálparsveitar skáta í Kópavogi með flugdeild Landhelgisgæslunnar. Lagt var úr höfn í Kópavogi síðdegis og fór æfingin fram á sjó við fínar aðstæður.

Á æfingunni voru framkvæmdar alls 11 hífingar úr sjó, þar sem æfð voru samskipti, samhæfing og verklag við björgunaraðgerðir úr lofti og af sjó.

Við þökkum Landhelgisgæslunni kærlega fyrir samstarfið og dýrmæta æfingu sem eykur færni og viðbúnað allra þátttakenda.

Þriðjudagskvöld eru vinnukvöld hjá HSSKÍ gær var sérstaklega fjölmennt vinnukvöld hjá okkur þegar um 40 félagar mættu á ...
20/05/2026

Þriðjudagskvöld eru vinnukvöld hjá HSSK

Í gær var sérstaklega fjölmennt vinnukvöld hjá okkur þegar um 40 félagar mættu á endurmenntun í fyrstu hjálp 👏 Það er dýrmætt að sjá þann kraft og áhuga sem býr í félagahópnum okkar.

Það var öryggis- og sjúkraráð sveitarinnar sem bauð upp á endurmenntunina og var tekin góð upprifjun í fyrstu hjálp.
Að auki voru allar sjúkratöskur sveitarinnar yfirfarnar og fengu félagar tækifæri til þess að handleika búnaðinn, kynna sér innihaldið betur og ræða notkun hans við mismunandi aðstæður.

Samhliða þessu var unnið í viðgerðum á bílum, verkefnum í bækistöð og ýmsu öðru sem þarf að sinna til að halda starfseminni gangandi.

Svona kvöld minna okkur á að öflugt sjálfboðaliðastarf Hjálparsveitar skáta í Kópavogi byggir á samheldni, þekkingu og dugnaði félaga 💪

Síðastliðna helgi æfði hamfarahópur sveitarinnar snjóflóðarústabjörgun á Ísafirði undir leiðsögn félaga sveitarinnar í s...
04/04/2026

Síðastliðna helgi æfði hamfarahópur sveitarinnar snjóflóðarústabjörgun á Ísafirði undir leiðsögn félaga sveitarinnar í samstarfi björgunarsveitina Tinda í Hnífsdal.
Samtals tóku 30 félagar HSSK þátt í æfingunni. Aðstæður í aðdraganda æfingarinnar voru mjög krefjandi bæði vegna snjóflóðahættu á vestfjörðum og veðurs. Farið var af stað í nokkrum hópum, frá miðvikudegi og fram á föstudag. Vegna ófærðar á leiðinni vestur þurftu sumir hópar að lengja för sína um rúmlega 100 km til þess að krækja fram hjá lokunum í Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og á Þröskuldum. Á Hólmavík fengu félagar inni hjá Björgunarsveitinni Dagrenningu. Voru fjölmargir vegfarendur aðstoðaðir í ófærðinni á leiðinni vestur.
Í heild tóku hátt í 60 manns og tveir snjóflóðaleitarhundar þátt í æfingunni og var helmingurinn frá einingum á norðanverðum vestfjörðum. Voru aðstæðurnar gríðarlega raunverulegar. Með í för var félagi HSSK nr. 170, Sigurður Ólafur Sigurðsson sem m.a. myndaði æfinguna sem var í undirbúningi í yfir hálft ár.

Hjálparsveit skáta í Kópavogi sinnti gæslu í Bláfjallagöngunni um helgina við krefjandi aðstæður, þar sem snjókoma og mi...
23/03/2026

Hjálparsveit skáta í Kópavogi sinnti gæslu í Bláfjallagöngunni um helgina við krefjandi aðstæður, þar sem snjókoma og misjafnt skyggni settu svip sinn á daginn. Sem betur fer komu engin alvarleg sjúkratengd verkefni upp, en gæslan reyndist engu að síður afar dýrmæt æfing.

Slíkar aðstæður gefa gott tækifæri til að þjálfa samskipti, skipulag og viðbragðsgetu, auk þess að efla reynslu í útiveru við alvöru vetraraðstæður. Einn bíll var aðstoðaður og dreginn úr festu.

Við erum þakklát fyrir tækifærið til að æfa okkur í raunverulegum aðstæðum og halda áfram að efla viðbragðsgetu sveitarinnar.

🎇🎇🎇LOKADAGUR FLUGELDASÖLUNNAR🎇🎇🎇Lokadagur flugeldasölunnar er í dag. Við verðum með opið í milli 15:00 og 20:00 á Bakkab...
06/01/2026

🎇🎇🎇LOKADAGUR FLUGELDASÖLUNNAR🎇🎇🎇

Lokadagur flugeldasölunnar er í dag. Við verðum með opið í milli 15:00 og 20:00 á Bakkabraut og Tónahvarfi.

🎇 Þrettándasala 🎇

Þrettándasalan er opin hjá okkur í Björgunarmiðstöðinni, Tónahvarfi 8.
💥 laugardaginn 3. janúar frá 13-19
💥 Sunnudaginn 4 .janúar frá 13-19
💥 þriðjudaginn 6. janúar frá 15-20

Bakkabraut
💥Laugardaginn 3.janúar frá 13-19
💥Sunnudaginn 4.janúar frá 13-19
💥Þriðjudaginn 6.janúar frá 15-20

🎇 Þrettándasala 🎇Þrettándasalan er opin hjá okkur í Björgunarmiðstöðinni, Tónahvarfi 8.💥 laugardaginn 3. janúar frá 13-1...
03/01/2026

🎇 Þrettándasala 🎇

Þrettándasalan er opin hjá okkur í Björgunarmiðstöðinni, Tónahvarfi 8.
💥 laugardaginn 3. janúar frá 13-19
💥 Sunnudaginn 4 .janúar frá 13-19
💥 þriðjudaginn 6. janúar frá 15-20

Bakkabraut
💥Laugardaginn 3.janúar frá 13-19
💥Sunnudaginn 4.janúar frá 13-19
💥Þriðjudaginn 6.janúar frá 15-20

Við hvetjum alla til að fara með flugeldarusl í þar til gerða gáma sem komið hefur verið fyrir á eftirfarandi stöðum víð...
01/01/2026

Við hvetjum alla til að fara með flugeldarusl í þar til gerða gáma sem komið hefur verið fyrir á eftirfarandi stöðum víðsvegar um Kópavog.

🌲 Kársnes: Við grenndargámastöð á Borgarholti
🌲 Digranes: Við grenndargámastöð við Íþróttahúsið Digranes
🌲 Smárahverfi: Við grenndargámastöð Kópavogsvelli
🌲 Linda- og Salahverfi: Í nágrenni við Salalaug
🌲 Kóra-, Þing- og Hvarfahverfi: Við grenndargámastöð Vallakór 8

Nú höfum við lokað sölustöðum okkar  🎉Við þökkum fyrir ómetanlegan stuðning á árinu og óskum Kópavogsbúum og landsmönnum...
31/12/2025

Nú höfum við lokað sölustöðum okkar 🎉

Við þökkum fyrir ómetanlegan stuðning á árinu og óskum Kópavogsbúum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs ❤

Þrettándasalan verður opin 6.janúar frá 15:00-20:00 í Björgunarmiðstöðinni, Tónahvarfi 8.

Myndin er af flugeldasýningu HSSK þann 29. desember.

Address

Bakkabraut 4
Kópavogur
200

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hjálparsveit skáta í Kópavogi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Hjálparsveit skáta í Kópavogi:

Shortcuts

Share