18/08/2026
Nú þegar nýtt skólaár er að hefjast er gaman að vekja athygli á nýju efni í námsefnisflórunni okkar 💜
Skrift 3 er framhald af Skrift 2b og er ætluð nemendum í 3.–4. bekk. Þar er unnið áfram með læsilega skrift og skriftarfimi, meðal annars með ritun samfellds texta þar sem réttritun og greinarmerkjasetning fléttast inn í þjálfunina.
Skrift 3 er þegar aðgengileg sem rafbók á mms.is og prentuð útgáfa er væntanleg innan skamms. ✏️
Next Up! 1–2–3 er nýtt enskuefni fyrir unglingastig. Rafbækurnar eru þegar aðgengilegar á mms.is og á allra næstu dögum bætast þar við kennsluleiðbeiningar og hljóðefni.
Prentaðar bækur Next Up! eru væntanlegar eftir nokkrar vikur en þangað til er hægt að hefjast handa með efnið í rafrænni útgáfu á læstu svæði kennara. 🇬🇧
👉 Skrift 3: https://mms.is/namsefni/skrift-3-rafbok
👉 Next Up!: https://bit.ly/next-up123