21/01/2026
Af hverju mótmælti Umbót breytingu á deiliskipulagi Dalshverfis?
Í fundargerð Umhverfis-og skipulagsráðs frá 16 janúar var samþykkt breyting á Deiluskipulagi, 2 áfanga sem gengur á græn og opin svæði. Þrátt fyrir að ferlið var formlega rétt tel ég rök meirihlutns ekki réttlæta slíka skerðingu. Græn svæði eiga að vera meðvitaður hluti af skipulagi Reykjanesbæjar ekki varasjóður sem gengið er á þegar þrýstingur skapast á uppbyggingu. Umbót g*t því ekki samþykkt þessa ákvörðun og lagði fram eftirfarandi bókun.
Umbót telur rétt að bregðast sérstaklega við mótbókun meirihluta Umhverfis- og skipulagsráðs vegna breytingar á deiliskipulagi Dalshverfis, annars áfanga.
Umbót hafnar þeirri fullyrðingu, sem sett er fram í mótbókuninni, að hér sé um réttlætanlegt eða tímabært undantekningartilvik að ræða vegna aukinnar eftirspurnar eftir einbýlis- og parhúsalóðum í kjölfar jarðhræringa í Grindavík. Jarðhræringar og eldgos þar, urðu fyrir um þremur árum og því stenst ekki að vísa nú, löngu síðar til þeirra sem rökstuðnings fyrir því að ganga á græn og opin svæði.
Hefði raunverulegur vilji staðið til að bregðast við þeirri stöðu með markvissum hætti, með úthlutun einbýlis- og parhúsalóða, hefði slíkt átt að gerast strax í upphafi. Þá hefði jafnframt verið eðlilegt að slíkar lóðir hefðu fyrst og fremst verið úthlutaðar íbúum Grindavíkur. Sú leið var ekki farin og því er ekki hægt að nota þessar aðstæður nú sem rök.
Umbót lagði þá leið til á sínum tíma, en sú leið náði ekki fram að ganga. Í framhaldinu var farin önnur leið, sem felur í sér skerðingu grænna og opinna svæða, sem Umbót getur ekki tekið undir.
Umbót telur jafnframt ekki fullnægjandi rök að engar athugasemdir hafi borist við auglýst deiliskipulag. Skortur á athugasemdum jafngildir ekki samþykki fyrir skerðingu grænna og opinna svæða, né leysir það skipulagsyfirvöld undan ábyrgð sinni á að fylgja eigin yfirlýstum markmiðum um vernd slíkra svæða.
Græn svæði í skipulagi Reykjanesbæjar eru ekki tilfallandi né sett inn sem varasjóður sem ganga megi á þegar þrýstingur skapast á uppbyggingu. Þau eru meðvitaður hluti af heildarsýn um búsetugæði, lýðheilsu og sjálfbæra þróun. Með þessari ákvörðun er verið að veikja þá grundvallarhugmynd skipulags að tryggja jafnvægi milli byggðar og opinna svæða, sem Umbót telur ranga og í ósamræmi við markmið skipulags. Við munum því ekki samþykkja þennan lið í fundargerðinni.
Margrét Þórarinsdóttir.