10/08/2026
Vekjum athygli á þessum breytingum sem verða á miðvikudaginn vegna Sólmyrkvans☀️🚒🚑🚓
ALMYRKVI Á SÓLU – 12. ÁGÚST | MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR
Miðvikudaginn 12. ágúst verður almyrkvi á sólu og búist er við miklum fjölda fólks á Reykjanesi.
🚔 Aukinn viðbúnaður
Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir, Brunavarnir Suðurnesja, Slökkvilið Grindavíkur og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verða með aukinn viðbúnað. Aðgerðastjórn verður virkjuð í Reykjanesbæ og þrjár vettvangsstjórnir starfræktar.
🏠 Almyrkvinn sést vel úr þéttbýli
Það er ekki nauðsynlegt að fara langt til að njóta almyrkvans. Hann sést vel frá heimilum í þéttbýli á Reykjanesi.
Sveitarfélögin hafa komið upp safnstöðum á völdum stöðum. Upplýsingar um safnstaði, viðburði og bílastæði má finna á heimasíðum sveitarfélaganna og á visitreykjanes.is.
🚶♀️🚲 Við hvetjum fólk til að ganga eða hjóla á safnstaði innan þéttbýlis þar sem því verður við komið.
🚗 Ef þú ætlar að ferðast
• Farðu snemma af stað.
• Gerðu ráð fyrir miklum umferðartöfum og lengri ferðatíma.
• Vertu viðbúin/viðbúinn því að þurfa að dvelja lengur en áætlað var.
• Hafðu mat og drykk meðferðis.
• Ef þú þarft reglulega lyfjagjöf, hafðu næg lyf meðferðis.
⛔ EKKI leggja á vegum eða vegöxlum
Ökutæki sem lagt er þannig að það hindri umferð eða skapi hættu verður fjarlægt á kostnað eiganda.
🚧 Sérstakar umferðartakmarkanir
• Garðskagavegur/Stafnesvegur (45): Einstefna frá Nesvegi/Hafnarvegi til norðurs í átt að Sandgerði.
• Vatnsleysustrandarvegur (420): Einstefna frá Vogum til austurs í átt að Kúagerði.
• Bláalónsvegur: Lokað fyrir umferð.
• Skagabraut að Garðskagavita: Einstefna að Garðskaga og til baka um Útgarðsveg að golfskálanum í Sandgerði.
✈️ Keflavíkurflugvöllur
Farþegar sem eiga flug frá Keflavíkurflugvelli eru hvattir til að mæta tímanlega og gera ráð fyrir töfum.
Þeir sem koma til landsins eru beðnir um að sýna þolinmæði vegna mögulegs umferðarálags á Reykjanesi.
📱 GSM-samband
Mikið álag getur orðið á farsímakerfinu, sérstaklega utan þéttbýlis.
🆘 NEYÐARNÚMER: 112
Ef ekki næst í 112 má reyna varanúmer Neyðarlínunnar: 599 0112.
👓 MUNIÐ EFTIR SÓLMYRKVAGLERAUGUM
Notið ávallt viðurkennd sólmyrkvagleraugu þegar horft er beint til sólar. Venjuleg sólgleraugu veita ekki nægilega vörn.
🌑 Skipuleggjum daginn vel – förum varlega og komum heil heim.
Nánari upplýsingar um safnstaði, bílastæði, viðburði og skipulag má finna á:
visitreykjanes.is
solmyrkvi2026.is