Eldur Ísidór

Eldur Ísidór 43 ára, giftur og með brennandi áhuga á málefnum líðandi stundar.

Genspect ætlar að frumsýna allt erindið mitt í Lissabon kl 20 í kvöld á YouTube. Það verður hægt að horfa á það og ræða ...
06/11/2024

Genspect ætlar að frumsýna allt erindið mitt í Lissabon kl 20 í kvöld á YouTube.

Það verður hægt að horfa á það og ræða málin í beinni í kommentakerfinu undir myndbandinu.

https://youtu.be/pGKBmtZUIJk?si=WLE4F0UgDBAwcYl3

Eldur Smári Kristinsson is a co-founder of the Le***an and Gay Alliance in Iceland, which is set to become the Icelandic Rainbow Council. He is a prominent g...

Genspect ætlar að frumsýna allt erindið mitt í Lissabon kl 20 í kvöld á YouTube. Það verður hægt að horfa á það og ræða ...
06/11/2024

Genspect ætlar að frumsýna allt erindið mitt í Lissabon kl 20 í kvöld á YouTube.

Það verður hægt að horfa á það og ræða málin í beinni í kommentakerfinu undir myndbandinu.

Eldur Smári Kristinsson is a co-founder of the Le***an and Gay Alliance in Iceland, which is set to become the Icelandic Rainbow Council. He is a prominent g...

06/11/2024

Álitsgjafarnir og sérfræðingar ríkisreknu heilaþvottastöðvanna láta eins og HEIMSENDIR sé í nánd vegna kjörs Trump í nótt og sumir stjórnmálaleiðtogar í geðshræringu komnir með einhverja brókarsótt og vilja stökkva eins hratt upp í bólið hjá Evrópusambandinu sem er löngu komið með geðveilu vegna langvarandi sýfílissýkingar.
Er gagnrýnin hugsun algjörlega á undanhaldi?

Spyr sá sem ekki veit....

05/11/2024

Fræðsluskylda í stað skólaskyldu

Við viljum öll að börnin okkar læri að hugsa sjálfstætt og geti nýtt hæfileika sína og áhugasvið til að blómstra. Við hljótum að óska þess að þau siðferðislegu gildi sem þau fá í veganesti muni leiða þau áfram til blessunar og hamingju. Grunnurinn að góðu samfélagi eru góð gildi. Samfélag er ekki frjálst ef það er undirlagt af glæpum, spillingu eða aftengingu við gott siðgæði. Við viljum búa ungmennin okkar undir það gríðarlega verk að stjórna samfélaginu í framtíðinni og þá er eins gott að við höfum gert vel við þau, svo þau sjái vel um okkur í framtíðinni.

Við viljum gefa börnunum okkar heilbrigt veganesti svo þau geti skapað gott og sanngjarnt samfélag í framtíðinni. Samfélag þar sem frelsi og ábyrgð séu hornsteinar alls.

Þess vegna vill Lýðræðisflokkurinn setja eftirfarandi í öndvegi í menntamálum leik-og grunnskóla:

1. Íslenska er tungumál leik-og grunnskóla. Bæði starfsmanna og barna.

Tryggja verður þeim starfsmönnum leikskóla er hafa annað tungumál að móðurmáli kennslu í íslensku til að ná amk lágmarksfærni til starfans.

Íslenskukennsla barna og foreldra af erlendum uppruna er sett í algjöran forgang við komu til landsins.

2. Samvinna heimila og skóla verði byggð á traustum grunni jákvæðra gilda s.s. ábyrgð, umhyggju og sáttfýsi. Mikilvægt verði að gildi lýðræðis séu í öndvegi í öllum samskiptum milli heimila, skóla og skólaheilbrigðisþjónustu. Umburðarlyndi sé haft að leiðarljósi og að frelsi til mismunandi skoðana, viðhorfa og vinnubragða sé virt. Helstu gildi lýðræðislegs samstarfs eru: Jafngildi allra manna, virðing fyrir einstaklingum og samábyrgð.

3. Fræðsluskylda tekin upp í stað skólaskyldu.

Foreldrar njóti frelsis í ákvarðanatöku er kemur að grunnmenntun barna. Hvatt er til fjölbreyttara rekstrarforms skóla og að foreldrum/forsjáraðilum verði gert kleift í krafti eigin þekkingar eða í samvinnu við aðra að sjá um fræðslu barna skv. aðalnámskrá leik-og grunnskóla. Fjármagn fylgi hverju barni óháð rekstrarformi skólans á jafnræðisgrundvelli. Ábyrgðaraðili rekstrareiningar sé íslenskur ríkisborgari.

4. Reglubundið eftirlit með lestrarkunnáttu, lesskilningi og stærðfræðigetu barna og ungmenna með endurupptöku á samræmdum prófum.

5. Ástundun í litakóðum og einkunnir í bókstöfum lagðar niður. Sama gildir staðbundin punktakerfi. Einkunnaskalinn frá 1-10 er auðskiljanlegur og einfaldur í notkun.

6. Skráning persónuupplýsinga barna í Mentor verði hætt.

7. Umdeildar kenningar úr gremjufræðum félagsvísindadeilda háskólanna eins og t.d. hinsegin fræði, (e. Q***r Theory) Critical Theory og Critical Race Theory séu ekki kennd börnum sem um staðreyndir séu að ræða.

8. Hollustuhættir í skólastarfi

Næringarrík fæða – hreyfing og snjalltækjalaus skóli. Nemendur efli líkamlegan þroska sinn, heilbrigði og þrek. Nemendur tileinki sér mikilvægi reglubundinnar hreyfingar sem hentar þeim. Nemendur efli líkamsvitund sína og hæfileika til tjáningar og sköpunar. Grunnskólar séu snjalltækjalausir vinnustaðir og unnið sé meira markvisst í þágu félagsfærni og gegn einmanaleika, depurð og kvíða.

9. Horfið sé frá „skóla án aðgreiningar“ og sérkennslufræði tekin upp að nýju.

Sérhverju barni sé tryggð skólaganga þar sem athyglinni er beint að hæfileikum og styrkleikum þess.

10. Raunveruleikatengsl barna stórefld

Eftir 15 ára reynslu áhrifa samfélagsmiðla á börn og ungmenni er það augljóst að brýna þarf fyrir börnum að temja sér eðlislægt skynbragð á raunveruleikann með tilkomu svokallaðrar gervigreindar.

11. Pólitískar alþjóðastofnanir ekki hlutaðeigandi í íslensku skólastarfi

Aðalnámskrá leik-og grunnskóla sé ætíð í höndum íslenskra fagaðila sem starfa sjálfstætt og án skuldbindinga við erlend samtök og/stofnanir.

Íslenskt samfélag er á krossgötum. Við getum ekki sætt okkur við samfélag þar sem helmingur drengja og þriðjungur stúlkna geta ekki lesið sér til gagns. Við getum ekki unað við samfélag þar sem börnin okkar hafa aldrei verið eins vansæl.

Við verðum að velta ábyrgðinni á fræðslu barna og ungmenna á okkur öll sameiginlega.

Ef ekki, þá heldur áfram að molna úr stoðum lýðræðissamfélagsins og lífskjörin okkar hrörna í takt.

31/10/2024

Það er mér sönn ánægja að kynna til leiks L lista Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi:

1. Eldur Smári Kristinsson
2. Ágústa Árnadóttir
3. Sigurður Halldór Bjarnason
4. Ingibergur Valgarðsson
5. Nikita Kozlov
6. Jón Hafþór Marteinsson
7. Stefanía Arna Marinósdóttir
8. Fanney Einarsdóttir
9. Fannar Eyfjörð Skjaldarson
10. Sigursteinn Snorrason
11. Sindri Már Erlingsson
12. Jóel Duranona
13. Guðrún Björnsdóttir
14. Guðmundur Otri Sigurðsson

Venjulegt fólk á þing - umbætur strax!
Hugsum stórt - XL

Ert þú búin(n) að splæsa í eina rafræna undirskrift til þess að mæla með Lýðræðisflokknum?
27/10/2024

Ert þú búin(n) að splæsa í eina rafræna undirskrift til þess að mæla með Lýðræðisflokknum?

Umsóknakerfi bætir opinbera þjónustu með því að auðvelda notendum sjálfsafgreiðslu. Stofnanir geta þá tekið á móti umsóknum og eyðublöðum með stafrænum hætti og gefið um leið skýrari upplýsingar um framgang og niðurstöðu.

27/10/2024

Vaxandi stríðsátök, en með íslenskum vopnum?

Í fyrrakvöld fengum við fregnir af því að Ísrael hafi svarað fyrir árás Írana með því að ráðast á Íran, Írak og Sýrland.

Þessi sívaxandi spenna og átök í heiminum eru mér – og eflaust mörgum öðrum – mikið áhyggjuefni og getur valdið fólki bæði kvíða og angist.

Í Covid-19 tímabilinu horfðu skattgreiðendur um gjörvöll Vesturlönd upp á eina stærstu (ef ekki stærstu) eignatilfærslu á fjármunum sínum í hendur einkaaðila. Þetta hefur valdið því að fjárhagur Vesturlanda er í molum og við erum að horfa upp á afleiðingarnar af því núna. Þessi aukna spenna og hernaðarbrölt er svar atvinnustjórnmálamanna við bágu efnahagsástandi. Lausnin sem stendur til að bjóða okkur upp á er einfaldlega aukið hernaðarbrölt, því hergagnaiðnaðurinn og stríðsrekstur á að redda efnahagsástandinu og starfsframa stjórnmálamannanna.

Í fjárlagafrumvarpinu sem liggur nú fyrir Alþingi eru sjö milljarðar króna eyrnamerktir hernaðarbrölti stærri ríkja, þvert á andstöðu þjóðarinnar í þeim efnum.

Það er þyngra en tárum taki að sjá rótgrónu íslensku stjórnmálaflokkana leggja blessun sína slíkar ráðstafanir með íslenskar skattakrónur.

Í Lýðræðisflokknum er stefna okkar skýr. Ísland er friðarþjóð og vopnakaup af þessu tagi er þvert á siðferðisleg gildi íslensku þjóðarinnar.

Á ferð minni um Skagafjörð um helgina hefur þessi útgjaldarliður borist í tal í samræðum mínum við sveitunga hér. Það er ekki einn einasti maður sem ég hef hitt sem kærir sig um þá tilhugsun að sprengjubrot, kostuð af íslenskum skattgreiðendum, munu sundurtæta líkama karla í blóma lífsins, eða að byssukúlur, greiddar af ríkissjóði, endi í höfði eða hjarta þeirra sem eru einhver auðfórnanleg peð atvinnustjórnmálamanna í einhverju geopólitísku valdabrölti.

Íslendingar vilja ekki láta benda sig við neitt af þessu.

Höfundur er oddviti Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi

Eftirfarandi eru tólf megin áherslumál Lýðræðisflokksins fái flokkurinn umboð kjósenda í næstu kosningum til að ná þeim ...
25/10/2024

Eftirfarandi eru tólf megin áherslumál Lýðræðisflokksins fái flokkurinn umboð kjósenda í næstu kosningum til að ná þeim fram:
Með breytingum á leikreglum íslensks peningamarkaðar verði almenningi og fyrirtækjum tryggð sambærileg vaxtakjör og tíðkast í nágrannalöndum okkar. Með þessum hætti tryggjum við áður óþekktan stöðugleika og fyrirsjáanleika fyrir landsmenn alla.

Fjárlög verði hallalaus og skuldir ríkisins greiddar niður með markvissum hætti. Samtímis verði umsvif ríkisins dregin stórlega saman og skattar, tollar og opinber gjöld lækki í kjölfarið. Öll fjármálaumsýsla ríkisins verði endurskoðuð til ábyrgðar, sparnaðar og hagræðingar.

Landsvirkjun og Landsnet verði áfram í eigu ríkisins. Hraðað verði uppbyggingu skynsamlegra virkjanakosta, þ.e. fallvatna og jarðvarma.

Alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins verði teknar til endurskoðunar, einkum EES-samningurinn og loftslagssamningar. Árétta verður tvíeðli íslensks réttar og sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar. Hafna ber orkupökkum ESB.

Fjárframlög til óhagnaðardrifinnar starfsemi á sviði menningar, lista og íþrótta verði ákveðin af skattborgurum í stað stjórnmálamanna með því að veita skattafslátt af slíkum framlögum. Telji menn þörf á að færa til fjármuni á milli borgara geta þeir nýtt til þess félög til almannaheilla í stað þess að ríki beiti valdi við slíkar tilfærslur.

Tryggja verður sjálfbæra og arðbæra nýtingu allra náttúruauðlinda. Aðgangstakmarkanir eru því óhjákvæmilegar. Ríkið sem eigandi náttúruauðlinda innheimti gjöld sem tryggi eðlilegt endurgjald fyrir nýtinguna. Ríkið standi ekki í vegi fyrir olíuleit í efnahagslögsögu Íslands.
Einstaklingsfrelsi er kjarninn í stefnu Lýðræðisflokksins. Við lagasetningu skal ávallt spyrja lykilspurningarinnar: Er einstaklingsfrelsi aukið eða minnkað með þessum lögum?

Horfið verði frá áformum um borgarlínu og önnur verkefni sem hafa farið langt fram úr kostnaðaráætlunum. Einkaframtak verði nýtt til að greiða fyrir samgöngum og tryggja öryggi vegfarenda. Sundabraut fái forgang um framkvæmd. Sveitarfélögum verði gert skylt að tryggja nægilegt lóðaframboð og byggingareglugerð verði einfölduð.

Opinber þjónusta, þ.m.t. heilbrigðisþjónusta og menntun barna, verði betur tryggð með skynsamlegri blöndu opinbers rekstrar og einkarekstrar. Menntun í grunnskólum landsins verði bætt með áherslu á lestur, skrift og reikning. Skólagjöld, sem endurspegla raunverulegan kostnað, verði innheimt á háskólastigi. Auka þarf aðgengi að verknámi.

Skerðingar á lífeyri vegna tekna verða afnumdar. Ríkið á ekki að standa í vegi fyrir því að þeir vinni sem það geta.

Tekið verði fastar á glæpamönnum með þyngri refsingum fyrir ofbeldisglæpi og betri fjármögnun og heimildum lögreglu

Full stjórn á landamærunum. Hæliskerfið verður lagt niður og eingöngu tekið á móti viðráðanlegum fjölda kvótaflóttamanna. Innheimt verði komugjald af ferðamönnum. Útlendingum sem hlotið hafa dóm vegna afbrota skal vísað úr landi.

Skannaðu QR kóðann til þess að mæla með framboði Lýðræðisflokksins í komandi Alþingiskosningum

Mér þætti afskaplega vænt um ef þið gætuð smellt einni rafrænni meðmælaundirskrift á Lýðræðisflokkinn. Ég er í oddvitasæ...
25/10/2024

Mér þætti afskaplega vænt um ef þið gætuð smellt einni rafrænni meðmælaundirskrift á Lýðræðisflokkinn. Ég er í oddvitasæti í Norðvestur kjördæmi, en endilega mælið með listanum í ykkar kjördæmi.

Tökum löggjafann í okkar hendur. Venjulegt fólk á þing!
Umbætur STRAX!

Ég veit að það er mikill doði og vonleysi í allt alltof mörgum. Ef þú vilt breytingar, þá verður þú að vera hluti af lau...
25/10/2024

Ég veit að það er mikill doði og vonleysi í allt alltof mörgum. Ef þú vilt breytingar, þá verður þú að vera hluti af lausinni.
Hlutverkið þitt núna er að mæla með framboði Lýðræðisflokkurinn í þínu kjördæmi.
Við erum bara venjulegt fólk sem viljum sjá umbætur í samfélaginu, minna skrifræði, minna bákn, meira frelsi til athafna á öllum sviðum.

Kynntu þér stefnuna okkar sem er í mótun á www.lydraedisflokkurinn.is og skemmtu inn meðmæli með framboði okkar.

Og vertu með í stefnumótuninni! Segðu mér hvað þú hefur á hjarta og hvað þú vilt sjá breyast eftir kosningar!

Viðtalið við mig hjá Kiddu Svarfdal er komið út í fullri lengd á YouTube og Spotify. Hvet alla til þess að hlusta.
25/10/2024

Viðtalið við mig hjá Kiddu Svarfdal er komið út í fullri lengd á YouTube og Spotify.

Hvet alla til þess að hlusta.

Eldur Smári Kristinsson er formaður hagsmunasamtaka samkynhneigðra, Samtakanna 22. Eldur hefur verið milli tannanna á fólki vegna skoðanna hans á transfólki ...

Address

Smábær
Kolbeinsstaðir
311

Telephone

+3546863060

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Eldur Ísidór posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Eldur Ísidór:

Share

Category