Íbúahreyfingin

Íbúahreyfingin Íbúahreyfingin átti fulltrúa í bæjarstjórn Mosfellsbæjar á árunum 2010 til 2018. Jón Jós

"Í Mosfellsbæ hefur orðið afturför í lýðræðisþróun. Með hverri deiliskipulagsbreytingunni af annarri verður hún sýnilegr...
28/04/2021

"Í Mosfellsbæ hefur orðið afturför í lýðræðisþróun. Með hverri deiliskipulagsbreytingunni af annarri verður hún sýnilegri. Heildarsýn hefur tapast og bæjarbúar eru ekki lengur þátttakendur í ferlinu. Með öllu er óljóst hvert þeir sem vinna að tillögum og jafnvel framkvæmdum sækja umboð sitt. Þannig vinnubrögðum liggur hvorki virðing fyrir gegnsæi né lýðræði að baki."

Sent Mosfellsbæ, 26. apríl 2021 Efni: Umsögn um auglýsta tillögu að breytingu á deiliskipulagi við Bjarkarholt 4-5 í miðbæ Mosfellsbæjar og skort á forsendum slíkra breytinga, þ.e. sjálfu deiliskipulagi miðbæjarins. Í dag [26. april] rann út frestur til að skila athugasemdum vi....

Bæjaryfirvöld þurfa að gera betur við gerð skipulags fyrir þjónustuíbúðir eldri borgara í Bjarkarholti 4-5 og birta undi...
21/04/2021

Bæjaryfirvöld þurfa að gera betur við gerð skipulags fyrir þjónustuíbúðir eldri borgara í Bjarkarholti 4-5 og birta undirrituð hér umsögn við tillögu að deiliskipulagsbreytingu. Íbúar hafa frest til 26. apríl til að senda bænum umsagnir.
Umsögnin er birt með fyrirvara um breytingar. Þeir sem áhuga hafa geta sent okkur viðbætur og athugasemdir fyrir kl. 16.00 25. apríl. Sjá nánar neðst í skjalinu.

Þann 26. apríl næstkomandi rennur út frestur til að senda inn athugasemdir við breytingu á deiliskipulagi í Bjarkarholti 4-5 í miðbæ Mosfellsbæjar en þar stendur til að byggja þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Stjórn Íbúahreyfingarinnar telur að bæjaryfirvöld þurfi að gera be...

Er miðbærinn miðpunktur mannlífs í Mosfellsbæ? Er hann fjölskylduvænn?
15/04/2021

Er miðbærinn miðpunktur mannlífs í Mosfellsbæ? Er hann fjölskylduvænn?

Nýverið vatt sér að mér kona í miðbæ Mosfellsbæjar og spurði mig augljóslega reið og vonsvikin: Hvernig g*t þetta eiginlega gerst? Mér varð svara fátt en vissi um leið hvað hún átti við. Ég spyr mig sjálfa að því sama. Já, hvernig g*t þetta gerst? Á undanförnum árum he...

Áfram heldur umfjöllun um Sundabraut. Hér má sjá afstöðumynd frá Lágafelli við Vesturlandsveg yfir Hóla-, Hlíða- og Höfð...
06/04/2021

Áfram heldur umfjöllun um Sundabraut. Hér má sjá afstöðumynd frá Lágafelli við Vesturlandsveg yfir Hóla-, Hlíða- og Höfðahverfi út á Leiruvog. Geldinganes og Gunnunes ganga út í voginn. Þar á milli stendur til að leggja Sundabraut á brú og landfyllingum.
Framtíðarbyggð í Blikastaðalandi verður líka í beinu sjónmáli við hraðbrautina.

Íbúum fjölgar hratt á höfuðborgarsvæðinu og því mikilvægt að verja náttúruupplifun, náttúruverndar- og útivistarhagsmuni...
02/04/2021

Íbúum fjölgar hratt á höfuðborgarsvæðinu og því mikilvægt að verja náttúruupplifun, náttúruverndar- og útivistarhagsmuni. Langtímasjónarmið eins og að setja Sundabraut í botngöng/stokk ætti að skoða af þunga og fyllstu alvöru.
Hér samantekt á helstu umhverfisáhrifum og stöðunni í dag.

Sigrún H. Pálsdóttir skrifar um Sundabraut með náttúruverndar- og útivistarhagsmuni íbúa við strandlengjuna í huga.

Upplýsingagjöf er til alls fyrst! Hér frábært framtak ríkislögreglustjóra í baráttunni gegn heimilisofbeldi. Sem lögregl...
15/10/2020

Upplýsingagjöf er til alls fyrst! Hér frábært framtak ríkislögreglustjóra í baráttunni gegn heimilisofbeldi.
Sem lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins setti hún af stað verkefni sem kallast Saman gegn ofbeldi í samstarfi við Reykjavíkurborg 2014.
Síðar gerðust fleiri sveitarfélög aðilar að verkefninu. Mosfellsbær var eitt þeirra en lítið hefur fréttst af því frá undirritun samstarfsyfirlýsingar 2015.

Hringdu í neyð í 112 eða smelltu á Netspjall 112 til að hefja samtal við neyðarvörð.

Á vef Umhverfisstofnunar hefur verið birt mynd af tillögu um breytingu á friðlandinu við Varmárósa. Tillagan gengur út á...
24/06/2020

Á vef Umhverfisstofnunar hefur verið birt mynd af tillögu um breytingu á friðlandinu við Varmárósa. Tillagan gengur út á að minnka friðlandið vestan megin til að stækka beitarhólf hestamanna en jafnframt stækka friðlandið sjálft til austurs yfir vatnsföllin og er það vel.
Í dag er hrossum beitt innan friðlandsins og er það í trjássi við skilmála. Það hefur verið ósk hestamanna að halda í þau og er Mosfellsbær væntanlega að koma til móts við þá með því að færa beitarhólfin út fyrir friðlandið.
Útsýni yfir friðlandið er þó hvergi jafn gott og frá þeim stað þar sem beitarhólfin eru.

Frestur er til 18. ágúst til að koma á framfæri athugasemdum.
Sjá mynd ...

Umhverfisstofnun, ásamt sveitarfélaginu Mosfellsbæ, kynnir hér með áform um endurskoðun á friðlýsingu Varmárósa í samræmi við 49. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Um er að ræða breytingu á mörkum friðlandsins ásamt endurskoðun friðlýsingarskilmála.

Krafan um gegnsæi í fasteignaviðskiptum ætti ávallt að vera nr. 1.
21/06/2020

Krafan um gegnsæi í fasteignaviðskiptum ætti ávallt að vera nr. 1.

Fyrrverandi fulltrúi í bæjarstjórn Mosfellsbæjar veltir fyrir sér réttastöðu kaupenda gallaðra íbúða og rétti sveitarfélaga sem semja við fjármálafyrirtæki um uppbyggingu á lóðum.

Ótíðindi dagsins. Munið þið eftir Primacare og einkasjúkrahúsi við Sólvelli í Reykjahverfi sem síðan breyttist í einkare...
28/05/2020

Ótíðindi dagsins. Munið þið eftir Primacare og einkasjúkrahúsi við Sólvelli í Reykjahverfi sem síðan breyttist í einkarekna endurhæfingarstöð á sama stað? Öll runnu þessi verkefni út í sandinn. Svo fréttunum af skyndilegri fjárþurrð GAMMA (Upphafs/Novusar) sem m.a. tengdist uppbyggingu í miðbæ Mosfellsbæjar og núna þetta! Búið að stofna einkahlutafélag um rekstur Reykjalundur með bæjarstjórann og vin hans, lögfræðing vélaverkstæðisins fræga í Hafnarfirði (VHE) í stjórn.
Báðir þessir menn áttu mikla aðkomu að verkefnunum hér að ofan. Það sem þau áttu sameiginlegt var að um þau ríkti algjört fjárhagslegt ógagnsæi.
SÍBS kemur skv. fréttinni framvegis hvergi nærri starfseminni.

Nýja félagið verður óhagnaðardrifið einkahlutafélag með sérstaka stjórn sem verður óháð stjórn SÍBS.

Address

Mosfellsbær
270

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íbúahreyfingin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Íbúahreyfingin:

Share