30/01/2026
Prófkjörið verður haldið á morgun í félagsheimilinu okkar í kjarnanum. Það eru 13 í framboði en 4 af þeim eru ungir Sjálfstæðismenn og við ætlum að kynna þá fyrir ykkur í vikunni en við sendum þeim nokkrar spurningar fyrr í vikunni svo að þið getið kynnst þeim betur! Síðasti ungi frambjóðandinn sem við kynnum til leiks er hann Ragnar Bjarni sem sækist eftir 4. sæti
Aldur: Ég er 25. ára
Hvaða sæti sækist þú eftir: Ég sækist eftir 4. sæti
Helstu stefnumál: Helstu stefnumál mín eru húsnæðismál, umhverfismál og samgöngu
Uppáhalds skyndibiti: Serrano
Hver eru brýnustu málefni ungs fólks í Mosfellsbæ: Brýnustu mál ungs fólks í mosfellsbæ eru húsnæðismál þar sem við þurfum að finna leiðir til þess að fá húsnæði á viðráðanlegu verði fyrir fyrstu kaupendur og fjölskyldur þeirra.
Umhverfismál og samgöngur eru einnig mikilvæg og þurfum við að hafa góða og skýra stefnu sem virkar ekki eitthvað sem er flott á blaði, samgöngumál er eitthvað sem allir mosfellingar kannast við og þurfum við að leita að leiðum til þess að þær virki almennilega ekki bara út úr bænum heldur líka inn í bænum.
Uppáhalds tónlistarmaður/kona: Bubbi Morthens og Kaleo
Viljinn óskar Ragnari Bjarna góðs gengis í prófkjörinu!