19/08/2026
Enn bætist í hóp heppinna lestrarhesta sumarsins! Að þessu sinni var það Sólon Rökkvi, 8 ára, sem datt í lukkupottinn eftir að hafa verið duglegur að lesa og safna stimplum með Gúnda geithafri. Við óskum Sóloni Rökkva innilega til hamingju með vinninginn! 🎉
Nú fer hins vegar hver að verða síðastur því sumarlesturinn er senn á enda. Póstkassinn góði ætlar að standa vaktina fram á mánudag en þá munum við draga út síðasta vinningshafa sumarsins.
Það er því um að gera að nýta helgina vel; lesa, safna mínútum, næla sér í stimpil og lauma svo happamiða í kassann. 📖✨