Fjarðalistinn

Rekstrarniðurstaða 2025 er jákvæð, þrátt fyrir lakari afkomu í A-hluta en áætlað var.- Tekjur voru hærri en búist var vi...
11/04/2026

Rekstrarniðurstaða 2025 er jákvæð, þrátt fyrir lakari afkomu í A-hluta en áætlað var.
- Tekjur voru hærri en búist var við, sérstaklega vegna aukinna skatttekna og framlaga frá jöfnunarsjóði.
- Tekjur frá útsvari og fasteignaskatti jókst um 446 milljónir á milli ár
- Framlög úr jöfnunarsjóði jukust um 374 milljónir á milli ára
- Skatttekjur og framlög, ekki aðgerðir meirihlutans

Verðbólga hefur lækkað mikið síðustu ár sem hefur þýtt lægri fjármagnsgjöld.
- Fjármagnsgjöld 156 milljónum lægri en 2023

Þrátt fyrir fyrirsagnir um annað standast orð meirihlutans um aðhald í rekstri ekki skoðun.
- Annar rekstrarkostnaður fór úr böndunum og var 519 milljónir fram úr áætlun árið 2025
- Flestar framkvæmdir í A-hluta fóru fram úr áætlun líkt og árið 2024
- Rekstrarkostnaður sveitarfélagins jókst um yfir 1 milljarð á milli ára

Eftirfarandi er bókun Fjarðalistans í heild sinni:

Fjarðalistinn fagnar jákvæðri rekstrarniðurstöðu fyrir árið 2025 þrátt fyrir lakari afkomu í A-hluta en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Rekstrarniðurstaða ársins litast að verulegu leyti af sterkari tekjustofnum en gert var ráð fyrir, sér í lagi auknum skatttekjum á milli ára og hærra framlagi frá jöfnunarsjóði. Á sama tíma var launakostnaður lægri en áætlað var sem skýrist að miklu leyti af fjölda lausra stöðugilda, færri ársverkum og minni launahækkunum en gert var ráð fyrir.

Ljóst er að áhrif þeirra munu að einhverju leyti færast á komandi ár. Á sama tíma er vert að nefna að annar rekstrarkostnaður sveitarfélagsins hækkaði verulega á milli ára og var um 365 milljónir umfram áætlun í A-hluta. Ytri áhrifaþættir halda áfram að hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins. Fjármagnsliðir hafa lækkað milli ára og var 61 milljón krónum lægri en 2024 og hafa lækkað umtalsvert síðust ár. Mikilvægt er þó að undirstrika að reksturinn er áfram viðkvæmur fyrir breytingum í verðbólgu og vaxtastigi og nauðsynlegt að styrkja undirliggjandi rekstur til lengri tíma. Engum dylst að fjárfestingarþörf sveitarfélagsins er mikil þrátt fyrir miklar framkvæmdir undanfarin ár og er því áfram áhyggjuefni að fjárfestingar ársins í A-hluta fari flestar fara fram úr áætlunum ársins. Að sama skapi eru það vonbrigði að engar fjárfestingar voru á leiktækjum í sveitarfélaginu eins og sést í ársreikningi á árinu 2025 þrátt fyrir þörf á viðhaldi og viðbótum víða. Áskoranir í rekstri sveitarfélagsins eru áfram margar.

Bætt rekstrarniðurstaða síðustu ára á rætur sínar að rekja til ákvarðana sem teknar voru snemma á kjörtímabilinu ásamt lægri fjármagnskostnaði, auknum skatttekjum ásamt auknum framlögum jöfnunarsjóðs sem jukust um tæpar 370 milljónir á milli ára. Því er ljóst að áfram þarf að sýna aga í fjármálum sveitarfélagsins og tryggja rekstrargrunn þess. Rekstur sveitarfélagsins þarf að byggja á ábyrgri nýtingu sameiginlegra fjármuna þar sem leiðarljósið er jöfnuður og velferð. Fjarðalistinn mun áfram standa vörð um grunnþjónustu við íbúa og leggur áherslu á að breytingar í rekstri muni ekki leiða af sér skertra þjónustu né aukinni gjaldtöku.

Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir skrifar 📝🧡
08/03/2026

Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir skrifar 📝🧡

Í dag, 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, er víða rætt um stöðu kvenna á vinnumarkaði og þau skref sem enn þarf að taka til að ná raunverulegu jafnrétti. Sú umræða á ekki aðeins heima á alþjóðlegum vettvangi eða á landsvísu, heldur líka hér heima í sveitarf....

Félagshyggja, jöfnuður og framtíð FjarðabyggðarFélagshyggja byggir á þeirri einföldu en öflugu hugsjón að samfélagið eig...
28/02/2026

Félagshyggja, jöfnuður og framtíð Fjarðabyggðar

Félagshyggja byggir á þeirri einföldu en öflugu hugsjón að samfélagið eigi að vera fyrir öll. Að jöfnuður, samkennd og sameiginleg ábyrgð séu hornsteinar í uppbyggingu öflugs og réttláts samfélags þar sem hver og einn fær notið sín. Í slíkri sýn felst að tryggja öllum mannsæmandi líf og að velferðarkerfið taki mið af ólíkum þörfum ólíkra einstaklinga.

Frá stofnun árið 1998 hefur Fjarðalistinn haft það að leiðarljósi að byggja Fjarðabyggð upp á grunni félagshyggju. Listinn varð til þegar fólk úr ólíkum áttum, með mismunandi bakgrunn í landspólitík, sameinaðist um þá sannfæringu að samfélagið í Fjarðabyggð yrði best byggt á jöfnuði, félagslegri ábyrgð og sterkri velferð. Þessi kjarnastefna hefur ekki breyst í gegnum árin. Fjarðalistinn hefur ávallt verið vettvangur félagshyggjufólks sem brennur fyrir framtíð Fjarðabyggðar og vill leggja sitt af mörkum til að gera gott samfélag enn betra.

Á aðalfundi Fjarðalistans fóru fram málefnalegar umræður um næstu skref listans. Niðurstaða fundarins var sú að bjóða ekki fram í nafni Fjarðalistans í sveitarstjórnarkosningunum árið 2026. Jafnframt var stjórn falið að vinna að því, í samstarfi við Samfylkinguna í Fjarðabyggð, að boðið verði fram í nafni Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks. Markmiðið með þeirri ákvörðun er að áfram verði sterkur vettvangur fyrir þau gildi sem Fjarðalistinn hefur staðið fyrir frá upphafi og að áfram verði staðið vörð um félagshyggjuna í Fjarðabyggð.

Sú ákvörðun að bjóða ekki fram undir merkjum Fjarðalistans felur ekki í sér að hann sé lagður niður. Þvert á móti stendur félagið áfram vörð um þau gildi sem hafa mótað starfið frá upphafi. Vettvangurinn kann að breytast í þessum kosningum en félagshyggjan, samstaðan og hugsjónir lifa áfram í fólkinu og starfinu.

Okkur finnst afar mikilvægt að hlusta á þær raddir sem heyrðust á aðalfundinum, á fólkið sem hefur staðið með Fjarðalistanum í ótal ár og lagt á sig ómælda vinnu í þágu samfélagsins. Sú grasrót er hjartað í hreyfingunni og hún mun áfram móta vegferð félagshyggjunnar í Fjarðabyggð.

Form breytast, nöfn geta breyst en gildin haldast óbreytt. Jöfnuður, velferð og samstaða eru ekki tímabundin stefna heldur grundvallarstoðir samfélags sem vill vera sanngjarnt og sterkt.
Umræða um félagshyggju snýst í grunninn um það hvernig við viljum standa að uppbyggingu og þjónustu í Fjarðabyggð til framtíðar.

Fjarðalistinn styður framboð Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð.Á aðalfundi Fjarðalistans, hald...
28/02/2026

Fjarðalistinn styður framboð Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð.

Á aðalfundi Fjarðalistans, haldinn 24. febrúar 2026, var sú ákvörðun tekin að bjóða ekki fram undir merkjum Fjarðalistans í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Jafnframt var samþykkt að styðja við framboð Samfylkingarinnar en Fjarðalistinn hvatti stjórn Samfylkingarinnar í Fjarðabyggð til að bjóða fram undir merkjum: Samfylkingin og annað félagshyggjufólk.

Fjarðalistinn var stofnaður árið 1998 og hefur frá upphafi starfað á grunni félagshyggjunnar í sveitarstjórnarmálum í Fjarðabyggð. Með þessari ákvörðun er markmiðið að tryggja áfram sterkan vettvang fyrir þau gildi og þá stefnu sem listinn hefur staðið fyrir.
Fjarðalistinn á áfram samleið með félagshyggjufólki í Fjarðabyggð og mun leggja nýju framboði lið af fremsta megni. Fjarðalistinn þakkar öllum þeim sem hafa starfað fyrir listann og kosið hann í gegnum tíðina og hlakkar til áframhaldandi samstarfs um málefni sveitarfélagsins.

Fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar – 19. febrúar 2026(English below)Á bæjarstjórnarfundi í gær ræddu Hjördís og Arndís f...
20/02/2026

Fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar – 19. febrúar 2026
(English below)

Á bæjarstjórnarfundi í gær ræddu Hjördís og Arndís fyrir hönd Fjarðalistans meðal annars eftirfarandi mál:

Samgönguáætlun
Við töluðum um mikilvægi Suðurfjarðarvegar í sveitarfélaginu og umsögn sveitarfélagsins um samgönguáætlun 2026 til 2040. Lögðum sérstaka áherslu á að Suðurfjarðarvegur væri í algjörum forgangi. Þá var áréttað að mikilvægt væri að sveitarfélagið sendi skýr og samræmd skilaboð um forgangsröðun jarðgangaverkefna.

Hafðu áhrif
Við tókum jákvætt í verkefnið ,,Hafðu áhrif - Taktu þátt" sem miðar að því að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstiginu.
Uppbygging íslenska stríðsárasafnsins.
Við fögnum því samþykkt hefur verið tilboð frá Launafli ehf vegna uppsteypu, sökkla, platna og veggja í fyrsta áfanga á uppbyggingu íslenska stríðsárasafnsins. Fyrsti áfangi leggur áherslu á þjónustu byggingu, nýjan bragga og endurbætur á núverandi húsnæði.

Öldungaráð
Við ræddum starfsemi öldungaráðs sem hefur heimsótt hjúkrunarheimili og félög eldri borgara í Fjarðabyggð. Ráðið átti jafnframt góðan fund með bæjarráði um málefni eldra fólks og stefnir að mánaðarlegri fræðslu. Næsta fræðsla verður um svefn og næringu á Stöðvarfirði.

Municipal Council Meeting of Fjarðabyggð – 19 February 2026

At yesterday’s municipal council meeting, Hjördís and Arndís spoke on behalf of Fjarðalistinn on the following topics:

Transport Plan
We discussed the importance of the South Fjords Road (Suðurfjarðarvegur) within the municipality and the municipality’s review of the national transport plan for 2026–2040. We placed strong emphasis on the South Fjords Road being given top priority. It was also stressed that the municipality should send clear and consistent messages regarding the prioritisation of tunnel projects.

Hafðu áhrif
We welcomed the project “Have Your Say – Take Part”, which aims to strengthen democracy at the municipal level.
Development of the Icelandic Wartime Museum
We welcome the approval of the bid from Launafl ehf. for concrete work, foundations, slabs, and walls in the first phase of the development of the Icelandic Wartime Museum. The first phase focuses on a service building, a new barracks building, and improvements to existing structures.

Council of Elders
We discussed the work of the Council of Elders, which has visited nursing homes and senior associations across Fjarðabyggð. The council also held a productive meeting with the executive council on issues concerning older residents and plans to offer monthly educational sessions. The next session will be held in Stöðvarfjörður and will focus on sleep and nutrition.

Stefán Þór Eysteinsson skrifar✏️:https://austurfrett.is/frettir/vill-adh-ofanflodhasjodhur-taki-aukinn-thatt-i-vidhhaldi...
19/02/2026

Stefán Þór Eysteinsson skrifar✏️:

https://austurfrett.is/frettir/vill-adh-ofanflodhasjodhur-taki-aukinn-thatt-i-vidhhaldi-varnarmannvirkja?fbclid=IwY2xjawQDt3RleHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZBAyMjIwMzkxNzg4MjAwODkyAAEe7PbLv4tx5LYUstoYox4Ohs30IFVJzES6PpafPQ1niAQBAfq7DVyYbOz7hik_aem_Mw9eH08TVU18tdAZH6a5zA

Stefán Þór Eysteinsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, kallar eftir því að hlutdeild Ofanflóðasjóðs í viðhaldi varnarmannvirkja verði aukin. Frumvarp þess efnis liggur fyrir Alþingi.

Hlekkur kemur síðar.
18/02/2026

Hlekkur kemur síðar.

10/02/2026
Fjarðalistinn heldur aðalfund sinn í Nesskóla í Neskaupstað miðvikudaginn 11. febrúar 2026 og hefst fundurinn kl. 20:00....
04/02/2026

Fjarðalistinn heldur aðalfund sinn í Nesskóla í Neskaupstað miðvikudaginn 11. febrúar 2026 og hefst fundurinn kl. 20:00.

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og umfjöllun um komandi sveitarstjórnarkosningar.

Fulltrúar Fjarðalistans styðja markmið sveitarfélagsins um að efla þjónustu við eldra fólk í Fjarðabyggð, tryggja samfel...
16/01/2026

Fulltrúar Fjarðalistans styðja markmið sveitarfélagsins um að efla þjónustu við eldra fólk í Fjarðabyggð, tryggja samfellu í þjónustu og vinna markvisst að fjölgun hjúkrunarrýma, uppbyggingu dagdvalar og aðgengilegs húsnæðis til framtíðar t.d. með byggingu þjónustuíbúða.
Fjarðalistinn leggur jafnframt ríka áherslu á að staða, réttindi og búsetuöryggi núverandi íbúa Breiðabliks séu ófrávíkjanleg. Engar breytingar á búsetu, þjónustu eða aðstæðum núverandi íbúa koma til greina og skal það vera skýrt að allar hugmyndir um þróun eða aðlögun Breiðabliks snúa eingöngu að framtíðinni.
Fulltrúar Fjarðalistans árétta að engar ákvarðanir hafa verið teknar um breytingar á eignarhaldi, rekstrarformi eða fyrirkomulagi Breiðabliks. Slíkar ákvarðanir, ef til þeirra kemur, skulu byggja á frekari greiningu, opnu og gagnsæju samráði við íbúa, aðstandendur og starfsfólk og verða lagðar sérstaklega fyrir bæjarstjórn til formlegrar afgreiðslu.
Fjarðalistinn telur mikilvægt að uppbygging öldrunarþjónustu byggi á félagslegum og óhagnaðardrifnum forsendum, þar sem öryggi, mannúð og langtímahagsmunir samfélagsins eru hafðir að leiðarljósi, en ekki skammtímasjónarmið.
Fjarðalistinn vill áfram leggja sitt af mörkum til málefnalegrar og ábyrgðarfullrar umræðu um framtíð þjónustu við eldra fólk, þar sem samráð og virðing fyrir fólkinu sem þjónustan snýr að eru í fyrirrúmi.

Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir hér með skýrri stefnu og vilja sveitarfélagsins um uppbyggingu og eflingu þjónustu við eldri borgara.

🏛️ Fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar – 15. janúar 2026(English below)Á fyrsta bæjarstjórnarfundi ársins ræddu Stefán og...
15/01/2026

🏛️ Fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar – 15. janúar 2026
(English below)

Á fyrsta bæjarstjórnarfundi ársins ræddu Stefán og Hjördís fyrir hönd Fjarðalistans meðal annars eftirfarandi mál:

🌲 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Við tókum jákvætt í samning sem tryggir ræktun Landgræðsluskóga, vernd lands og opið útivistarsvæði fyrir íbúa til framtíðar.
Eftir langt ferli er ánægjulegt að sjá málið fá lendingu sem sameinar 🌿 umhverfisvernd, 🚶‍♀️ útivist og 🔄 sveigjanleika fyrir framtíðarnýtingu lands.

🎿 Samstarf skíðasvæðanna Oddskarðs og Stafdals
Við fögnum því að komið sé á samstarf skíðasvæðanna með sameiginlegu aðgangs- og sölukerfi.
Þetta er mikilvægt skref í 🤝 auknu samstarfi sveitarfélaga á Austurlandi, sem einfaldar þjónustu fyrir notendur og styrkir rekstur skíðasvæðanna.

🐟 Frumvarp til laga um lagareldi
Við ræddum frumvarp til laga um lagareldi og lögðum áherslu á að lagasetningin þurfi að styðja við ♻️ sjálfbæra atvinnuuppbyggingu í sjávarbyggðum.
Mikilvægt er að tryggja ⚖️ sanngjarna og fyrirsjáanlega tekjuöflun til sveitarfélaga, 🔍 öflugt eftirlit og 🗣️ raunverulegt samráð við þau samfélög sem bera áhrifin af starfseminni.

🏠 Rannsókn á húsnæðisþörf íbúa 60 ára og eldri
Við ræddum niðurstöður nýrrar könnunar sem sýnir að margir vilja eldast áfram í Fjarðabyggð, en vilja færa sig í annað húsnæði.
Niðurstöðurnar kalla á markvissa stefnumótun um ♿ aðgengilegt, 📐 minna húsnæði og 🧓 þjónustuíbúðir, sem styrkir bæði velferð eldra fólks og byggðina í heild.

❄️ Handbók Oddsskarðs
Fögnuðum því að settar væru skýrir ferlar um 🔔 eftirlit og 🚨 viðbragð við snjóflóðum í skíðasvæðinu í Oddskarði.
Nauðsynlegt er að tryggja reglubundið eftirlit, 🎓 þjálfun starfsmanna og 🔁 reglulega endurskoðun handbókarinnar.

🏛️ Town Council Meeting – January 15th

The first town council meeting of the year was held today. At the meeting, Stefán and Hjördís, representing Fjarðalistinn, discussed among other things the following issues:

🌲 Agreement with the Reyðarfjörður Forestry Association
We welcomed an agreement that supports 🌿 land restoration forests, land protection, and long-term 🚶 public access to outdoor recreation areas.
After a lengthy process, it is encouraging to see a solution that balances environmental protection, outdoor recreation, and future land-use flexibility.

🎿 Cooperation between the Oddsskarð and Stafdalur ski areas
We welcomed cooperation through a shared 🎟️ access and ticketing system.
This strengthens 🤝 inter-municipal cooperation in East Iceland and improves services for users.

🐟 Draft legislation on aquaculture
We emphasised the importance of ♻️ sustainable development in coastal communities, ⚖️ fair municipal revenues, 🔍 robust oversight, and 🗣️ meaningful consultation with affected communities.

🏠 Survey on housing needs of residents aged 60+
The survey highlights the need for ♿ accessible, smaller homes and 🧓 service-oriented housing, strengthening both well-being and the community.

❄️ Oddsskarð Ski Area Handbook
Clear procedures for 🚨 avalanche monitoring and response were welcomed, along with 🎓 staff training and 🔁 regular updates to the handbook.

Address

Mýrargata 33
Neskaupstaður
740

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjarðalistinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Fjarðalistinn:

Share