31/07/2026
SÝNDARVERULEIKA (VR) UPPLIFUN
Hvenær: 2. ágúst 2026, 14:00-17:00
Hvar: Þórsmörk – Þiljuvellir 11, Neskaupstað
**Staðsetning viðburðar færð úr Listagarðinum í Þórsmörk**
Sunnudaginn 2. ágúst býður listamaðurinn Helga Dorothea upp á sérstaka upplifun í Þórsmörk, sem hluta af Neistaflugi.
Viðburðurinn átti upphaflega að fara fram í Listagarðinum, eins og fram kemur í dagskrá Neistaflugs, en hefur nú verið færður inn í Þórsmörk.
Verkið, sem unnið er í samstarfi við rithöfundinn og blaðamanninn Qasem Waleed, kannar sorg, vitnisburð, fjarlægð og pólitísk rof í gegnum yfirgripsmikla sýndarveruleika (VR) upplifun. Gestir geta upplifað myndina með VR-gleraugum og eru hvattir til að lesa meðfylgjandi texta og ljóð, deila hugleiðingum sínum og koma á framfæri hugmyndum sem munu móta næsta kafla verkefnisins.