24/07/2026
Norðvestanáttin ætlar aðeins að minna á sig á morgun, laugardag. Hún getur eins og við þekkjum orðið hviðótt hér í logninu.
Það væri rétt að huga að trampólínum, garðhúsgögnum og öðru lauslegu. Þar sem það hefur nú varla hreyft vind í þessum mánuði er líklegt að þessir hlutir séu útivið og ekki skjóli.
Eins er gott að passa vel upp á tjöld og annan útilegubúnað.