05/06/2026
🔧 Endurnýjun dreifikerfis við Faxabraut í Keflavík
HS Veitur hefja framkvæmdir við endurnýjun dreifikerfis rafmagns, vatns og hitaveitu við Faxabraut þann 11. júní. Markmið verkefnisins er að auka afhendingaröryggi og styrkja innviði svæðisins til framtíðar. ⚡💧♨️
Framkvæmdir standa fram í desember 2026 og verða unnar í þremur til fjórum áföngum eftir tíðarfari.
🚧 Á framkvæmdatíma má búast við tímabundnum óþægindum fyrir íbúa og vegfarendur. Aðgengi að innkeyrslum og gangstéttum við Faxabraut, Krossholt og Þverholt verður skert á köflum, en lögð verður áhersla á að halda aðgengi að fasteignum eins og kostur er.
Við þökkum íbúum og öðrum vegfarendum fyrir þolinmæði og skilning meðan á framkvæmdum stendur.
📍 Nánari upplýsingar:
https://www.hsveitur.is/framkvaemdir/framkvaemdafrettir/keflavik-endurnyjun-a-dreifikerfi-vid-faxabraut-sumarid-2026/
Reykjanesbær