Björgunarsveitin Pólstjarnan Raufarhöfn

Björgunarsveitin Pólstjarnan Raufarhöfn Hægt er að leggja björgunarsveitinni lið með beinum hætti
0179-26-4984, kt. 610191-2159

13/08/2026

Björgunarbátasjóður Norðausturlands hefur nú mikilvæga vegferð við fjármögnun nýs björgunarskips fyrir svæðið.

Núverandi björgunarskip, Gunnbjörg, var smíðað árið 1986 og hefur þjónað sjófarendum og samfélaginu af mikilli alúð í nær fjóra áratugi. Nú er komið að tímamótum og þörf á nýju skipi sem getur mætt kröfum framtíðarinnar.

Nýtt björgunarskip mun:
✅ Styrkja öryggi á sjó
✅ Bæta viðbragðsgetu björgunarsveita
✅ Stytta viðbragðstíma verulega
✅ Tryggja áfram öfluga björgunarþjónustu á Norðausturhorninu

Um er að ræða stórt og kostnaðarsamt verkefni, en um leið mikilvæga fjárfestingu í öryggi fólks, atvinnulífi og þeirra sem sækja sjóinn við Norðausturland.
Á næstu misserum munum við leita til sveitarfélaga, fyrirtækja, stofnanna og einstaklinga til að kynna verkefnið nánar og leita stuðnings.
Við byrjum hinsvegar átakið með einskonar uppboði á nafnavali,
sérstakt tækifæri þar sem leitað er að fjársterkumaðila sem vill styrkja verkefnið með því að kaupa nafn á síðu skipsins, hvort sem er eigið nafn, nafn fjölskyldu, ástvinar eða annað.

Nánari upplýsingar veitir:
Hörður Ingimar Þorgeirsson
📞 893 6947
📧 [email protected]

🙏 Deilið færslunni og hjálpið okkur að koma þessu mikilvæga verkefni á framfæri. Saman getum við styrkt öryggi á sjó fyrir komandi kynslóðir. 💙⚓️

19/06/2026

Sólstöðuhátíð á Kópaskeri er hafin. 🥳

Í kvöld, föstudag, kl. 18:30 verður björgunarsveitin Pólstjarnan að grilla fyrir utan Stóru-Mörk. Fólk getur komið og borðað inni í Stóru-Mörk eða sótt sér mat. 🥩
Verð er 4500 fyrir fullorðna og 2500 fyrir börn á grunnskólaaldri.
Athugið að posi er á staðnum en fólk getur líka millifært á 0179-26-4984, kt. 610191-2159.

Hvetjum Raufarhafnarbúa til að mæta og styrkja björgunarsveitina. 😀

Frábær sjómannadagur á Raufarhöfn. Þökkum öllum sem komu í sjóferð, leiki og grill. Til hamingju með daginn, sjómenn ❤️M...
06/06/2026

Frábær sjómannadagur á Raufarhöfn. Þökkum öllum sem komu í sjóferð, leiki og grill. Til hamingju með daginn, sjómenn ❤️
Myndir: Gunnur Árnadóttir

Hér er mynd af afhendingu styrkja sem sparisjóður Þingeyinga veitti til unglingastarf og er okkar fulltrúi Björn Grétar ...
02/06/2026

Hér er mynd af afhendingu styrkja sem sparisjóður Þingeyinga veitti til unglingastarf og er okkar fulltrúi Björn Grétar Ríkharðsson þarna en því miður ekki í peysu merkta sveitinni, en nú er orðin breyting á þvi

Sjómannadags húllum hææææ !🛟 Sigling verður stundvíslega kl 13:00💪 Dagskrá hefst að lokinni siglinguMætum öll, höfum gam...
30/05/2026

Sjómannadags húllum hææææ !
🛟 Sigling verður stundvíslega kl 13:00
💪 Dagskrá hefst að lokinni siglingu
Mætum öll, höfum gaman og tökum þátt 😃
sipp og hojjj, sipp og hojjj ⚓️⚓️
kveðja
Björgunarsveitin Pólstjarnan

14/05/2026

Kosningakaffi !

Laugardaginn 16 mai næstkomandi ætlar björgunarsveitin að selja kaffi í Félagsheimilið Hnitbjörg. Raufarhöfn frá kl. 15:00-18:00.

Hlaðborð m/kaffi. 2000 kr.
Posi á staðnum.

Allir velkomnir hlökkum til að sjá sem flesta.

12/05/2026

Áttum góða stund saman á félagsfundi í gær yfir dýrindis sveppasúpu í boði Félagans Bar, sem einnig lánaði okkur félagsheimilið fyrir fundinn. kærar þakkir fyrir okkur.

Fundurinn var vel heppnaður og ánægjulegt að sjá góða mætingu og umræður um verkefnin framundan. Nokkrir nýjir félagar bættust í hópinn og erum við virkilega spennt fyrir komandi tímum og áframhaldandi uppbyggingu sveitarinnar.

Það er ennþá hægt að vera með í fatapöntuninni sem verður send síðar í vikunni fyrir þá sem hafa áhuga.

Bestu kveðjur
Pólstjarnan

Ath önnur dagsetning en tilkynnt var á bingóinu...
04/05/2026

Ath önnur dagsetning en tilkynnt var á bingóinu...

Björgunarsveitin Pólstjarnan hélt glæsilegt 1. maí bingó í dag þar sem um 80 manns mættu og nutu samverunnar. Stemningin...
01/05/2026

Björgunarsveitin Pólstjarnan hélt glæsilegt 1. maí bingó í dag þar sem um 80 manns mættu og nutu samverunnar. Stemningin var einstaklega góð, vöfflurnar runnu ljúflega niður og gleðin var allsráðandi frá upphafi til enda.

Bingóstjórar dagsins, Árdís og Þorgeir, stóðu sig með prýði og héldu fjörinu gangandi, en Einar sá um sölu bingóspjalda auk þess að rétta hjálparhönd í eldhúsinu þar sem Kolla, Begga og Gísli héldu uppi frábærri þjónustu.

Spilaðar voru 14 umferðir með stórglæsilegum vinningum sem safnaðist höfðu frá 27 fyrirtækjum og einstaklingum. Við erum afar þakklát fyrir þann mikla stuðning sem okkur er sýndur – án ykkar væri þetta ekki mögulegt.

Við þökkum öllum sem mættu kærlega fyrir komuna og stuðninginn. Svona viðburðir styrkja samfélagið og minna okkur á hvað samheldnin skiptir miklu máli.

Takk fyrir okkur 💙

Address

Raufarhöfn
675

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Björgunarsveitin Pólstjarnan Raufarhöfn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Björgunarsveitin Pólstjarnan Raufarhöfn:

Shortcuts

Share