Snorrastofa, Reykholti

Snorrastofa, Reykholti Medieval institute with guest reception and exhibition

Fyrirlestur um séra Björn Magnússon á Borg, síðar prófessorSnorrastofa í Reykholti mun þriðjudaginn 25. ágúst nk. bjóða ...
14/08/2026

Fyrirlestur um séra Björn Magnússon á Borg, síðar prófessor

Snorrastofa í Reykholti mun þriðjudaginn 25. ágúst nk. bjóða upp á fyrirlestur Dr. Maríu G. Ágústsdóttur: „Hagur heildarinnar og hugarfar samúðar. Um séra Björn Magnússon á Borg, síðar prófessor“. Dagskráin verður í bókhlöðu Snorrastofu og hefst kl. 20. Um er að ræða þátt í viðburðaröðinni Fyrirlestrar í héraði.

Björn Magnússon (1904-1997) var sóknarprestur á Borg á Mýrum frá árinu 1929 og prófastur Mýraprófastsdæmis uns hann tók við stöðu guðfræðiprófessors við Háskóla Íslands árið 1945. Eftir hann liggja fjölbreytt rit á sviði guðfræði og ættfræði. Í fyrirlestrinum gerir María grein fyrir lífi Björns og störfum með sérstakri áherslu á siðfræði hans sem fulltrúa þriðju kynslóðar frjálslyndra guðfræðinga á Íslandi.

Dr. María er prófastur og prestur í Reykholti í Borgarfirði.

Ítreka tilkynninguna um fyrirlestur Snorrastofu á Reykholtshátíð vegna ljósmyndar, sem ég fékk af Þórði Kristleifssyni: ...
18/07/2026

Ítreka tilkynninguna um fyrirlestur Snorrastofu á Reykholtshátíð vegna ljósmyndar, sem ég fékk af Þórði Kristleifssyni:

Þórður Kristleifsson – söngmaður, kórstjóri og ljóðaþýðandi

Dr. Bjarki Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur mun flytja fyrirlesturinn: „Hann vildi aldrei hætta við neitt hálfklárað, hann Þórður“ í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti laugardaginn 25. júlí kl. 13. Dagskráin er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Fyrirlestur um Þórð Kristleifsson – söngmann, kórstjóra og ljóðaþýðanda Snorrastofa mun á Reykholtshátíð laugardaginn 25...
16/07/2026

Fyrirlestur um Þórð Kristleifsson – söngmann, kórstjóra og ljóðaþýðanda
Snorrastofa mun á Reykholtshátíð laugardaginn 25. júlí kl. 13 bjóða upp á fyrirlestur dr. Bjarka Sveinbjörnssonar tónlistarfræðings: „Hann vildi aldrei hætta við neitt hálfklárað, hann Þórður“. Um er að ræða hluta af viðburðaröðinni Fyrirlestrar í héraði.
Bjarki mun rekja söngnám Þórðar um sjö ára skeið í Þýskalandi og á Ítalíu. Þá verður fjallað um helstu viðfangsefnin eftir heimkomuna, skýrslugerð, söngkennslu, útgáfu söngkennslubóka og söng- og þýskukennslu á Laugarvatni. Þá verður sagt frá ljóðaþýðingum hans, kórstjórn og útgáfu kórbóka. Einnig verður greint frá ritstjórn og útgáfu Þórðar á tímaritinu Viðari, ársriti Héraðsskólanna. Leikin verða nokkur tóndæmi með lestri Þórðar og með Laugarvatnskórnum undir hans stjórn,
Dr. Bjarki Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur hefur um 30 ára skeið safnað og miðlað heimildum um íslenska tónlistarsögu, bæði í kennslu, fyrirlestrum, greinabirtingu og útvarpsþáttum. Þá stóð hann að stofnun Tónlistarsafns Íslands sem í dag hefur aðsetur í Landsbókasafni Íslands.

MINNI Á FYRIRLESTURINN Í KVÖLD!Fyrirlestrar í héraði: Haraldur konungur harðráðiFimmtudaginn 9. júlí kl. 20 býður Snorra...
09/07/2026

MINNI Á FYRIRLESTURINN Í KVÖLD!

Fyrirlestrar í héraði: Haraldur konungur harðráði
Fimmtudaginn 9. júlí kl. 20 býður Snorrastofa upp á kynningu á rannsóknarverkefni um Harald harðráða Sigurðarson, Noregskonungs, í bókhlöðu Snorrastofu. Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, mun kynna verkefnið með nokkrum inngangsorðum, en fyrirlesari kvöldsins verður dr. Gianluca Raccagni, dósent í sagnfræði við Háskólann í Edinborg. Yfirskrift fyrirlesturs hans verður: „Harald Hardrada's romantasy and beast slaying tales in Byzantium: comparing European chronicles and Icelandic sagas“.
Dagskráin er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Fyrirlestrar í héraði: Haraldur konungur harðráðiFimmtudaginn 9. júlí kl. 20 býður Snorrastofa upp á kynningu á rannsókn...
04/07/2026

Fyrirlestrar í héraði: Haraldur konungur harðráði
Fimmtudaginn 9. júlí kl. 20 býður Snorrastofa upp á kynningu á rannsóknarverkefni um Harald harðráða Sigurðarson, Noregskonungs, í bókhlöðu Snorrastofu. Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, mun kynna verkefnið með nokkrum inngangsorðum, en fyrirlesari kvöldsins verður dr. Gianluca Raccagni, dósent í sagnfræði við Háskólann í Edinborg. Yfirskrift fyrirlesturs hans verður: „Harald Hardrada's romantasy and beast slaying tales in Byzantium: comparing European chronicles and Icelandic sagas“. Dagskráin er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Ævisagan um Snorra Sturluson (1179–1241) eftir Óskar Guðmundsson er komin út á norsku, sem er virkilega gleðilegur áfang...
15/06/2026

Ævisagan um Snorra Sturluson (1179–1241) eftir Óskar Guðmundsson er komin út á norsku, sem er virkilega gleðilegur áfangi. Og nú er hún komin í bókaverslun Snorrastofu í Reykholti, þar sem henni var komið fyrir við hlið frumtextans og þýsku þýðingarinnar. Þá er komið eintak á bókasafnið, en eins og margir vita rekur Snorrastofa almenningsbókasafn í húsakynnum sínum. Birgit Nyborg annaðist þýðinguna af listfengi. Gunnstein Akselberg ritaði formála.

Ljóðadagskrá í Snorrastofu á laugardagLaugardaginn 13. júní kl. 14:00 verður boðið upp á upplestur ljóða ásamt borgfirsk...
11/06/2026

Ljóðadagskrá í Snorrastofu á laugardag

Laugardaginn 13. júní kl. 14:00 verður boðið upp á upplestur ljóða ásamt borgfirskum fróðleik í bókhlöðu Snorrastofu. Þar munu fimm ljóðskáld lesa úr verkum sínum.

Dagskráin er eftirfarandi:

Garibaldi (Garðar Baldvinsson) hefur dagskrána með stuttu erindi um langömmu sína sem bjó lengstum í Borgarfirði og fæddi þar átta börn en aðeins tvö lifðu.

Anna Björg Hjartardóttir, sem vann til verðlauna í ljóðasamkeppni Ljósberans 2023. Hún hefur áhuga á heimspeki og heldur fyrirlestra um friðarmál og búddisma. Hún er virk í alþjóða friðar-, menntunar og menningarsamtökum Soka Gakkai Int.

Eyrún Ósk Jónsdóttir, sem gaf út fyrstu ljóðabók sína 16 ára en hefur síðan sent frá sér margar ljóðabækur, skáldsögur og myndskreyttar barnabækur. Hún er menntuð í evrópskri leiklist og fjölmiðlun. Eyrún hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2016 fyrir ljóðabók sína Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa. Nýjasta bók hennar, Stórsæ stjarnfræðileg fyrirbæri – og önnur málefni hjartans, kom út 2022.

Margrét Lóa Jónsdóttir, sem hlaut í fyrra Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir 12. ljóðabók sína, Pólstjarnan fylgir okkur heim. Fyrsta ljóðabók Margrétar, Glerúlfar, kom út 1985. Margrét Lóa hefur gefið út skáldsögu og þýtt ljóð, einkum úr spænsku. Einnig hefur hún starfrækt listagalleríið Marló og bókaútgáfu með sama nafni. Margrét Lóa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ljóðagerð sína.

Ragnheiður Lárusdóttir, sem hlaut árið 2020 Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina 1900 og eitthvað en í fyrra kom út bókin Veður í æðum sem er safnbók og inniheldur allar þær fjórar bækur sem hún hefur gefið út til þessa. Í nýju bókinni yrkir Ragnheiður um þá sáru reynslu að horfa á dóttur sína lenda í fjötrum fíknar – en líka um þá töfra tilverunnar sem umlykja okkur og vonina sem glóir víða.

Garibaldi, sem hóf dagskrána, hefur ort ljóð í áratugi. Hann mun kynna ljóðabók sína Þagnafár, en ljóðin sýna líf föður skáldsins og flótta hans frá áföllum í bernsku sem brjótast fram þegar hann jarðsetur yngsta son sinn. Ljóðin lýsa magnþrungnum harmi og tekur myndmálið mið af hrikalegri náttúru á Hornströndum þar sem faðir hans ólst upp. Í bókinni sjötíu bragandi dúfur frá 2024 fjallar Garibaldi um samband sitt við yngsta bróður sinn sem er jarðsettur í Þagnafári.

Snúið bökum saman á Dreggsallmenningen í Bergen fyrir framan Maríukirkjuna. Að baki Snorra eftir Gustav Vigeland er “Dræ...
07/06/2026

Snúið bökum saman á Dreggsallmenningen í Bergen fyrir framan Maríukirkjuna. Að baki Snorra eftir Gustav Vigeland er “Dræggegutten” eftir Sofus Madsen. Styttan var reist til heiðurs þeim úr Dræggens Buekorps sem féllu í seinni heimsstyrjöldinni.

Í gær var útgáfuhátíð vegna þýðingar Birgit Nyborg á ævisögu Snorra Sturlusonar eftir Óskar Guðmundsson. Húsfyllir í Ber...
07/06/2026

Í gær var útgáfuhátíð vegna þýðingar Birgit Nyborg á ævisögu Snorra Sturlusonar eftir Óskar Guðmundsson. Húsfyllir í Bergen Offentlige Bibliotek, rétt eins og í Lillehammer tveimur dögum fyrr. Um var að ræða „Historisk bokprat om Snorre Sturlason“ með Óskari og Gunnstein Akselberg. Er óhætt að fullyrða að viðburðurinn, sem Kim Lingjærde stýrði, hafi heppnast einstaklega vel. Bækur voru áritaðar í kjölfarið. Bodoni Forlag og Foreningen Snorres venner stóðu fyrir viðburðinum.

Address

Reykholt
320

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00

Telephone

+3544338000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Snorrastofa, Reykholti posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Snorrastofa, Reykholti:

Shortcuts

Share