Skólasafn Laugarnesskóla

Skólasafn Laugarnesskóla Þetta er upplýsingasíða fyrir skólasafnið í Laugarnesskóla. Hún er ætluð foreldrum og starfsfólki skólans.

22/07/2026
Gleðilegt sumar… alþjóðlegi dagur bókarinnar er í dag 23. apríl. Þessi dagur, sem UNESCO stendur fyrir, er helgaður lest...
23/04/2026

Gleðilegt sumar… alþjóðlegi dagur bókarinnar er í dag 23. apríl. Þessi dagur, sem UNESCO stendur fyrir, er helgaður lestri, bókaútgáfu og höfundarrétti.
Sumarlestur er bestur… 🫶

MenntabúðirÁ morgun mánudag kl. 14:00-16:00 verða menntabúðir í Sögu þar sem þemað verður læsi, tækni og skapandi starf....
19/04/2026

Menntabúðir
Á morgun mánudag kl. 14:00-16:00 verða menntabúðir í Sögu þar sem þemað verður læsi, tækni og skapandi starf.
Skólasafn Laugarnesskóla verður þar með bás þar sem bókaklúbbar skólabókasafnsins verða kynntir… og þar sem Laugarnesskóli er regnbogavottaður skóli þar sem við öll fáum að vera við sjálf ætla ég að bjóða gestum og gangandi 🏳️‍🌈bókamerki í tilefni dagsins…

Er kominn tími á tiltekt í unglingaherberginu?  Nú er í bígerð að setja á laggirnar Kaftein ofurbrók bókaklúbb og því la...
11/02/2026

Er kominn tími á tiltekt í unglingaherberginu?
Nú er í bígerð að setja á laggirnar Kaftein ofurbrók bókaklúbb og því langar okkur að kanna hvort einhverjir hér eigi eintök af bókum um kafteininn og vilja losa sig við þær.
Ef svo er eru þær mjög vel þegnar hér á bókasafninu :-)

24. desember Með bókinni Heims um ból lýkur jólabókadagatali skólasafns Laugarnesdkóla.Með ósk gleðilegra jóla, farsælle...
24/12/2025

24. desember
Með bókinni Heims um ból lýkur jólabókadagatali skólasafns Laugarnesdkóla.
Með ósk gleðilegra jóla, farsællegs nýja árs, og allra góðra heillastunda.

Heims um ból - Saga lags og ljóðs
(Leiftur, 1945)
Hertha Pauli er höfundur og Fritz Kedel myndskreytti.
Freysteinn Gunnarsson skólastjóri Kennaraskóla Íslands þýddi bókina.
Bókin kom fyrst út í New York 1943 þegar 125 ár voru liðin frá því að sálmurinn og lagið varð til.
Hvernig verður eitt einfalt lag að sameiginlegri jólabæn heimsins? Heims um ból segir áhrifaríka sögu jólalagsins sem fæddist í kyrrð og breiddist út yfir lönd og kynslóðir.
Til gamans fylgja myndir af upprunalegu bókarkápunni og ein litmynd ásamt nokkrum blaðsíðum úr íslensku útgáfunni.

23. desember Glatt á hjalla - barnakvæði með teikningum eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur(Heimskringla, 1960)Böðvar Guðlaugsso...
23/12/2025

23. desember

Glatt á hjalla - barnakvæði með teikningum eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur
(Heimskringla, 1960)
Böðvar Guðlaugsson höfundur og Sigrún Guðjónsdóttir myndskreytti.
Í viðtali í dagblaðinu Tímanum í apríl 1974 segir höfundur m.a. “Það kom meira að segja út eftir mig kver með barnakvæðum eingöngu og hét sú bók Glatt á hjalla. Hún var myndskreytt með teikningum eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur listmálara. Það er skemmst af þessum myndum að segja, að þær eru framúrskarandi góðar, enda áttu þær áreiðanlega mikinn þátt i því að afla bókinni vinsælda hjá ungu kynslóðinni.”
Í bókinni eru 5 kvæði.

22. desember Jólabókin - 1947(Helgafell, 1947)Sigurjón Jónsson læknir sá um útgáfuna (bjó til prentunar) og Halldór Pétu...
22/12/2025

22. desember

Jólabókin - 1947
(Helgafell, 1947)
Sigurjón Jónsson læknir sá um útgáfuna (bjó til prentunar) og Halldór Pétursson myndskreytti.
Þessi bók er hluti af seríu sem kom út vegum útgáfunnar Helgafell og inniheldur blöndu af kvæðum, sögum og fróðleik sem átti að stytta börnum stundir á jólunum.

Address

Kirkjuteigi 24
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 08:00 - 14:10
Tuesday 08:00 - 14:10
Wednesday 08:00 - 14:10
Thursday 08:00 - 14:10
Friday 08:00 - 10:00

Telephone

+3544117444

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skólasafn Laugarnesskóla posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Skólasafn Laugarnesskóla:

Shortcuts

Share