23/11/2025
Takk fyrir komuna! ✨
Í vikunni fór fram sameiginlegur fundur Verkalýðsmálaráðs og Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar um stöðu kynjajafnréttis á Íslandi í tilefni Kvennaársins.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Steinunn Bragadóttir fóru yfir nýjustu kyngreindu tölfræðina - um atvinnuþátttöku, laun, áhrif barneigna, stöðu kvenna á vinnumarkaði og kynbundið ofbeldi. Tölfræðin sýnir skýrt að kynjamunur birtist á mörgum sviðum samfélagsins, allt frá leikskólamálum til lífeyris.
Í umræðunum ræddu kjörnir fulltrúar - Heiða Björg Hilmisdóttir og Víðir Reynisson - meðal annars framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum sem nú liggur fyrir þinginu og mikilvægi þess að meta virði kvennastarfa með sanngjörnum hætti - sérstaklega í opinberri þjónustu þar sem stór hluti kvenna starfar.
Fundurinn undirstrikaði að verkefnin eru mörg og að mikilvægt er að halda áfram markvissri jafnréttisbaráttu.
Takk öll fyrir að taka þátt!