24/06/2022
Barnavernd Reykjavíkur er flutt í nýtt húsnæði að Ármúla 4. Húsnæðið er sérsniðið að þörfum foreldra og barna sem þurfa á aðstoð Barnaverndar að halda.
Við erum gríðarlega ánægð með nýja húsnæðið, sem uppfyllir allar kröfur fyrir starfsemi eins og okkar. Stoltust erum við að fjölskyldurýminu okkar þar sem starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur sinna umgengni undir eftirliti. Er hér fyrst og fremst um að ræða umgengni kynforeldra og nákominna við börn sem eru vistuð utan heimilis, ýmist í tímabundnu eða varanlegu fóstri. Í aðstæðum sem þessum skiptir máli að staðsetningin taki vel á móti þeim með hlýleika og að til staðar sé afþreying við allra hæfi sem geti gert tímann á staðnum ánægjulegri og að þeirri gæðastund sem allir aðilar eiga rétt á. Fjölskyldurýmið okkar er vel búið húsgögnum og leikföngum, fyrir börn á öllum aldri. Þar er hægt að geta átt gæðastundir saman í hlýlegu og öruggu umhverfi en stutt er við foreldra og börn í umgengninni og tryggt að hún sé sem ánægjulegust.
Starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur hafa lagt hjarta og sál í að gera fjölskyldurýmið eins hlýlegt og kostur er og hafa notið mikils velvilja frá fyrirtækjum sem og vinum og vandamönnum með leikföng og aðra afþreyingu. Fyrir þann velvilja verðum við ávallt þakklát. Kærar þakkir Velferðarsvið, Epal, Ilva, Playroom, Valhneta, Petit, Heiddis Helgadottir - Art prints og Birtingur