29/12/2022
Við á Höfuðborgarstofu óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir árið sem nú er að líða. Sjáumst hress á nýju ári!
Höfuðborgarstofa heyrir undir Menningar og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar. Stofan ber ábyrgð á heildarkynningu Reykjavíkur á sviði ferðamála.
Reykjavík
101
Be the first to know and let us send you an email when Höfuðborgarstofa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.
Send a message to Höfuðborgarstofa:
Miðborgin verður sett í sérstakan sumarbúning og þar verður margt skemmtilegt um að vera í tengslum við verkefnið. Hreinsunarátak er nú þegar farið af stað og garðyrkjan er í óða önn að undirbúa að planta út sumarblómunum.
Þessa dagana vinna verkefnastjórar Sumarborgarinnar að dagskrá í samvinnu við listafólk og rekstraraðila í miðborginni. Þar verður eitthvað í boði fyrir alla, fjölskyldufólk, ungt fólk og eldra fólk.
Hryggjarstykkið í þessari vinnu er samvinna borgarinnar og rekstraraðila í miðborginni. Við höfum ákveðið að taka höndum saman til að vekja athygli á þeirri fjölbreytni sem er í miðborginni. Hvergi er eins mikið af veitingastöðum, verslunum, menningu og annarri þjónustu á einum og sama staðnum eins og í miðborg Reykjavíkur. Einnig verðum við með stútfullt og ítarlegt viðburðadagatal svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í miðborginni.
Borgin fer að breyta um ásýnd í rólegheitum. Fólk ætti að fara að upplifa breytingarnar strax upp mánaðamótum. Við ætlum að koma fyrir stólum og borðum hér og þar svo fólk geti setið og slakað á. Við ætlum að taka fyrir svæði sem fólk veitir almennt ekki mikla athygli eins og torg og opin svæði og lyfta þeim upp og gera þau meira aðlaðandi. Markmiðið er að miðborgin verði að skemmtilegum stað þar sem allir geta notið sín.