Loftslagsráð - Icelandic Climate Council

Loftslagsráð - Icelandic Climate Council Hlutverk Loftslagsráðs er að veita stjórnvöldum aðhald og ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir

Loftslagsráð byggir starf sitt og miðlun á viðurkenndri vísindalegri þekkingu á sviði loftslagsmála. Loftslagsráð áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir og ummæli hér af síðunni sem eru óviðeigandi, niðrandi eða ósæmileg.

06/08/2026

Ljómandi umfjöllun um skyldur Íslands og annarra ríkja í loftslagsmálum í Speglinum undanfarna daga, með viðtölum við Dr. Bjarna Má Magnússon. Sjá tengla hér👇

„Niðurstaðan er sú að skuldbindingar ríkja á þessu sviði takmarkast ekki við loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna og Parí...
31/07/2026

„Niðurstaðan er sú að skuldbindingar ríkja á þessu sviði takmarkast ekki við loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna og Parísarsamninginn. Þær leiða einnig af venjurétti þjóðaréttar, öðrum alþjóðlegum umhverfissamningum, hafrétti, og alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum.“

Skýr og upplýsandi umfjöllun í Vísi um hið ársgamla tímamótaálit Alþjóðadómstólsins um skyldur ríkja vegna loftslagsbreytinga, með viðtali við Dr. Bjarna Má Magnússon sem unnið hefur álitsgerð um álitið fyrir Loftslagsráð, og hvað það þýðir fyrir Ísland.

Sérfræðingur í loftlagsrétti segir ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins um skyldur ríkja vegna loftslagsbreytinga marka tímamót og skipta miklu máli fyrir Ísland. Álitið kalli á breytta lagalega sýn og niðurstaðan geti haft þýðingu fyrir loftlagsmarkmið Íslands, endursendi...

20/07/2026

Loftslagsmál varða öll svið samfélagsins. Skyldur ríkja til að grípa til ýtrustu aðgerða gegn loftslagsbreytingum byggja á víðtækum rétti fólks, s.s. til lífs, heilbrigðis og öryggis.

Nú í vikunni er ár liðið frá þessu einróma tímamótaáliti Alþjóðadómstólsins um skyldur ríkja í loftslagsmálum.

Dr. Bjarni Már Magnússon lögfræðingur hefur skrifað fyrirtaks álitsgerð fyrir Loftslagsráð um það hvað þetta álit þýðir fyrir Ísland. Þar kemur margt stórmerkilegt fram. Sjá hér 👇

15/07/2026

Framræst votlendi er stærsta uppspretta losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Hægt gengur að endurheimta votlendi og nú þarf í raun þjóðarátak. Um 33 þúsund km af skurðum voru grafnir á liðinni öld, eða um 25 hringvegir, og mikið af framræstu landi er ekki í notkun sem beitar- eða ræktarland. Endurheimt votlendis er einhver besta aðgerð sem Íslendingar geta efnt til í þágu loftslagsmála og aukinnar líffræðilegrar fjölbreytni. Samantektin er hér efst í athugasemdum 👇

Mikilvægt er að umfjöllun um loftslagsmál grundvallist á staðreyndum. Hér gefur að líta nokkur staðreyndaskjöl um samfél...
11/05/2026

Mikilvægt er að umfjöllun um loftslagsmál grundvallist á staðreyndum. Hér gefur að líta nokkur staðreyndaskjöl um samfélagslosun á Íslandi. Skjölin sýna magn og þróun losunar á mikilvægum sviðum þjóðlífsins, á hnitmiðaðan og samræmdan hátt.

STAÐREYNDA-SKJÖL Álit ráðsins Mikilvægt er að umfjöllun um loftslagsmál grundvallist á staðreyndum. Markmið sem sett eru um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og tilheyrandi aðgerðaráætlanir þurfa að grundvallast á skýrri vitneskju um magn losunar frá ólíkum sviðum s...

Loftslagsráð telur vísbendingar um breytingar á Veltihringrás Atlantshafsins það afgerandi að þegar þurfi að bregðast vi...
05/05/2026

Loftslagsráð telur vísbendingar um breytingar á Veltihringrás Atlantshafsins það afgerandi að þegar þurfi að bregðast við með stórauknum aðgerðum.

Draga þarf hratt og markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka bindingu kolefnis og standa vörð um ítrustu markmið Parísarsamningsins.

Hefur Loftslagsráð sent Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra minnisblað um viðbrögð tengd veikingu og mögulegu hruni Veltihringrásarinnar.

ERINDI OG MINNISBLÖÐ Álit ráðsins 29. apríl 2026 Minnisblað til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um viðbrögð tengd veikingu og mögulegu hruni Veltihringrásar Atlantshafsins Nýjar og nýlegar rannsóknir gefa sterkar vísbendingum um breytingar á Veltihringrás Atlantshafsins (A...

Röngum upplýsingum um loftslagsmál er skipulega komið á framfæri að mati skýrslu rannsóknarnefndar ástralska þingsins. U...
20/04/2026

Röngum upplýsingum um loftslagsmál er skipulega komið á framfæri að mati skýrslu rannsóknarnefndar ástralska þingsins. Uppsprettu rangra upplýsinga er almennt ekki að leita, til einstaklinga, heldur til kerfisbundinnar viðleitni tengdra hagsmunaaðila til þess að afvegaleiða umræðuna.

Ástralska þingið hefur rannsakað skipulagða upplýsingaóreiðu í loftslags- og orkumálum og komist að þeirri niðurstöðu að hagsmunaaðilar dreifi markvisst röngum upplýsingum til að tefja aðgerðir.

Address

Suðurlandsbraut 24
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Loftslagsráð - Icelandic Climate Council posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Loftslagsráð - Icelandic Climate Council:

Shortcuts

Share