Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar

Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar Meginverkefni stjórnar verkalýðsmálaráðs er að standa að og styðja við virkt samráð fory

Pólitískar hreinsanir í Ráðhúsi Reykjavíkur ....
03/07/2026

Pólitískar hreinsanir í Ráðhúsi Reykjavíkur ....

Í Viðreisn, líkt og öðrum stjórnmálaflokkum, er margt gott fólk. Þessu verður ekki neitað. En Viðreisn er samt á köflum ákaflega þreytandi fyrirbæri. Ekki vegna þess að Viðreisn telji að sín stefna sé best, öðrum flokkum finnst líka að sín stefna sé best. Og stundum er s...

https://verdbolga.net/frettir/solveig-anna-esb-vextir-verkafolk?fbclid=IwY2xjawSP9d9leHRuA2FlbQIxMABicmlkETBxRzFqbUltNnp...
05/06/2026

https://verdbolga.net/frettir/solveig-anna-esb-vextir-verkafolk?fbclid=IwY2xjawSP9d9leHRuA2FlbQIxMABicmlkETBxRzFqbUltNnpUNjRIZzhCc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHkJ2BTJ7dFMVhvpfHnGATY9QojUl8DVEl8kTDLpW6V5J0GkGev4wfKMRamQU_aem_KXAlYNiWISa8rEJZNfnQpA

"Vextirnir sem íslenskir verkamenn borga á húsnæðislánum eru tvöfaldir þeir sem danskir verkamenn borga. Verðbólgan sem bitnar á matar-körfunni er rúmlega tvöföld evrusvæðismeðaltal. Verðtryggingin sem bítur á langtíma höfuðstól lána er sérafurð íslenska hagkerfisins — engin önnur norræn þjóð býr við slíkt. Þetta eru ekki ESB-rök. Þetta eru verkalýðsrök."

24 mánuðir aftur, 12 mánuðir fram. Áhrifaþættir flokkaðir eftir ríki, gengi, hrávöru og innlendum þáttum. Auk orðræðugreiningar á öllum 11 framboðunum til borgarstjórnar Reykjavíkur 2026.

15/05/2026

Kæru landsmenn, nú styttist heldur betur í stóru stundina, kosningar á morgun um allt land!

Sýndu stuðning og uppfærðu prófílmyndina þína með ramma Samfylkingarinnar. 🌹

Hlekkur á ramma í athugasemd👇

Baráttan heldur áfram!Gylfi Þór GíslasonÁgæta launafólk í dag 1. maí á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins  minnir hann...
01/05/2026

Baráttan heldur áfram!
Gylfi Þór Gíslason
Ágæta launafólk í dag 1. maí á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins minnir hann okkur á að réttindi launafólks voru ekki gefin, þau voru unnin. Þau voru unnin með samstöðu, þrautseigju og kjarki fólks sem neitaði að sætta sig við óréttlæti.

Í dag stöndum við frammi fyrir nýjum áskorunum. Því að þrátt fyrir miklar framfarir sjáum við enn vaxandi ójöfnuð, ótryggan vinnumarkað og aukið álag á fólk sem heldur samfélaginu gangandi – hjúkrunarfræðinga, kennara, lögreglan, verkafólk og svo marga fleiri. Þetta fólk á ekki aðeins skilið þakkir – það á skilið réttlát kjör og raunverulegt öryggi.

Við verðum að spyrja: Hvers konar samfélag viljum við byggja? Viljum við samfélag þar sem afkoma fólks ræðst af tilviljun eða stöðu? Eða viljum við samfélag þar sem allir fá tækifæri til að lifa mannsæmandi lífi, óháð uppruna eða stétt?

Fólk vill réttlátt samfélag. Samfélag þar sem vinnan er virt. Þar sem laun duga fyrir lífsviðurværi. Þar sem húsnæði er ekki munaðarvara heldur mannréttindi. Þar sem enginn þarf að velja á milli þess að borga reikninga eða lifa mannsæmandi lífi.

Baráttan í dag snýst ekki aðeins um krónur og aura. Hún snýst um virðingu. Hún snýst um að tryggja að rödd launafólks heyrist – og skipti máli.

Við í Verkalýðsmálaráði Samfylkingarinnar munum halda áfram að minna forystu Samfylkingarinnar á að rót Samfylkingarinnar á að ver barátta fyrir réttindum launafólks, félagslegu öryggi og jöfnum tækifærum.

En þessi barátta er ekki verkefni eins hóps. Hún er verkefni okkar allra. Það hefur sýnt sig í gegnum söguna að þegar við stöndum saman, þá náum við árangri. Þegar við látum ekki skipta okkur upp, þá breytum við samfélaginu.

Kæru félagar, sagan kennir okkur að ekkert breytist nema fólk krefjist þess. Þess vegna er 1. maí ekki bara dagur til að minnast – hann er dagur til að hreyfa við hlutunum.

Ágæta launafólk um land allt, látum rödd okkar heyrast. Stöndum saman. Berjumst áfram fyrir réttlæti.

Gleðilegan baráttudag!



Gylfi Þór Gíslason

Formaður Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar.

01/05/2026

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, skrifar:

Á 1. maí, baráttudegi launafólks, fögnum við því að íslenskt samfélag stendur á sterkum grunni. Sá grunnur er ekki tilviljun. Hann byggir á baráttu kynslóðanna; á dugnaði, fórnfýsi og hugsjónum þeirra sem á undan okkur fóru. Velferðarsamfélag nútímans er afrakstur þessa fólks, bein afleiðing einbeitts vilja til breytinga og framfara í nafni lífsgæða sem einkennt hefur alla sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar. Við, almenningur í landinu, berum ábyrgð á að verja það sem áunnist hefur og til þessarar skuldbindingar okkar vísar yfirskrift dagsins: Styrkur okkar er velferð allra.

Þetta er ekki slagorð. Þessi orð lýsa grundvelli samfélags sem skilað hefur almenningi á Íslandi lífskjörum sem standast samanburð við þau sem best þekkjast í heiminum.

Ávarpið allt má lesa í fyrstu athugasemd.

25/04/2026

ASÍ og BSRB halda opinn fund um almenna íbúðakerfið og ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu í aðdraganda

10/04/2026

Hugleiðing inn í helgina.

"Opinber og víðtæk pólitísk athygli sem er margvísleg kynbundiin mismunun réttilega hefur kaffært og gert óvar lítið ú rstöðu og erfiðleikum annarra þjóðfélagshópa sem urðu útundan í efnahagsþróun eða döguðu uppi í umrót tímans. Þeir leita nú á pólitísk mið utan frjálslyndis og jöfnuðar. Það framkallar niðurbælda reiði sem fáir vita af. Illa launað,réttindarýrt verkafólk finnur enga pólitíska talsmenn, því gömlu málsvararnir eru uppteknir annars staðar.
Popúlismi og hugarórar afturhalds og þjóðernishyggju eiga greiðan aðgang að skoðanamótun þessa fólks.
Er þannig komið fyrir jafnaðarmönnum að starf þeirra sé borið upp af upplýstu, menntuðu, vel meinandi og réttsýnu fólki sem lesiðð hefur um réttleysi og bágborin kjör annarra en deildir þeim ekki sjálft,og finnur því ekki leið til að tengjast lífsbaáttu þeirra." (Þröstur Ólafsson horfin heimur bls 165)

https://heimildin.is/grein/26417/verdbolgan-betri-leid-er-i-bodi/"Ríkisstjórnin þarf að hífa sig upp úr þeirri slepjuleg...
04/04/2026

https://heimildin.is/grein/26417/verdbolgan-betri-leid-er-i-bodi/

"Ríkisstjórnin þarf að hífa sig upp úr þeirri slepjulegu hægri pólitík að hallalaus fjárlög skipti öllu máli fyrir lækkun verðbólgunnar. Það gera þau ekki, heldur eykur niðurskurður í opinbera geiranum á vandann sem búið er að hlaða upp með miklum innviðaskuldum í samfélaginu á liðnum áratugum nýfrjálshyggju-hagfræðinnar. Sú pólitík felur í sér langtíma hnignun innviða og velferðarkerfis."

Reynslan hefur sýnt að hávaxtastefnan sem hefur verið í aðalhlutverki í baráttunni við verðbólguna skilar ekki góðum árangri. Við erum með hærri verðbólgu en grannríkin þrátt fyrir miklu hærra vaxtastig.

Address

Hallveigarstíg 1
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share