Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið tekur ekki á móti fyrirspurnum í gegnum samfélagsmiðla. Sé þess óskað, er hægt að senda erindi á [email protected]

Markmið menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytisins er að virkja kraft íslensku þjóðarinnar enn frekar svo hugvitið auðgi bæði andann og hagkerfið til framtíðar.

🥳 Dagskráin hefst kl. 15 í alrýminu á 1. hæð í Reykjastræti 8.Boðið verður upp á brauðtertu, tónlist og sjónlist, en með...
18/08/2026

🥳 Dagskráin hefst kl. 15 í alrýminu á 1. hæð í Reykjastræti 8.
Boðið verður upp á brauðtertu, tónlist og sjónlist, en með dagskránni vill ráðuneytið vekja athygli á íslenskri matarmenningu og þeim lifandi hefðum sem þróast og taka breytingum með samfélaginu. Ekki dugir minna en rúmlega 5 metrar af brauðtertu svo líklega er um lengstu brauðtertu landsins að ræða.

🍴 „Með þessu viljum við sameina matarmenningu, hönnun, myndlist og tónlist, enda fer þetta allt ákaflega vel saman. Brauðtertan er líka sérstök að því leyti að hún hefur ekki aðeins sameinað kynslóðir heldur má líta á hana sem ákveðið listform, líkt og veisluborð víða um land bera glöggt vitni um. Hún er dæmi um lifandi hefð sem tekur stöðugum breytingum og þróast með þjóðinni – hefð sem sameinar, mettar og virkjar sköpunargleðina,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að þessu tilefni í tilkynningu á vef ráðuneytisins.

🎨 Milli kl. 15 og 17 verður hægt að ganga inn í Reykjastræti 8 frá innganginum á móti Hörpu. Á Hörputorgi verður jafnframt fjölbreytt dagskrá og því tilvalið að rölta þaðan yfir í ráðuneytið, bragða á brauðtertu og skoða listasýninguna Brauðtertan lifir.

🎉Líklega lengsta brauðterta landsins verður á borðum í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu á Menningarnótt🎉Ver...
15/08/2026

🎉Líklega lengsta brauðterta landsins verður á borðum í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu á Menningarnótt🎉

Verið velkomin!

15/08/2026

Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum Sproti, Vöxtur og Markaður.

⏰Umsóknarfrestur er 15. september 2026 kl. 15:00.

💬Starfsfólk Tækniþróunarsjóðs verður með opna viðtalstíma í Engjarós í Grósku á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl 10:00-14:30 frá 11. ágúst til og með 10. september.

☎️Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10:00-12:00 í síma 515 5800

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins

Nánari upplýsingar á vefsíðu Tækniþróunarsjóðs (hlekkur í athugasemd).

💦Fjöldafreyðibað á fimmtudag - hefur þú baðað þig í ölkelduvatni?
23/06/2026

💦Fjöldafreyðibað á fimmtudag - hefur þú baðað þig í ölkelduvatni?

14 hillukílómetrar! Mikilvægum áfanga í húsnæðismálum Þjóðskjalasafns var fagnað með opnun nýs varðveisluhúsnæðis í Sund...
18/06/2026

14 hillukílómetrar!
Mikilvægum áfanga í húsnæðismálum Þjóðskjalasafns var fagnað með opnun nýs varðveisluhúsnæðis í Sundaborg í Reykjavík. Húsnæðið rúmar 14 hillukílómetra af skjölum sem komið er fyrir í tvílyftu rafdrifnu hillukerfi sem er hið fyrsta sinnar tegundar á landinu.

🎉Vel heppnuð ráðstefna um menningu og listir á landsbyggðunum🎉Ráðstefnan Skapandi Austurland fór fram á Eskifirði 11. jú...
17/06/2026

🎉Vel heppnuð ráðstefna um menningu og listir á landsbyggðunum🎉

Ráðstefnan Skapandi Austurland fór fram á Eskifirði 11. júní og var afar vel sótt. Þar var sjónum beint að stöðu, tækifærum og framtíð lista og menningar á landsbyggðunum.

Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í ráðuneytinu, hélt erindið „Íslenskt menningarlíf – stefna, stuðningur og starfsumhverfi“, þar sem hún fjallaði um aðkomu ráðuneytisins að málaflokknum á breiðum grundvelli.

Dagskráin var fjölbreytt og lifandi, með erindum, pallborðsumræðum, vinnustofum og kynningum frá Rannsóknarsetri skapandi greina og listamiðstöðvum. Að ráðstefnu lokinni var farið í heimsókn á myndlistarsýningu á Reyðarfirði og í Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði.

Sérstakur þakklætisvottur var færður Signýju Ormarsdóttur, verkefnastjóra menningarmála hjá Austurbrú, sem lætur af störfum í sumar eftir aldarfjórðung í starfi.

Ráðstefnan var haldin að frumkvæði Austurbrúar, ráðuneytisins og Menningarstofu Fjarðabyggðar — kærar þakkir fyrir samtalið, innblásturinn og frábæra þátttöku.

Address

Reykjastræti 8
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00
Saturday 11:00 - 00:00
Sunday 11:00 - 00:00

Telephone

+3545459600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share