Míla

Míla Míla er á hraðaferð við að byggja upp, viðhalda og reka öfluga fjarskiptainnviði á Íslandi. Við erum ekki á hraðferð – við erum á hraðaferð.

Við erum að vanda til verka við að tengja Ísland við umheiminn.

Fyrsta Mílu-lopapeysan hefur litið dagsins ljós og afhenti hún Tinna Ósk honum Erik forstjóra fyrsta eintak 🧶Peysan er í...
05/06/2026

Fyrsta Mílu-lopapeysan hefur litið dagsins ljós og afhenti hún Tinna Ósk honum Erik forstjóra fyrsta eintak 🧶

Peysan er í réttum litum og fylgir auðvitað hönnunarstaðli Mílu. Erik forstjóri var fljótur að smella sér í peysuna og fór strax í ljósmyndatöku hjá Atla markaðsstjóra.

Þeir fengu innblástur af nýlegri markaðsherferð Íslandsbanka þar sem fótboltamaðurinn Rúrik fékk að njóta sín *úti* í íslenskri náttúru í Íslandsbanka-lopapeysu (sem eiga þessa ljósmynd hægra megin).

Lengi lifi íslenski lopinn!

//Ljósmyndinni af Erik hefur verið breytt með gervigreind með leyfi ljósmyndara og módels.

Það er laust starf hjá okkur - og hjá okkur er gott að vinna. Mötuneyti, næg bílastæði, hleðslustöðvar og miðlæg staðset...
03/06/2026

Það er laust starf hjá okkur - og hjá okkur er gott að vinna. Mötuneyti, næg bílastæði, hleðslustöðvar og miðlæg staðsetning.

Hvernig ert þú í reikningshaldi? 🧾

Við leitum að öflugum og nákvæmum einstaklingi til að taka að sér ábyrgð á bókhaldi og reikningsskilum fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf á Fjármálasviði Mílu. Af hverju að vinna hjá Mílu? Míla er íslenskt fjarskiptainnviðafyrirtæki og veitir ísl...

Míla var stoltur styrktaraðili verðlaunahátíðarinnar Rafíþróttamaður ársins 2026 þar sem fremsta rafíþróttafólk landsins...
28/05/2026

Míla var stoltur styrktaraðili verðlaunahátíðarinnar Rafíþróttamaður ársins 2026 þar sem fremsta rafíþróttafólk landsins var heiðrað fyrir framúrskarandi árangur og framlag sitt til íslensks rafíþróttasamfélags. Viðburðurinn fór fram í hátíðlegu umhverfi hjá Next Level Gaming rafíþróttamiðstöðinni og vakti mikla athygli innan samfélagsins. Þetta var í fyrsta sinn sem verðlaunin voru veitt og eru þau skipulögð af RÍSÍ - Rafíþróttasamband Íslands.

„Við hjá Mílu erum afar ánægð að taka þátt í að styðja við rafíþróttasamfélagið á Íslandi. Öflugir og áreiðanlegir innviðir skipta miklu máli fyrir þróun rafíþrótta og við sjáum spennandi framtíð í þessum geira,“ sagði Ingvar Bjarnason, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Mílu, sem veitti verðlaunin Rafíþróttakarl ársins.

Á verðlaunahátíðinni voru veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum og framlagi einstaklinga, liða og samfélagsins í heild fagnað. Mikill metnaður og fagmennska einkenndi bæði skipulag viðburðarins og þá keppendur sem voru heiðraðir.

https://www.mila.is/frettir/rafithrottamadur-arsins-2026

Hvað þýðir sjálfbærni í raun við rekstur fjarskiptainnviða?Ný sjálfbærniskýrsla Mílu er komin út. Þar má finna helstu áh...
05/05/2026

Hvað þýðir sjálfbærni í raun við rekstur fjarskiptainnviða?

Ný sjálfbærniskýrsla Mílu er komin út. Þar má finna helstu áherslur, aðgerðir og árangur, m.a. hvernig Míla hefur:
🔋 Stöðvað síkeyrandi dísilstöðvar við rekstur fjarskiptainnviða
♻️ Tryggt aflögðum tækjahúsum framhaldslíf
🚛 Bætt hlutfall umhverfisvænni ökutækja
🤰 Tryggt launað leyfi starfsfólks mánuði fyrir barnsburð
🧑‍🏫 Miðlað fræðslu um hlutverk og mikilvægi fjarskiptainnviða

Skýrslan er hnitmiðuð og auðlesin og sýnir skýra mynd af áherslum og verkefnum ársins. Kynnið ykkur skýrsluna hér 👇

Sjálfbærni er þar af leiðandi órjúfanlegur þáttur í fjarskiptastarfsemi og liður í því að Míla sinni hlutverki sínu til framtíðar.

Hvernig verða næstu kynslóðir farsímaneta og hvenær má búast við þeim? Vörustjóri Mílu, Jósef Þeyr, fjallar um tíð og st...
30/04/2026

Hvernig verða næstu kynslóðir farsímaneta og hvenær má búast við þeim?

Vörustjóri Mílu, Jósef Þeyr, fjallar um tíð og strauma farneta í nýrri grein.

5G og 6G brúin yfir í nýja kynslóð fjarskipta30. apríl 2026Hingað til hafa fjarskipti snúist að miklu leyti um aukinn gagnahraða en nú horfir tæknin í nýjar áttir. Á næstu árum mun fjarskiptaþróunin mótast í ríkara mæli af nákvæmari, sveigjanlegri og greindari netum, en þe...

Hvernig snertir gervigreindin á fjarskiptum og farsímakerfum? Á ráðstefnunni Mobile World Congress í ár var gervigreind ...
22/04/2026

Hvernig snertir gervigreindin á fjarskiptum og farsímakerfum?

Á ráðstefnunni Mobile World Congress í ár var gervigreind að stimpla sig inn og einn vörustjóra Mílu, Jósef Þeyr Sigmundsson, fer yfir málið hér 👇

Þegar gervigreindin tekur stjórnina á netinu22. apríl 2026Hin árlega Mobile World Congress ráðstefna í Barselóna fór fram í byrjun mars, en þar var kynnt það nýjasta í tækniþróun fjarskipta. Í ár var gervigreindin í brennidepli sem aldrei fyrr, en í nýju og veigameira hlutver...

Ljóstengivélar fá framhaldslíf hjá Raftækniskólinn / Tækniskólinn ⚡️Míla var að uppfæra sinn búnað fyrir ljósleiðarasplæ...
20/04/2026

Ljóstengivélar fá framhaldslíf hjá Raftækniskólinn / Tækniskólinn ⚡️

Míla var að uppfæra sinn búnað fyrir ljósleiðarasplæsingar til að auka afköst og gæði. Eldri búnaðurinn virkar fínt og það hefði verið synd að henda honum. Jónas og Jón Grétar fóru því af stað og heyrðu í Raftækniskólanum. Þar tóku Einar Gunnar og Guðrún Ýrr vel í hugmyndina að gefa búnaðinum gott framhaldslíf við námið þar.

Inga Helga yfirlögfræðingur Mílu tók þátt í pallborðsumræðum á Iðnþingi 2026, þar sem fjallað var um einföldun regluverk...
25/03/2026

Inga Helga yfirlögfræðingur Mílu tók þátt í pallborðsumræðum á Iðnþingi 2026, þar sem fjallað var um einföldun regluverks og áhrif þess á atvinnulífið.

Í umræðunni var lögð áhersla á að einföldun snúist ekki eingöngu um færri reglur, heldur að þær virki í framkvæmd og styðji við uppbyggingu innviða, samkeppnishæfni og fjárfestingu.
Það er jákvætt að sjá aukna áherslu á fjarskiptainnviði í þessari mikilvægu umræðu um framtíð íslensks atvinnulífs.


Horfið á umræðuna hér 👇

Míla tók þátt í Iðnþingi ársins 2026 og tók Inga Helga yfirlögfræðingur Mílu þátt í umræðu þar um heimatilbúnar hindranir.

Okkur vantar liðsauka í hugbúnaðarþróun - sjá hlekk 👇
23/03/2026

Okkur vantar liðsauka í hugbúnaðarþróun - sjá hlekk 👇

Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, hefur gaman af því að takast á við flókin verkefni og leysa úr krefjandi áskorunum. Ef þú hefur brennandi áhuga á hönnun og þróun hugbúnaðarkerfa, vilt vinna í líflegu og skemmtilegu umhverfi og taka þátt í að styðja við mi...

Okkur vantar liðsauka í rekstur upplýsingatæknikerfa. Hefur þú reynslu af kerfisstjórn? Sæktu um stöðuna hér 👇
02/03/2026

Okkur vantar liðsauka í rekstur upplýsingatæknikerfa. Hefur þú reynslu af kerfisstjórn? Sæktu um stöðuna hér 👇

Ef þú hefur brennandi áhuga á rekstri net- og upplýsingatæknikerfa, langar til að vinna í spennandi umhverfi og styðja við rekstur mikilvægra innviða þá viljum við heyra frá þér. Starfið felur í sér að taka þátt í að þróa og reka upplýsingatækniumhverfi Mílu, bæði ne...

Address

22-30 Stórhöfði
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Míla posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Míla:

Share