Hugverkastofan

Hugverkastofan Hugverkastofan heldur utan um skráningar og umsóknir um einkaleyfi, vörumerki, hönnun og byggðarmerki Stofnunin tók til starfa 1. nr. 24/2006.

Hugverkastofan aðstoðar fólk við að breyta hugmyndum sínum í verðmæti. Hugverk er að finna í öllum fyrirtækjum en þau eru ein mikilvægasta auðlindin okkar. Með því að skrá, upplýsa og veita ráðgjöf, þá spilum við stórt hlutverk í að vernda og hámarka verðmæti hugverka á Íslandi. Hugverkastofan er ríkisstofnun undir yfirstjórn atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. júlí 1991 og tók þá við hlutverki ei

nkaleyfa- og vörumerkjadeildar iðnaðarráðuneytisins. Skipulag og starfssvið stofnunarinnar markast af auglýsingu nr. 187/1991 og reglugerð nr. 188/1991. Stofnunin fer með málefni varðandi einkaleyfi, vörumerki, hönnunarvernd, byggðarmerki og önnur hliðstæð réttindi. Frá árinu 2006 hefur faggildingarsvið ISAC starfað innan Hugverkastofunnar. ISAC er skammstöfun á ensku heiti sviðsins, "Icelandic Board for Technical Accrediation". Faggildingarsvið er sjálfstætt starfandi svið innan Hugverkastofunnar og markast starfsemi þess af lögum um faggildingu o.fl.

Það hafa aldrei fleiri umsóknir um skráningu íslenskra vörumerkja borist Hugverkastofunni í júlímánuði en í ár, en alls ...
13/08/2026

Það hafa aldrei fleiri umsóknir um skráningu íslenskra vörumerkja borist Hugverkastofunni í júlímánuði en í ár, en alls bárust 90 umsóknir í nýliðnum mánuði. Nú eru nærri átta þúsund íslensk vörumerki skráð hér á landi og hafa þau aldrei verið fleiri.

Einnig hefur náðst að stytta málsmeðferðartíma umsókna verulega og nú er algengt að niðurstaða liggi fyrir á örfáum dögum, í stað nokkurra vikna áður. Styttri afgreiðslutími skýrist meðal annars af því að Hugverkatíðindi, þar sem skráð vörumerki og önnur hugverkaréttindi eru gerð aðgengileg almenningi, eru nú gefin út vikulega í stað mánaðarlega áður. Þá hefur nýtt rannsóknakerfi til að ákvarða skráningarhæfi vörumerkja einnig stuðlað að styttri málsmeðferðartíma. Styttri málsmeðferð þýðir að umsækjendur fá fyrr úr því skorið hvort umsókn uppfylli skilyrði fyrir skráningu og geta þar með skipulagt markaðssetningu og annan rekstur með meiri fyrirvara og öryggi.

„Þetta er mjög ánægjuleg þróun sem endurspeglar vaxandi vitund íslenskra fyrirtækja um mikilvægi þess að verja þau verðmæti sem felast í vörumerkjum, hvort sem um ræðir fyrirtækjaheiti, vöruheiti, lógó eða slagorð," segir Borghildur Erlingsdottir, forstjóri Hugverkastofunnar. „Við viljum tryggja að afgreiðslan hjá okkur haldi í við þennan aukna áhuga og það hefur tekist og gott betur."

30/07/2026

Það er gaman að segja frá því að tveir umsækjendur frá Íslandi hafa hlotið námsstyrk og annan stuðning frá Evrópsku einkaleyfastofunni (European Patent Office) til að þreyta EQE-hæfniprófið til að verða löggiltir evrópskir einkaleyfasérfræðingar (European Patent Attorney).

21/07/2026

Vörumerkjaskráning er einföld í meginatriðum en það eru nokkur atriði sem stundum valda misskilningi hjá umsækjendum og öðrum. Hér eru s*x slík atriði.

Vörumerkjaskráning er einföld í meginatriðum en það eru nokkur atriði sem stundum valda misskilningi hjá umsækjendum og ...
21/07/2026

Vörumerkjaskráning er einföld í meginatriðum en það eru nokkur atriði sem stundum valda misskilningi hjá umsækjendum og öðrum. Hér er farið yfir nokkur slík atriði.

Vörumerkjaskráning er einföld í meginatriðum en það eru nokkur atriði sem stundum valda misskilningi hjá umsækjendum og öðrum.

Nýsköpunarþing Íslands 2026 verður haldið fimmtudaginn 29. október næstkomandi í fyrirlestrarsalnum í Grósku.Í ár verður...
20/07/2026

Nýsköpunarþing Íslands 2026 verður haldið fimmtudaginn 29. október næstkomandi í fyrirlestrarsalnum í Grósku.

Í ár verður nýsköpun á landsbyggðinni í brennidepli og að venju verða Nýsköpunarverðlaun Íslands afhent á þinginu.

Takið daginn frá og skráið ykkur.

Við hlökkum til að sjá þig!

RANNÍS - Nýsköpunarsjóðurinn Kría - Íslandsstofa

Nýsköpunarþing Íslands 2026 verður haldið fimmtudaginn 29. október næstkomandi í fyrirlestrarsalnum í Grósku. Í ár verður nýsköpun á landsbyggðinni í brennidepli.

Evrópsku nýsköpunarverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Berlín 2. júlí. Verðlaunin í ár hlutu uppfinningamenn se...
17/07/2026

Evrópsku nýsköpunarverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Berlín 2. júlí. Verðlaunin í ár hlutu uppfinningamenn sem unnið hafa að þróun hafradrykkja, sandormsblóðrauða til læknisfræðilegra nota, malaríubóluefnis, endurvinnslu litíumrafhlaðna og flutningskerfis fyrir háspennujafnstraum.

Verðlaunin eru veitt af Evrópu einkaleyfastofunni (European Patent Office) uppfinningamönnum sem hafa fengið evrópsk einkaleyfi á uppfinningum sem hafa haft mikil jákvæð áhrif á samfélag, umhverfi eða atvinnulíf. Um er að ræða eina virtustu viðurkenningu á sviði nýsköpunar og hugverkaréttinda í Evrópu.

Evrópsku nýsköpunarverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Berlín 2. júlí síðastliðinn. Um er að ræða eina virtustu viðurkenningu á sviði nýsköpunar og hugverkaréttinda í Evrópu.

16/06/2026

Það er hægt að fá einkarétt á allskonar vörumerkjum með skráningu. Hvernig skráning hentar þér?

Flest lítum við þannig á að vörumerki sé nafn eða lógó fyrirtækis, vöru eða þjónustu. En það er hægt að skapa sér einkar...
15/06/2026

Flest lítum við þannig á að vörumerki sé nafn eða lógó fyrirtækis, vöru eða þjónustu. En það er hægt að skapa sér einkarétt á notkun allskonar vörumerkja með skráningu. Kynntu þér átta tegundir vörumerkja sem hægt er að skrá. Hvaða skráningar myndu henta þér?

Flest lítum við þannig á að vörumerki sé nafn fyrirtækis, vöru eða þjónustu eða lógó. En það er hægt að skapa sér einkarétt á notkun allskonar vörumerkja með skráningu. Hér eru átta tegundir vörumerkja sem hægt er að skrá. Hvaða skráningar myndu henta þér?

Address

Katrínartún 4
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 10:00 - 15:00

Telephone

+3545809400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hugverkastofan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Hugverkastofan:

Shortcuts

Share