Íbúaráð Laugardals

Íbúaráð Laugardals Íbúaráðs Laugardals er samráðsvettvangur hverfisins við Reykjavíkurborg.

Það er búið að opna fyrir umsóknir hjá Hverfissjóðum Reykjavíkurborgar 📥Lumar þú á góðu verkefni eða hugmynd? Kíktu þér ...
17/09/2024

Það er búið að opna fyrir umsóknir hjá Hverfissjóðum Reykjavíkurborgar 📥

Lumar þú á góðu verkefni eða hugmynd? Kíktu þér Hverfissjóðinnn.

Hverfissjóður Reykjavíkurborgar styrkir hverfisbundin félagasamtök, íbúa og aðra þá sem vilja leggja sitt af mörkum og standa fyrir hverfistengdum verkefnum og/eða viðburðum. Til dæmis: Hverfishátíðir, viðburði tengda jólahaldi eða öðrum hátíðum, sumarviðburði og svo má...

Kæru íbúar Íbúaráð Laugardals vekur athygli á auglýsingu að breytingu á deiliskipulagi vegna Laugardalur - Ævintýraborgi...
26/07/2023

Kæru íbúar

Íbúaráð Laugardals vekur athygli á auglýsingu að breytingu á deiliskipulagi vegna Laugardalur - Ævintýraborgir.

Auglýsingin birtist í Morgunblaðinu í dag, miðvikudaginn 26. júlí 2023. Tillagan er í kynningu frá 26. júlí 2023 til og með 7. september 2023. Gögn er hægt að skoða á síðunni, skipulagsgátt.is
Sjá eftirfarandi slóð: www.skipulagsgatt.is

Laugardalur – Ævintýraborgir
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 28. júní 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 29. júní 2023 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Laugardals. Í breytingunni sem lögð er til felst því að skilgreind er lóð fyrir Ævintýraborg, tímabundið leikskólaúrræði Reykjavíkurborgar. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Tillöguna má nálgast á vefnum, www.skipulagsgatt.is. Einnig má nálgast tillöguna hjá þjónustufulltrúa í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, mánudaga til fimmtudaga kl. 8:30–16:00 og föstudaga kl. 8:30–14:30 frá 26. júlí 2023 til og með 7. september 2023. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila í gegnum skipulagsgáttina eigi síðar en 7. september 2023. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda tölvupóst á [email protected]
mkv.

Nú fer að styttast í tunnuskiptin hjá okkur í Laugardalnum, en samkvæmt áætlun má búast við nýjum tunnum í ágúst. Mánuda...
10/07/2023

Nú fer að styttast í tunnuskiptin hjá okkur í Laugardalnum, en samkvæmt áætlun má búast við nýjum tunnum í ágúst.

Mánudaginn 10. júlí munu tunnuskipti hefjast í Vesturbæ, Miðborgin og Hlíðar koma þar á eftir, þá næst Laugardalur og endað í Háaleiti og Bústaðahverfi í fyrstu tveimur vikunum í september.

Meðfylgjandi er kort af tímasetningum tengdum tunnuskiptunum og allar frekari upplýsingar má nálgast á reykjavik.is/flokkum

Kæru íbúar Komin er lending með bætt umferðaröryggi yfir Sæbraut, sem tengir nýju Vogabyggð við þá eldri. Frekari upplýs...
10/05/2023

Kæru íbúar

Komin er lending með bætt umferðaröryggi yfir Sæbraut, sem tengir nýju Vogabyggð við þá eldri.

Frekari upplýsingar er að finna á meðfylgandi hlekk Reykjavíkurborgar

https://reykjavik.is/frettir/umferdaroryggi-baett-med-gongu-og-hjolabru-yfir-saebraut

Er það von okkar að framkvæmdirnar muni ganga hratt og vel fyrir sig svo unnt verði að tryggja umferðaröyggi fyrir öll sem allra fyrst, enda afar brýnt að svo verði!

Kæru íbúar Við minnum á að fresturinn til að senda inn erindi á dagskrá næsta fundar ráðsins er á morgun, föstudaginn 14...
13/04/2023

Kæru íbúar

Við minnum á að fresturinn til að senda inn erindi á dagskrá næsta fundar ráðsins er á morgun, föstudaginn 14. apríl. Einnig er hægt að koma á fundinn, sem verður næst mánudaginn 24. apríl kl. 16:30, og taka til máls undir dagskrárliðnum
"Málefni hverfsins", og ef við á getur ráðið í framhaldi af umræðunni ákveðið að setja málið/erindið formlega á dagskrá næsta fundar mánuði seinna.

Erindi skal senda á netfang ráðsins: [email protected]

Einnig viljum við hvetja öll í hverfinu til að kíkja við í Sólheimasafn um helgina, en Borgarbókasafn fagnar 100 ára afmæli sínu þessa dagana og verður okkar ástkæra bókasafn með viðburð á laugardaginn, 15.apríl frá kl. 10-15, eins og sjá má á hlekknum með færslunni 🙂

Tekið saman:

Frestur til að setja inn erindi á dagskrá er á morgun, 14. apríl 🙂

Sólheimasafn með viðburð á laugardaginn, 15. apríl frá 10-15 🙂

https://borgarbokasafn.is/vidburdir/born/100-ara-afmaeli-borgarbokasafnid-solheimum

03/04/2023

Kæru íbúar í Laugardal

Við vekjum athygli ykkar á því að næsti fundur ráðsins verður ekki fyrr en 24. apríl, en hefðbundinn fundardagur ráðsins hefði annars átt að vera 10. apríl sem er annar í páskum.

En það þýðir að til að senda inn erindi á ráðið þarf það að berast í síðasta lagi föstudaginn 14. apríl 🙂

Íbúaráðið sendir öllum íbúum páskakveðju og vonar að öll eigi góða páska framundan 🐣🌷

Kæru íbúar Reykjavíkurborg býður íbúum að leigja matjurtargarða á s*x stöðum í borginni. Auk þess hefur borgin nokkra ga...
02/03/2023

Kæru íbúar

Reykjavíkurborg býður íbúum að leigja matjurtargarða á s*x stöðum í borginni. Auk þess hefur borgin nokkra garða í Skammadal í Mosfellsbæ. Íbúar Laugardals geta falist eftir að leigja garð við enda Holtavegar innst við Grasagarðinn/Húsdýragarðinn.

Sólheimasafn býður upp á fræ til sáningar/forræktunnar og um að gera að stökkva á það góða boð.

Allar frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar, eða á hlekknum hér með færslunni :)

https://reykjavik.is/matjurtagardar?fbclid=IwAR1sUPWtPXOd12bPNfLiJbgypxM8fBaXz9XySI35bxi19T28IXWmUtouf1E

Einnig vill íbúaráðið vekja athygli á því að á morgun, 3. mars, er síðasti dagurinn til þess að setja mál á dagskrá næsta fundar ráðsins, sem fer fram mánudaginn 13. mars næstkomandi.
Netfang ráðsins er [email protected]

13/02/2023

Við hlökkum fundarins seinna í dag og vonandi fylgjast sem flest með, hvort sem er í streymi eða á staðnum.

Við áttum von á kynningu frá fulltrúa ungmennaráðsins til okkar í dag en þeim dagskrárlið verður frestað þar sem ungmennaráðin eru að funda á morgun með borgarstjórn. Við hlökkum til að hitta þau þá á næsta fundi að öllum líkindum og sendum þeim góðar kveðjur, gangi þeim vel á morgun :)

Að öðru leyti stendur dagskráin eins og hún var kynnt, en breytt dagskrá lítur þá svona út:

1. Umsögn – erindi íbúa í hverfinu um smáhýsi í Laugardal. Til framlagningar.
2. Útskrift úr gerðabók skipulags- og samgönguráðs, Sóltún 2-4. Til framlagningar.
3. Breyting á fjármagni í Hverfissjóði Reykjavíkurborgar. Til framlagningar.
4. Málefni hverfisins. Til umræðu.
5. Greinargerð vegna styrks – Aðventugleði á Aparóló/Brynhildur Bolladóttir. Til framlagningar. Þessi liður fundarins er lokaður.
76. Greinargerð vegna styrks – Árshátíð nemenda. Til framlagningar. Þessi liður fundarins er lokaður.

Sjáumst kl. 16:30

Kæru íbúar32. fundur íbúaráðs Laugardals fer fram mánudaginn 13. febrúar 2023 kl. 16:30 í Laugardalslaug (Pálsstofa...
07/02/2023

Kæru íbúar

32. fundur íbúaráðs Laugardals fer fram mánudaginn 13. febrúar 2023 kl. 16:30 í Laugardalslaug (Pálsstofa 2. hæð) og með fjarfundarbúnaði.

Íbúar geta sent inn spurningar, ábendingar eða erindi á póstfang íbúaráðsins, [email protected]

Öll eru velkomin en fundinum verður einnig streymt á vef Reykjarvíkurborgar, eða af síðu íbúaráðsins, https://reykjavik.is/ibuarad

Dagskrá fundarins má finna inni á þessari slóð
https://reykjavik.is/fundargerdir/ibuarad-laugardals-fundur-nr-32

Dagskrá
1. Starf ungmennaráðs Laugardals, Háaleitis- og Bústaðahverfis. Til kynningar.
2. Umsögn – erindi íbúa í hverfinu um smáhýsi í Laugardal. Til framlagningar.
3. Útskrift úr gerðabók skipulags- og samgönguráðs, Sóltún 2-4. Til framlagningar.
4. Breyting á fjármagni í Hverfissjóði Reykjavíkurborgar. Til framlagningar.
5. Málefni hverfisins. Til umræðu.
6. Greinargerð vegna styrks – Aðventugleði á Aparóló/Brynhildur Bolladóttir. Til framlagningar. Þessi liður fundarins er lokaður.
7. Greinargerð vegna styrks – Árshátíð nemenda. Til framlagningar. Þessi liður fundarins er lokaður.

Öll eru hjartanlega velkomin

👾Yarrr!👾

Address

Efstaleiti 1
Reykjavík
103

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íbúaráð Laugardals posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Íbúaráð Laugardals:

Share

Category