Slysavarnafélagið Landsbjörg

Slysavarnafélagið Landsbjörg Slysavarnafélagið Landsbjörg - Þúsundir sjálfboðaliða í björgunarsveitum, slysavarnadeildum og unglingadeildum.
(231)

Alltaf til taks er út af bregður, á nóttu sem degi, allt árið um kring.

Í dag, 25. júlí, er alþjóðlegur forvarnardagur gegn drukknun. Dagurinn minnir okkur á að drukknun er ekki óhjákvæmilegt ...
25/07/2026

Í dag, 25. júlí, er alþjóðlegur forvarnardagur gegn drukknun. Dagurinn minnir okkur á að drukknun er ekki óhjákvæmilegt slys. Með fræðslu, réttum öryggisbúnaði, góðum undirbúningi og stöðugri árvekni má koma í veg fyrir flest drukknunarslys.

Við sjó, ár og vötn geta aðstæður breyst hratt og kaldur sjór getur haft áhrif á öndun og hreyfigetu á örskömmum tíma. Því skiptir máli að nota alltaf björgunarvesti, fylgjast vel með veðri og aðstæðum og láta aðra vita af ferðum sínum.

Börn þurfa stöðugt eftirlit við vatn. Sundkútar og uppblásin leikföng koma hvorki í stað björgunarvestis né virks eftirlits fullorðinna.

Við hvetjum alla til að taka eina ákvörðun í dag sem eykur öryggi þeirra sjálfra og annarra við vatn. Björgunarvestið gerir lítið gagn ef það er skilið eftir í bátnum, bílnum eða á bryggjunni.

🌊🛟 Öryggi við sjó, ár og vötn er sameiginlegt verkefni.

Öflugt unglingastarf um allt land 🙌Landshlutamót unglingadeilda Landsbjargar fóru fram á fjórum stöðum í sumar, á Ólafsf...
13/07/2026

Öflugt unglingastarf um allt land 🙌

Landshlutamót unglingadeilda Landsbjargar fóru fram á fjórum stöðum í sumar, á Ólafsfirði, Laugarvatni, Varmalandi og í Logalandi. Nærri 300 unglingar, umsjónarmenn og aðrir þátttakendur komu saman á mótunum og áttu þar viðburðaríkar helgar.

Unglingarnir spreyttu sig á fjölbreyttum verkefnum sem tengjast starfi björgunarsveita. Meðal annars var æft í fyrstu hjálp, endurlífgun, fjarskiptum, sigi, hnútum, böruburði og notkun slökkvibúnaðar. Verkefnin reyndu ekki aðeins á kunnáttu heldur einnig samvinnu, útsjónarsemi og samskipti innan hópanna.

Það var þó ekki bara unnið. Sundferðir, kvöldvökur, tónlist, dans, froðufjör og ýmsar skemmtilegar þrautir settu svip sinn á mótin. Veðrið og óvæntar uppákomur fengu stundum að hafa áhrif á dagskrána, en þátttakendur létu það ekki stöðva fjörið.

Landshlutamótin eru mikilvægur hluti af unglingastarfi Landsbjargar. Þar fá unglingar tækifæri til að læra nýja hluti, efla sjálfstraustið og mynda tengsl við jafnaldra úr öðrum deildum. Um leið fá þau innsýn í þau fjölbreyttu verkefni sem bíða þeirra innan björgunarsveitanna.

Við þökkum öllum unglingum, umsjónarmönnum, björgunarsveitum, félagasamtökum og öðrum sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg og gerðu mótin möguleg. Framtíð félagsins er sannarlega björt.

Björgunarstörfin eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg.Í síðdeginu í gær voru félagar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Bj...
06/07/2026

Björgunarstörfin eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg.

Í síðdeginu í gær voru félagar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Björgunarsveitinni Suðurnes kallaðir út þegar lamb hafði komið sér í sjálfheldu í Krýsuvíkurbjargi.

Lambið var á lítilli syllu í bjarginu og komst ekki af sjálfsdáðum til baka. Björgunarsveitarfólk seig niður, tryggði lambið og kom því aftur upp á bjargbrúnina.

🐑 Lambið virtist óslasað eftir ævintýrið og fékk að halda aftur til sinna.

02/07/2026

Björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði var kallað út með hæsta forgangi á þriðjudagskvöld þegar togarinn Ottó varð aflvana og rak hættulega nærri landi.

Sigurvin hélt úr höfn um fimmtán mínútum eftir að útkallið barst. Taug var komið á milli skipanna og Ottó dreginn heilu og höldnu til hafnar á Siglufirði.

Sigurvin er 15 metrar að lengd en Ottó rúmlega 50 metrar. Stærðarmunurinn kom þó ekki að sök og sýndi björgunarskipið vel hvers það er megnugt í krefjandi aðstæðum. ⚓

100 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands.Saga Landhelgisgæslunnar og björgunarsveita landsins er samofin. Þann 1. júlí 192...
01/07/2026

100 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands.

Saga Landhelgisgæslunnar og björgunarsveita landsins er samofin. Þann 1. júlí 1926 eignaðist íslenska ríkið björgunarskipið Þór, sem Björgunarfélag Vestmannaeyja hafði keypt til landsins s*x árum áður.

Samstarfið hefur síðan verið bæði náið og farsælt, hvort sem um er að ræða leit og björgun í lofti, láði eða legi. Einnig er unnið saman að fjölbreyttum æfingum og námskeiðum, meðal annars á landsæfingum björgunarsveita og sjóbjörgunaræfingum Slysavarnaskóla sjómanna.

Slysavarnafélagið Landsbjörg óskar Landhelgisgæslu Íslands innilega til hamingju með tímamótin og þökkum fyrir mikilvægt og farsælt samstarf í gegnum árin.

Í hádeginu í gær var Hálendisvakt sumarsins 2026 formlega hleypt af stokkunum þegar Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmda...
26/06/2026

Í hádeginu í gær var Hálendisvakt sumarsins 2026 formlega hleypt af stokkunum þegar Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís, og Guðjón Guðmundsson, varaformaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, handsöluðu áframhaldandi samstarf.

Olís hefur verið einn af aðalstyrktaraðilum Landsbjargar undanfarin 20 ár og verður það áfram.

„Við erum ótrúlega stolt af því að vera undirrita núna í dag nýjan samning við Landsbjörg en við höfum verið helsti styrktaraðili þeirra í yfir tuttugu ár,“ sagði Ingunn Svala við undirritun samningsins.

„Við fögnum áframhaldandi samstarfi við Olís, sem hefur verið okkur ómetanlegur bakhjarl í gegnum árin. Það er vel við hæfi að Hálendisvakt Landsbjargar hafi farið af stað sama dag, enda nýtist stuðningurinn einmitt í verkefnum af þessu tagi.“ - Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Landsbjargar.

Í gær var einnig fyrsti dagur Hálendisvaktarinnar. Félagar í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, fengu fyrsta útkall sumarsins á leið sinni suður Kjalveg þegar óskað var eftir aðstoð við að kanna aðstæður ferðamanns í Klakkskála, sunnan Kerlingarfjalla.

Fram undan er sumar þar sem nærri 250 félagar úr 26 björgunarsveitum víðs vegar um landið standa vaktina. Vakt verður í Landmannalaugum og þegar líður á júlí einnig í Herðubreiðarlindum og Nýjadal á Sprengisandsleið

Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson kom til heimahafnar á Vopnafirði um síðustu helgi.Skipið er það sjöunda í röð nýrra...
18/06/2026

Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson kom til heimahafnar á Vopnafirði um síðustu helgi.

Skipið er það sjöunda í röð nýrra björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar og var því tekið fagnandi þegar það þegar lagðist við bryggju á sunnudag.

Við móttökuathöfnina blessaði séra María Guðrún Ljungberg, sóknarprestur, skipið og Borghildur Sverrisdóttir afhenti skipstjóra og formanni Björgunarbátasjóðs Vopnafjarðar sjóferðabænina á skildi til varðveislu um borð.

Sveinbjörn Sveinsson mun gegna mikilvægu hlutverki í öryggis og björgunarstarfi á svæðinu um ókomin ár.

Að athöfn lokinni bauð Slysavarnadeildin Sjöfn gestum upp á veitingar í björgunarsveitarhúsinu.

👏 Við óskum félagsfólki Landsbjargar fyrir austan og heimamönnum öllum innilega til hamingju með nýja björgunarskipið.

07/06/2026

Gleðilegan sjómannadag! ⚓

Miklar framfarir hafa orðið í öryggismálum sjómanna á undanförnum áratugum en áfram skiptir máli að huga vel að forvörnum og undirbúningi.

Við minnum alla smábátasjómenn á að fara yfir öryggisatriði áður en haldið er á sjó. Góður undirbúningur getur skipt sköpum þegar aðstæður breytast.

Gátlista, upplýsingar um Agga öryggisappið og fleiri gagnleg ráð má finna á heimasíðu Landsbjargar og Samgöngustofu.

Address

Skógarhlíð 14
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Slysavarnafélagið Landsbjörg posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Slysavarnafélagið Landsbjörg:

Shortcuts

Share