Landnámssýningin / The Settlement Exhibition

Landnámssýningin  / The Settlement Exhibition Með túlkun á fornminjum er ljósi varpað á líf og tilveru fyrstu íbúa Reykjavíkur og tengsl þeirra við umhverfið í nýju landi. gangur) og í Lækjargötu (5 mín.

Í Aðalstræti 10 og 16 geturðu séð hvernig Reykjavík þróaðist frá landnámi til dagsins í dag. / At Aðalstræti 10 and 16 in Reykjavík’s city centre, you can explore how the city developed from Iceland’s settlement period to the present day. Í Aðalstræti 10 & 16 eru tvær sýningar sem rekja sögu Reykjavíkur:
LANDNÁMSSÝNINGIN OG REYKJAVÍK...SAGAN HELDUR ÁFRAM

LANDNÁMSSÝNINGIN - LÍFIÐ Á LANDNÁMSÖLD

La

ndnámssýningin byggir á skálarúst sem varðveitt er á upprunalegum stað. Efni Landnámssýningarinnar byggir á niðurstöðum fornleifarannsókna, efnistökin eru vísindaleg og kynna nýjustu túlkanir vísinda- og fræðimanna á þessu tímabili sögunnar. Á sýningunni má einnig finna leiksvæði fyrir börn. Um er að ræða fróðlega sýningu fyrir alla aldurshópa. Hljóðleiðsögn er fáanleg á íslensku og ýmsum tungumálum. REYKJAVÍK...SAGAN HELDUR ÁFRAM
Fjölskylduvæn og fræðandi sýning um þróun Reykjavíkur frá býli til borgar. Hin nýja sýning teygir sig neðanjarðar frá Landnámssýningunni í Aðalstræti 16 yfir í elsta hús Kvosarinnar, sem er Aðalstræti 10. Sýningin er framhald af Landnámssýningunni og rekur sögu byggðar í Reykjavík allt frá landnáminu til samtímans. Áhersla er lögð á að draga fram þætti úr sögu Reykjavíkur, varpa ljósi á daglegt líf íbúanna og tíðarandann í aldanna rás. Efnistök og nálgun miða að því að ná sem best til allra notendur Borgarsögusafns Reykjavíkur. Sýningunni er ætlað að vekja áhuga og spurningar - og koma á óvart, með fjölbreyttri miðlun og upplifun. Með þessari nýju sýningu verður mikilvægi Aðalstrætis sem sögumiðja Reykjavíkur undirstrikað enn frekar. Borgarsögusafn Reykjavíkur mun verða áberandi í hjarta gamla miðbæjarins og nærumhverfi. Allt er þetta mikil lyftistöng fyrir elstu götu Reykjavíkur og stór áfangi í menningarlífi borgarinnar. Aðgöngumiðinn gildir á báðar sýningarnar. Opið daglega 10:00-17:00

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott. Athugið þó að fremur lítil lýsing er inni í sýningarsal Landnámssýningarinnar og gólfið er ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar stoppa við Ráðhúsið (2 mín. gangur). Aðalstræti 10 & 16 heyra undir Borgarsögusafn Reykjavíkur - Eitt safn á fimm frábærum stöðum.

///

At Aðalstræti 10 & 16, two exhibitions trace the history of Reykjavík:
THE SETTLEMENT EXHIBITION AND REYKJAVÍK...THE STORY CONTINUES

THE SETTLEMENT EXHIBITION - STEP INTO THE VIKING AGE

An open excavation where Viking ruins meet digital technology. Just below ground in downtown Reykjavík, this open excavation uncovers the city's Viking Age history. Discovered during building work, then carefully excavated, these remnants of the past are the earliest evidence of human settlement in the city. Family-friendly, including a children's activity area, this multimedia exhibition uses creative technology to immerse you in the Viking Age. REYKJAVÍK...THE STORY CONTINUES
Family-friendly and informative exhibition about the development of Reykjavík, from farm to city. This new display is a direct continuation of The Settlement Exhibition, representing Reykjavík's history from settlement to the present day. Visitors get an insight into the complex history and culture of Reykjavík through the development of house construction and planning with a stop at the oldest house in the city centre, Aðalstræti 10. Admission is valid to both exhibitions. Guided tours at 11:00 on Weekdays from June to August. Open: Daily 10:00-17:00

Accessibility: Access for the disabled is good. Note that the exhibition is dimly lit, and the floor is uneven in several places. Guide dogs are welcome at the museum. Bus services stop at City Hall (2 mins) and Lækjargata (5 mins). Aðalstræti 10 & 16 are part of Reykjavík City Museum: One museum in five unique places.

🖼️ Í safnbúð 🖼️Í safnbúð Landnámssýningarinnar/ Aðalstrætis fæst fjölbreytt úrval af handgerðum vörum, þar á meðal þetta...
18/08/2026

🖼️ Í safnbúð 🖼️

Í safnbúð Landnámssýningarinnar/ Aðalstrætis fæst fjölbreytt úrval af handgerðum vörum, þar á meðal þetta skemmtilega litla landnámsfólk úr þæfðri ull.

Í búðinni má einnig finna ýmsar vörur sem tengjast sögu, menningu og landnámi Íslands – tilvalið sem lítil minning úr heimsókninni eða gjöf.

Safnbúðin er opin alla daga kl. 10–17.

//

🖼️ In the Museum Shop 🖼️

The Settlement Exhibition shop offers a selection of handcrafted items, including these charming little settlers made from felted wool.

You’ll also find a variety of items inspired by Iceland’s history, culture and settlement – perfect as a keepsake from your visit or a unique gift.

The museum shop is open daily from 10:00–17:00.

📷 Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum

Gleðilega Hinsegin daga! 🏳️‍🌈Við styðjum hinsegin samfélagið í þeirra áframhaldandi baráttu um leið og við gleðjumst yfi...
06/08/2026

Gleðilega Hinsegin daga! 🏳️‍🌈

Við styðjum hinsegin samfélagið í þeirra áframhaldandi baráttu um leið og við gleðjumst yfir því sem hefur áunnist. Af þessu tilefni flöggum við regnbogafánum á sýningarstöðum Borgarsögusafns um þessar mundir.
Við á Borgarsögusafni erum stolt af því að hafa hlotið Regnbogavottun árið 2022 og vinnum markvisst að því að gera starfsemi okkar hinseginvænni fyrir bæði starfsfólk og gesti. Með þessu viljum við leggja okkar af mörkum í baráttunni gegn mismunun í garð hinsegin fólks og tryggja að safnið okkar sé öruggur staður fyrir öll.

Verið öll velkomin á Borgarsögusafn! 🎉

//

Happy Pride! 🏳️‍🌈

We support the LGBTQ+ community in their ongoing battle for equality while also celebrating the progress that has been made. On this occasion, we are raising rainbow flags at the exhibition sites of the Reykjavík City Museum.
At the Reykjavík City Museum, we are proud to have received the Rainbow Certification in 2022 and are actively working to make our operations more inclusive for both staff and visitors. With this, we aim to contribute to the fight against discrimination towards LGBTQ+ people and ensure that our museum is a safe space for everyone.

Everyone is welcome at the Reykjavík City Museum! 🎉

🖼️Í safnbúð 🖼️ Þessi skraut eru fáanleg í safnbúð Landnámssýningarinnar sem er opin frá 10-17 alla daga.//  🖼️In the mus...
20/07/2026

🖼️Í safnbúð 🖼️

Þessi skraut eru fáanleg í safnbúð Landnámssýningarinnar sem er opin frá 10-17 alla daga.

//

🖼️In the museum shop 🖼️

These ornaments are available in the gift shop at the Settlement Exhibition, which is open daily from 10:00 to 17:00.

📷Borgarsögusafn

Ertu að leita að fullkominni fjölskylduferð í miðborginni í sumar?Á Landnámssýningunni | Aðalstræti geturðu séð hvernig ...
09/07/2026

Ertu að leita að fullkominni fjölskylduferð í miðborginni í sumar?

Á Landnámssýningunni | Aðalstræti geturðu séð hvernig Reykjavík þróaðist frá landnámi til dagsins í dag. Söguþráðurinn teygir sig neðanjarðar!

✨ Ferðalag neðanjarðar: Gengið neðanjarðar frá Aðalstræti 16, þar sem skálarúst frá 10. öld bíður ykkar.
✨ Í elsta húsi Kvosarinnar: Leiðin liggur yfir í Aðalstræti 10 þar sem þróun Reykjavíkur frá býli til borgar lifnar við.
✨ Fyrir yngstu kynslóðina: Notalegt barna- og leikhorn þar sem hægt er að leika, skapa og fræðast á skemmtilegan hátt.

✨ Upplifðu gagnvirka sýningu sem vekur söguna til lífsins.

📍 Aðalstræti 10 - 16
🕙 Opið alla daga kl. 10:00–17:00
🎧 Leiðsögn (á ensku) alla virka daga kl. 11:00 í sumar
👧 FRÍTT inn fyrir 17 ára og yngri!

Frá býli til borgar – þar sem saga Reykjavíkur hefst.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Hvernig hófst sagan um landnám Íslands? Hvað vitum við í raun um fyrstu landnámsmennina og samfélagið sem þeir byggðu up...
07/07/2026

Hvernig hófst sagan um landnám Íslands? Hvað vitum við í raun um fyrstu landnámsmennina og samfélagið sem þeir byggðu upp?

Nýtt hlaðvarp um sögu Íslands og umheimsins er komið í loftið og fyrsti þátturinn fjallar um landnám Íslands. Áhugavert efni fyrir öll sem hafa áhuga á sögu, fornleifum og uppruna landsins.

Við mælum með hlustun – og svo auðvitað heimsókn á Landnámssýninguna Aðalstræti þar sem sagan lifnar við í hjarta Reykjavíkur.

Hlustaðu hér:
https://open.spotify.com/show/033ExuHzlOUhsoBzeg8JVI

Podcast · Jón Kristinn Einarsson · Jón Kristinn ræðir við sérfræðinga og leiðir hlustendur í gegnum sögu Íslands og umheimsins. Hlaðvarpið er styrkt af menningarsjóði tengdum nafni Jóhannesar Nordals og er tekið upp í húsnæði Reykjavíkurakademíunnar. Patreon.com/Islandssaga...

🏛️ Opið alla helgina á Landnámssýningunni 🏛️Frá landnámi til borgar – From Settlement to CityLandnámssýningin í Aðalstræ...
03/07/2026

🏛️ Opið alla helgina á Landnámssýningunni 🏛️

Frá landnámi til borgar – From Settlement to City

Landnámssýningin í Aðalstræti er opin alla daga frá kl. 10–17.

Í Aðalstræti 10 og 16 er hægt að fylgja sögu Reykjavíkur frá landnámi til borgar. Söguþráðurinn teygir sig neðanjarðar frá Aðalstræti 16, þar sem varðveitt er skálarúst frá 10. öld á sínum upprunalega stað, yfir í Aðalstræti 10, elsta hús Kvosarinnar, og sýnir hvernig Reykjavík þróaðist í gegnum aldirnar.

Á sýningunni er varpað ljósi á líf og störf fyrstu íbúa Reykjavíkur með fornleifum, margmiðlun og gagnvirkum lausnum. Þar má meðal annars sjá skálarúst frá 10. öld og veggjarbrot sem er talið vera frá því fyrir árið 871 og er meðal elstu mannvistarleifa sem fundist hafa á Íslandi.

Leiðsögn er í boði alla virka daga kl. 11:00 yfir sumartímann.

Safnbúðin er opin með fjölbreytt úrval bóka, gjafavöru og minjagripa.

Verið velkomin á Landnámssýninguna.

🖼️ Í safnbúð 🖼️ Vönduð tréleikföng fyrir litla víkinga // 🖼️ In the museum shop 🖼️ Beautifully crafted wooden toys for l...
22/06/2026

🖼️ Í safnbúð 🖼️

Vönduð tréleikföng fyrir litla víkinga

//

🖼️ In the museum shop 🖼️

Beautifully crafted wooden toys for little Vikings

📷 Landnámssýningin

18/05/2026

Takk fyrir komuna á leiðsögn á arabísku um Landnámssýninguna Aðalstræti um helgina 🥰 Við þökkum Mouna Nasr sérstaklega fyrir að segja frá sýningunni á arabísku.

Það er ókeypis inn í dag í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum 18. maí. Verið velkomin! ✨//Free admission today in celebr...
18/05/2026

Það er ókeypis inn í dag í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum 18. maí. Verið velkomin! ✨

//

Free admission today in celebration of International Museum Day, 18 May. Welcome! ✨

🌈Alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks 17. maí🌈 Í tilefni dagsins flagga allir staðir Borgarsögusafns re...
15/05/2026

🌈Alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks 17. maí🌈

Í tilefni dagsins flagga allir staðir Borgarsögusafns regnbogafánanum vikuna 15. - 22. maí. Haldið hefur verið upp á daginn síðan 2004, en á þessum degi árið 1990 fjarlægði Alþjóðaheilbrigðisstofnunin samkynhneigð af lista sínum yfir geðsjúkdóma.

Í byrjun ágúst 2022 var regnbogafáni Sjóminjasafnsins í Reykjavík skorinn niður þar sem honum var flaggað í tilefni Hinsegin daga sem stóðu 1. - 7. ágúst. Starfsfólk safnsins sá að það var búið að rífa fánann niður þegar það mætti til vinnu föstudaginn 5. ágúst og brugðust við með að setja strax upp annan regnbogafána. Þetta var einn af mörgum regnbogafánum sem voru skornir niður árið 2022 og hefur verið tengt við bakslag í baráttu hinsegin fólks og aukna fordóma í samfélaginu.

Borgarsögusafn hlaut Regnbogavottun Reykjavíkurborgar árið 2022. Markmið vottunarinnar er að gera starfsemi Reykjavíkurborgar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og þannig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.

Fáninn í Sarpi: https://sarpur.is/is/collection/item/2446841/

//

🌈International Day Against Homophobia, Biphobia and Transphobia 17 May🌈

From 15–22 May, all Reykjavík City Museum locations are flying the rainbow flag to show support for LGBTQ+ rights. This day, observed worldwide since 2004, marks the date in 1990 when the World Health Organization removed homosexuality from its list of mental disorders.

In August 2022, the rainbow flag at the Reykjavík Maritime Museum was cut down during Pride Week. Staff quickly replaced it—but sadly, it was just one of many flags vandalised that summer, highlighting the continued presence of prejudice in our society.

Reykjavík City Museum is proud to hold the City of Reykjavík’s Rainbow Certification, awarded in 2022. This commitment helps ensure our services and workplaces are welcoming and inclusive for everyone.

Address

Aðalstræti 16
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00
Saturday 10:00 - 17:00
Sunday 10:00 - 17:00

Telephone

+3544116370

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landnámssýningin / The Settlement Exhibition posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Landnámssýningin / The Settlement Exhibition:

Shortcuts

Share