Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Sími: 444-1000 - Neyðartilfelli: 112
Sendið okkur fyrirspurn/ábendingu
[email protected] HVAÐ Á EKKI HEIMA Á ÞESSARI SÍÐU?
(1293)

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur það sem meginmarkmið að auka öryggi og öryggistilfinningu þeirra sem búa, starfa og dvelja á höfuðborgarsvæðinu. Til þess að vinna að þessum markmiðum er lögð áhersla á nokkur lykilatriði, þar á meðal sýnilega löggæslu, hverfa- og grenndarlöggæslu, forvarnastarf í samvinnu við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga, gæði og skilvirkni

við rannsóknir sakamála og öfluga upplýsingamiðlun. Innlegg eða athugasemdir á síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem falla ekki að skilyrðum Facebook (sjá hér: www.facebook.com/terms.php?ref=pf) eða fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa, innihalda ásakanir um refsiverða háttsemi eða hvatningu til að fremja afbrot verður þegar í stað eytt. Innlegg sem sett eru inn af öðrum aðilum eru sett þar inn á ábyrgð viðkomandi einstaklings eða lögaðila. Myndir sem hér er að finna úr starfi lögreglunnar er ekki heimilt að birta í fjölmiðlum eða með öðrum sambærilegum hætti eða sambærilegum miðlum nema með leyfi LRH. VINSAMLEGAST LESIÐ ÞETTA ÁÐUR EN INNLEGG ER SETT Á SÍÐU LRH

1. HVERNIG ER UMSJÓN MEÐ ÞESSARI SÍÐU HÁTTAÐ? Vinsamlegast athugið að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgist ekki með þessari síðu eða innleggjum sem sett eru á hana allan sólarhringinn. Þeir sem sjá um uppfærslu hennar sinna því samhliða öðrum störfum innan lögreglunnar. Svör við spurningum eða ábendingum kalla oftar en ekki á nánari skoðun. Því er ekki hægt að tryggja að svör verði sett inn strax við spurningum sem settar eru inn á síðuna. Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112 en sólarhringslöggæsla er á höfuðborgarsvæðinu alla daga ársins. Ef erindið er af öðrum toga, og þolir e.t.v. einhverja bið, vinsamlegast hafið samband við þjónustuver embættisins í síma 444-1000. Sömuleiðis er hægt að koma ábendingum á framfæri um hvaðeina með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Einnig má benda á fíkniefnasímann, 800-5005, þar sem gjaldfrjálst og nafnlaust er unnt að koma á framfæri ábendingum um fíkniefnamál.

2. Vinsamlegast athugið að Facebook er ekki rétti staðurinn til að setja inn upplýsingar um tiltekin brot, tiltekin mál, grunsemdir um afbrot eða brotamenn eða kvartanir, til dæmis kvartanir um störf tiltekinna starfsmanna lögreglu. Síðuna má ekki nota sem tilkynningasíðu um tapað/fundið eða stolna muni. Slíkum hlutum er rétt að koma á framfæri við lögreglu í gegnum síma, með bréfi eða tölvupósti eða með því að mæta á lögreglustöð á þínu svæði eða sveitarfélagi. Hér eru upplýsingar um það hvernig best er að ná sambandi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu eftir tilefni hverju sinni: http://www.logreglan.is/anhaegri.asp?cat_id=1342

Ef þú vilt beina fyrirspurn til lögreglunnar í gegnum tölvupóst þá er unnt að gera það beint á lögregluvefnum, www.logreglan.is. Netfang lögreglustjóra er [email protected]

3. HVAR FINN ÉG MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR FRÁ LÖGREGLUNNI OG SAMSTARFSAÐILUM HENNAR?

Á lögregluvefnum er að finna margvíslegar upplýsingar um starfsemi lögreglunnar, forvarnir o.fl. Lögregluvefurinn er á slóðinni www.logreglan.is

Um forvarnir, fræðslu og viðbrögð við afbrotum má lesa nánar hér: http://www.logreglan.is/listar.asp?cat_id=8

Um forvarnir gegn innbrotum og þjófnuðum má lesa hér: http://www.logreglan.is/listar.asp?cat_id=245

Um forvarnir gegn brotum á netinu og örygga netnotkun má lesa hér: http://www.logreglan.is/listar.asp?cat_id=256

Upplýsingabæklingur fyrir þolendur afbrota:http://www.logreglan.is/upload/files/uppl.afbr.3b.pdf

Netöryggi: http://www.netoryggi.is/

Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki: http://www.logreglan.is/eftirlystokutaeki.asp

Forvarnir gegn fíkniefnum: http://www.logreglan.is/displayer.asp?cat_id=289

Afbrotatölfræði: http://www.logreglan.is/displayer.asp?cat_id=691

12/08/2026

Þá eru landsmenn búnir að upplifa almyrkva, en fram til þessa hefur þetta gengið alveg afskaplega vel fyrir sig hérna á höfuðborgarsvæðinu, þ.m.t. umferðin.

Fólk safnaðist saman víða í umdæminu og naut þess að horfa á þetta stórmerkilega fyrirbæri. Eftirtektarvert var að sjá hversu margir notuðu annan ferðamáta en einkabílinn og það hjálpar til á degi sem þessum.

Haldið áfram að njóta dagsins!

Almyrkvi á sólu 12. ágúst – gott að vitaTakmarkanir á aðgengi Seltjarnarnes: Suðurströnd verður lokuð fyrir bílaumferð f...
12/08/2026

Almyrkvi á sólu 12. ágúst – gott að vita

Takmarkanir á aðgengi

Seltjarnarnes: Suðurströnd verður lokuð fyrir bílaumferð frá Vivaldi-velli / sundlaug að austanverðu og við Lindarbraut og Nesbala að vestan frá kl. 15.00 til 19.00. Allar þvergötur sem liggja að Suðurströnd verða einnig lokaðar. Bent er á bílastæði við sundlaug, Austurströnd og Eiðistorg. Lokað verður fyrir akstur um Norðurströnd vestan Lindarbrautar frá kl. 15.00 til kl. 19.00. Bent er á bílastæði við Austurströnd og Eiðistorg. Ekki er leyfilegt að fara út í Gróttu þann 12. ágúst. Flóð er á meðan almyrkva stendur. Akstursleið út að Gróttu verður lokuð við Lindarbraut frá kl. 15.00 og til kl. 19.00. Strætó fær að keyra um Seltjarnarnesið óháð lokunum til að auðvelda fólki að komast ferða sinna og nær vestursvæðum Seltjarnarness þar sem gera má ráð fyrir að flestir vilji koma sér fyrir.

Reykjavík: Suðurgata verður lokuð fyrir akstri við Hringbraut frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Allar þvergötur Suðurgötu verða einnig lokaðar nema Þórsgata en um hana er opið fyrir umferð í Skerjafjörð. Ægisíða verður lokuð fyrir bílaumferð við Hofsvallagötu, Fornhaga og Dunhaga frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Einnig verður lokað fyrir bílaumferð við Lynghaga og Starhaga á þessum tíma.

Garðabær: Einstefnuakstur (hringakstur) verður um Álftanes frá kl. 15:00 til kl. 20:00 í norður- og vesturátt, um Norðurnes- og Suðurnesveg frá hringtorgi við Bessastaðaafleggjara. Hámarkshraði verður tekinn niður í 30 km/klst á hluta Suðurnesvegar. Bílastæði verða útbúin við óbyggðar lóðir í Gásamýri og Svanamýri auk þess sem hægt verður að leggja í grennd við íþróttamiðstöðina á Álftanesi.

Hafnarfjörður: Vegna viðburðar á Víðistaðatúni verður götum í næsta nágrenni lokað eða umferð skert þann 12. ágúst. Frá kl. 10 að morgni til miðnættis verður lokað fyrir umferð um Hamrabrún við gatnamót Hraunbrúnar og Garðavegs. Íbúum verður þó leyft að aka götuna og munu þeir fá sérstaka aksturspassa afhenta hjá viðburðahöldurum sem verða með gæslu við Hamrabrún þann 12. ágúst. Hafa íbúar aðgang að Hambrabrún frá Reykjavíkurvegi eða Hjallabraut. Ekki verður hægt að aka um Hraunbrún frá Hellisgötu eða Garðavegi. Frá kl. 11 að morgni til kl. 15 síðdegis og frá kl. 20 til 23 þann 12. ágúst verður umferð stýrt um Hjallabraut og umferð því takmörkuð þar á þeim tímum.

Skilgreindir safnstaðir í byggðakjörnum. Seltjarnarnes: Suðurströnd, Reykjavík: Ægisíða, Garðabær: Álftanes – fjaran vestan við íþróttasvæðið, Hafnarfjörður: Hamarinn (bílastæði við Flensborgarskóla) og Ástjörn (bílastæði við íþróttasvæði Hauka) og Mosfellsbær: Tungubakkar.

Tekið af island.is (upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst)

Mynd: Vegagerðin

12/08/2026

Þú þarft ekki að fara langt til að sjá almyrkvann.

Höfuðborgarsvæðið er innan almyrkvasvæðisins og því getur verið best að fylgjast með heima eða í þínu hverfi.

Þannig minnkum við óþarfa umferð og gerum daginn öruggari fyrir alla.

Ekki gleyma sólmyrkvagleraugunum.

11/08/2026

Ætlar þú út fyrir höfuðborgarsvæðið til að sjá almyrkvann?

Undirbúðu ferðina vel, hafðu drykki og nesti meðferðis og gefðu þér nægan tíma.

Mundu líka að almyrkvinn sést á höfuðborgarsvæðinu og stundum er einfaldasta og öruggasta planið að halda sig nær heimilinu.

Um götulýsingu á stofnbrautum á hðfuðborgarsvæðinu meðan almyrkvi á sólu gengur yfir.
11/08/2026

Um götulýsingu á stofnbrautum á hðfuðborgarsvæðinu meðan almyrkvi á sólu gengur yfir.

Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er meiri en 60 km/klst. meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst. Þetta eru t.d. Ártúnsbrekka, Breiðholtsbraut, ...

11/08/2026

Ætlar þú að fylgjast með almyrkvanum á höfuðborgarsvæðinu?

Búast má við mikilli umferð og auknum fjölda fólks á ferðinni. Strax upp úr hádegi gæti umferð farið að þyngjast og frá kl. 14–18 má búast við mjög þungri umferð.

Skilgreindir safnstaðir verða víða á höfuðborgarsvæðinu og einnig má búast við umferðarstýringu og lokunum á ákveðnum svæðum.
Kynntu þér safnstaði, lokanir og aðrar upplýsingar á upplýsingagátt almyrkvans á island.is áður en þú leggur af stað.

09/08/2026

Maðurinn sem lýst var eftir fyrr í kvöld er kominn í leitirnar.

Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð.

Almyrkvi á sólu 12. ágúst – gott að vitaTakmarkanir á aðgengi Seltjarnarnes: Suðurströnd verður lokuð fyrir bílaumferð f...
09/08/2026

Almyrkvi á sólu 12. ágúst – gott að vita

Takmarkanir á aðgengi

Seltjarnarnes: Suðurströnd verður lokuð fyrir bílaumferð frá Vivaldi-velli / sundlaug að austanverðu og við Lindarbraut og Nesbala að vestan frá kl. 15.00 til 19.00. Allar þvergötur sem liggja að Suðurströnd verða einnig lokaðar. Bent er á bílastæði við sundlaug, Austurströnd og Eiðistorg. Lokað verður fyrir akstur um Norðurströnd vestan Lindarbrautar frá kl. 15.00 til kl. 19.00. Bent er á bílastæði við Austurströnd og Eiðistorg. Ekki er leyfilegt að fara út í Gróttu þann 12. ágúst. Flóð er á meðan almyrkva stendur. Akstursleið út að Gróttu verður lokuð við Lindarbraut frá kl. 15.00 og til kl. 19.00. Strætó fær að keyra um Seltjarnarnesið óháð lokunum til að auðvelda fólki að komast ferða sinna og nær vestursvæðum Seltjarnarness þar sem gera má ráð fyrir að flestir vilji koma sér fyrir.

Reykjavík: Suðurgata verður lokuð fyrir akstri við Hringbraut frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Allar þvergötur Suðurgötu verða einnig lokaðar nema Þórsgata en um hana er opið fyrir umferð í Skerjafjörð. Ægisíða verður lokuð fyrir bílaumferð við Hofsvallagötu, Fornhaga og Dunhaga frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Einnig verður lokað fyrir bílaumferð við Lynghaga og Starhaga á þessum tíma.

Garðabær: Einstefnuakstur (hringakstur) verður um Álftanes frá kl. 15:00 til kl. 20:00 í norður- og vesturátt, um Norðurnes- og Suðurnesveg frá hringtorgi við Bessastaðaafleggjara. Hámarkshraði verður tekinn niður í 30 km/klst á hluta Suðurnesvegar. Bílastæði verða útbúin við óbyggðar lóðir í Gásamýri og Svanamýri auk þess sem hægt verður að leggja í grennd við íþróttamiðstöðina á Álftanesi.

Hafnarfjörður: Vegna viðburðar á Víðistaðatúni verður götum í næsta nágrenni lokað eða umferð skert þann 12. ágúst. Frá kl. 10 að morgni til miðnættis verður lokað fyrir umferð um Hamrabrún við gatnamót Hraunbrúnar og Garðavegs. Íbúum verður þó leyft að aka götuna og munu þeir fá sérstaka aksturspassa afhenta hjá viðburðahöldurum sem verða með gæslu við Hamrabrún þann 12. ágúst. Hafa íbúar aðgang að Hambrabrún frá Reykjavíkurvegi eða Hjallabraut. Ekki verður hægt að aka um Hraunbrún frá Hellisgötu eða Garðavegi. Frá kl. 11 að morgni til kl. 15 síðdegis og frá kl. 20 til 23 þann 12. ágúst verður umferð stýrt um Hjallabraut og umferð því takmörkuð þar á þeim tímum.

Skilgreindir safnstaðir í byggðakjörnum. Seltjarnarnes: Suðurströnd, Reykjavík: Ægisíða, Garðabær: Álftanes – fjaran vestan við íþróttasvæðið og Hafnarfjörður: Hamarinn (bílastæði við Flensborgarskóla) og Ástjörn (bílastæði við íþróttasvæði Hauka).

Tekið af island.is (upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst)

Mynd: Vegagerðin

Það var heldur betur líf og fjör í miðborginni í dag þegar hin árlega Gleðiganga var á dagskrá og hún stóð svo sannarleg...
08/08/2026

Það var heldur betur líf og fjör í miðborginni í dag þegar hin árlega Gleðiganga var á dagskrá og hún stóð svo sannarlega undir nafni enda var stemningin frábær.

Myndir: Sandra Sif Ottadóttir

Address

Hverfisgata 113/115
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu:

Shortcuts

Share

Category