Umhverfis- og orkustofnun

Umhverfis- og orkustofnun Við þjónustum fólk og náttúru í þágu umhverfisverndar.

💦 Rigning í kortunum? Veljum útiföt án PFAS efna. PFAS efni eru notuð til að gera hluti vatns- og fitufráhrindandi og er...
13/08/2026

💦 Rigning í kortunum? Veljum útiföt án PFAS efna.

PFAS efni eru notuð til að gera hluti vatns- og fitufráhrindandi og eru óæskileg fyrir heilsu og umhverfi ⚠️

Hvernig getum við forðast þessi efni?

✅ Valið vörur sem merktar eru PFAS-fríar
✅ Valið potta og pönnur úr keramiki, ryðfríu stáli eða steypujárni í staðinn fyrir non-stick
✅ Valið vörur með umhverfismerki, til dæmis Svansmerkinu
✅ Forðast skyndibita og matvæli sem er vafinn inn í fitufráhrindandi pappír
✅ Hugsað okkur tvisvar um þegar kemur að því að vatnsverja og skoða hvaða efni eru í vatnsvörninni
✅ Ryksugað og þurrkað af að minnsta kosti 1 x í viku, efnin loða við ryk

Meira 🔗 https://ust.is/hringrasarhagkerfi/graenn-lifstill/varasom-efni/listi-yfir-varasom-efni/pfas/

12/08/2026

😎 Hvað á svo að gera við sólmyrkvagleraugun? ♻️

11/08/2026

Gerðir þú eitthvað gott fyrir umhverfið í sumar? 😇 Við viljum heyra 👇

Við höfum reglulega sagt frá ETS⏺ hvernig það virkar⏺ hvaða starfsemi fellur undir⏺ hver tilgangurinn eren nú er komið a...
27/07/2026

Við höfum reglulega sagt frá ETS
⏺ hvernig það virkar
⏺ hvaða starfsemi fellur undir
⏺ hver tilgangurinn er
en nú er komið að því að kafa aðeins dýpra!

Af hverju er Ísland í ETS? 🇮🇸
Ísland hefur verið aðili að EES-samningnum frá upphafi og eitt þverlægra stefnumála samningsins er umhverfismál 🍃
ETS er hluti af umhverfisstefnu ESB og gildir því einnig á Íslandi.
Ísland hefur tekið þátt í ETS frá 2008 og að fullu frá 2013.

Undanfarið hefur heyrst mikil gagnrýni á ETS en af hverju?
Kostnaður hefur aukist fyrir fyrirtæki sem falla undir ETS. Þetta er til dæmis vegna þess að úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda, sem við höfum fjallað áður um, hefur dregist saman.

Hvert fara peningarnir? 💰
Meirihluti tekna af ETS rennur til ríkjanna sem taka þátt. Ríki í ESB eru skyldug til að nýta tekjurnar í loftslagsaðgerðir. Á Íslandi renna tekjurnar í ríkissjóð.
Hluti teknanna fara í Nýsköpunarsjóð ESB og Nútímavæðingarsjóð ESB.

Hvað með íslensk fyrirtæki? Hefur ETS sömu áhrif á þau?
ETS reglur eru þær sömu á EES-svæðinu en áhrifin geta verið ólík eftir starfsemi, staðsetningu, flutningsleiðum, losun og möguleikum til samdráttar í losun.
🏭 Sömu reglur gilda varðandi iðnað sem fellur undir ETS á Íslandi og annars staðar. Raforkuframleiðsla á Íslandi fellur þó ekki undir ETS þar sem hún er nánast af 100% endurnýjanlegum uppruna.
Ísland er eyja svo flutningsleiðir geta verið lengri en víða, sem getur haft áhrif á kostnað aðila sem falla undir ETS.
✈ Flugrekendur sem fljúga til og frá Íslandi geta sótt um viðbótarúthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda. Viðbótarúthlutunin er dregin frá tekjum af uppboðsheimildum Íslands.
♻ Flugrekendur sem nota sjálfbært flugvélaeldsneyti geta fengið stuðning vegna þeirrar notkunar. Það getur fengist hærri stuðningur vegna fluga til og frá Íslandi, Kýpur og Möltu en annarra fluga.

🌍 ETS var fyrsta viðskiptakerfið í heiminum sem setti verð á losun gróðurhúsalofttegunda með markaðslausn. Í dag eru yfir 40 sambærileg kerfi víðs vegar um heiminn og fleiri í þróun. Stærsta viðskiptakerfið með losun gróðurhúsalofttegunda er það kínverska.

Hvað býr í jarðveginum undir húsinu þínu? 🤔Gamlir öskuhagar eða urðunarstaðir? 🗑Gamlar riðugrafir? ☠Olía sem hefur lekið...
23/07/2026

Hvað býr í jarðveginum undir húsinu þínu? 🤔
Gamlir öskuhagar eða urðunarstaðir? 🗑
Gamlar riðugrafir? ☠
Olía sem hefur lekið eða verið grafin í jörðina? 🛢
Efnaleifar eftir gamlar brennur? 🔥
Spilliefni frá gömlum iðnaði? 🏭

Sem betur fer er stærstur hluti jarðvegsins á Íslandi heilbrigður og ómengaður 😮‍💨
en við söfnum ábendingum um mögulega mengaðan jarðveg ☝
svo komandi kynslóðir viti hvað býr í jörðinni!

Þú getur skoðað hvað leynist í þínu nágrenni á 🔗 ust.is/mengadurjardvegur
Hjálpaðu okkur að safna upplýsingum og spurðu eldri kynslóðina í kringum þig 🧓🧑‍🦰

Hvað er þetta ETS kerfi? 🤔ETS er viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og er eitt helsta stjórntæki ESB í loftslagsmál...
21/07/2026

Hvað er þetta ETS kerfi? 🤔
ETS er viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og er eitt helsta stjórntæki ESB í loftslagsmálum 💨
ETS gildir á EES svæðinu, það er ESB, Íslandi, Noregi og Liechtenstein og fyrirtæki falla undir ETS ef þau starfa á EES, óháð því hvar þau eru skráð 🇪🇺🇮🇸🇳🇴🇱🇮

Tilgangur ETS er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda ⤵
Fyrirtæki sem falla undir ETS þurfa að kaupa losunarheimildir vegna losunar gróðurhúsalofttegunda í samræmi við regluna um að sá sem mengi greiði 💵

Með ETS er sett þak á losun gróðurhúsalofttegunda með því að stjórna framboði losunarheimilda. Eftirspurnin fer eftir losun frá fyrirtækjunum og ferð verð losunarheimilda eftir framboði og eftirspurn.

ETS stjórnar ekki hvar eða hvernig er dregið úr losun. Ef það er ódýrara að draga úr losun en að kaupa losunarheimildir er líiklegt að fyrirtæki geri breytingar á starfseminni til að draga úr losun.

Á Íslandi fellur:
☑ framleiðsla áls, kísils, kísiljárns og steinullar 🏭
☑ brennsla eldsneytis í stöðvum þar sem uppsett afl er 20 MW eða meira 🛢
☑ niðurdæling koldíoxíðs ⬇
☑ flug milli Íslands og annarra EES ríkja ✈
☑ flest innanlandsflug 🛬
☑ sjóflutningar til og frá Íslandi og milli tveggja íslenskra hafna
undir ETS.

ETS hefur skilað miklum árangri! 👏
Frá 2005 hefur náðst yfir 50% samdráttur í losun sem fellur undir ETS!
Markmiðið er að alls náist 62% samdráttur fyrir 2030, miðað við 2005.

En hvernig geta fyrirtækin dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda? 🤔
1⃣ Einfaldasta leiðin fyrir mörg fyrirtæki er að skipta jarðefnaeldsneyti út fyrir rafmagn eða annað eldsneyti.
2⃣ Ýmis tækniþróun hefur átt sér stað sem dregur úr losun í iðnaðarferlum.
3⃣ Það er hægt að fanga losun koltvísýrings og nýta eða dæla niður og fyrirtæki þurfa ekki að kaupa losunarheimildir fyrir losun sem hefur verið fönguð varanlega.
💡 Nýsköpunarsjóður ESB veitir fyrirtækjum styrki til að vinna að tækninýjungum sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

En færa fyrirtækin sig ekki bara annað?
Fyrirtæki í iðnaði geta sótt um endurgjaldslausar losunarheimildir og markmið þeirra er að koma í veg fyrir kolefnisleka, að fyrirtæki færi sig annað, og styrkja samkeppnisstöðu evrópskra fyrirtækja 💪

Flugfélög hafa hingað til fengið endurgjaldslausar losunarheimildir vegna stórs hluta losunar en þeim hefur að mestu verið fasað út.
Á því eru þó tvær endurtekningar:
1⃣ Flugfélög sem fljúga til og frá Íslandi geta sótt um viðbótarúthlutun til íslenska ríkisins vegna þeirra fluga. Úthlutunin er dregin frá tekjum íslenska ríkisins af uppboðsheimildum.
2⃣ Flugfélög sem nota sjálfbært flugvélaeldsneyti geta fengið losunarheimildir sem jafngilda hluta verðmunar á því og hefðbundnu flugvélaeldsneyti.

Viltu vita meira um ETS?
Kíktu á uos.is/ets.

Tölum aðeins um hreinsiefni ⬇Finnst þér allt virka hreinna þegar þú finnur hreingerningarlykt?Við erum vön því að hreing...
15/07/2026

Tölum aðeins um hreinsiefni ⬇

Finnst þér allt virka hreinna þegar þú finnur hreingerningarlykt?
Við erum vön því að hreingerningarlykt sé af hinu góða. Hún getur hins vegar stafað af skaðlegum efnum í hreinsivörunum ⚠
💡Veljum umhverfisvottuð hreinsiefni - þau eru án skaðlegra ilmefna!

Þurfum við alla brúsana?
Því færri hreinsiefni, því minna af skaðlegum efnum fyrir okkur og heimilið 🤝
💡Oft virkar ein góð vara á marga fleti og bletti. Við þurfum heldur ekki alltaf eins mikið af efnunum og við höldum.

Sleppum kokteilum í þvottahúsinu ☠
💡Lesum leiðbeiningar og blöndum ekki hvaða efnum sem er saman.
➡ Blöndum aldrei klór og sýru saman, til dæmis klór og salernishreinsi. Sýra og basi geta tekið virknina af hvort öðru og virka þá ekki lengur sem hreinsiefni.

✨Bónusráð ✨
Íslenskt vatn 💧 er mjúkt og við getum því notað minna af þvottaefnum en víða annars staðar.
💡Prófum okkur áfram með að minnka þvottaefnaskammtinn = ódýrara og umhverfisvænna ☘

Við hjá Umhverfis- og orkustofnun og HMS vekjum athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efna...
13/07/2026

Við hjá Umhverfis- og orkustofnun og HMS vekjum athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu ⚠️

Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust!

Nánari upplýsingar í frétt vöruvaktarinnar👇

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af bense...

Raforkusparnaður á við notkun 15.000 heimila 👏 Á hverju ári spara verkefni styrkt af Loftlags- og orkusjóði um 23 milljó...
10/07/2026

Raforkusparnaður á við notkun 15.000 heimila 👏

Á hverju ári spara verkefni styrkt af Loftlags- og orkusjóði um 23 milljónir lítra af olíu og 59 GWst af raforku, það samsvarar árlegri raforkunotkun um 15.000 heimila eða 20.000 rafbíla 🏠

Áætlað er ávinningurinn skili sér í allt að 15 ár og stuðli að 93 milljarða olíu- og raforkusparnaði ⚡

Þetta kemur fram í ársskýrslu Loftslags- og orkusjóðs 2025 👇

Olíusparnaður vegna verkefna sem hlutu styrk úr Loftslags- og orkusjóði árið 2025 nam um 23 milljónum lítra á ársgrundvelli. Þá nam nettó raforkusparnaður vegna styrktra verkefna 59 GWst á ári, sem samsvarar árlegri raforkunotkun um 15.000 heimila eða um 20.000 rafbíla.

Frí á næsta leiti? Undirbúum okkur svona... #1 Borðum það sem er til heima dagana fyrir brottför:👃 Notum nefið frekar en...
26/06/2026

Frí á næsta leiti? Undirbúum okkur svona...

#1 Borðum það sem er til heima dagana fyrir brottför:

👃 Notum nefið frekar en „best fyrir“ dagsetningar
Notum skynfærin frekar en að henda mat sem er kominn yfir „best fyrir“ dagsetningu — margt er enn í góðu lagi.

❄️ Frystum
Frystum mat sem við náum ekki að klára áður en lagt er af stað.

🥪 Nýtum í nesti
Nýtum afganga í nesti fyrir ferðalagið – hentugt, sparnaður og minnkar matarsóun.

🙏 Gefum öðrum
Gefum góðan mat til nágranna eða í frískáp ef hann nýtist okkur ekki.

#2 Tökum með fjölnota og forðumst einnota til að minnka rusl, plastnotkun og umhverfisáhrif í ferðalaginu.

🍴 Borðbúnaður

💧 Vatnsbrúsar

🥤 Kaffimál

🍱 Nestisbox

🎒 Burðarpokar

🧼 Tuskur og þvottapokar

#3 Eyðum ekki óþarfa orku heima á meðan við erum í burtu:

🔌Slökkvum á og tökum raftæki úr sambandi
Slökkvum og tökum úr sambandi öll ónotuð raftæki til að draga úr raforkunotkun og minnka eldhættu.

💡Slökkvum á ljósum
Slökkvum á öllum ljósum — nema ef öryggissjónarmið krefjast annars.

🌡️ Lækkum í ofnum
Stillum ofna á lágan hita til að spara orku á meðan við erum í burtu.

🚪Lokum hurðum og gluggum
Tryggjum að gluggar og hurðir séu lokaðar til að koma í veg fyrir varmatap.

🪟 Drögum fyrir
Drögum fyrir til minnka hitatap í gegnum glugga.

Address

Suðurlandsbraut 24
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 08:30 - 15:00
Tuesday 08:30 - 15:00
Wednesday 08:30 - 15:00
Thursday 08:30 - 15:00
Friday 08:30 - 15:00

Telephone

+3545912000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Umhverfis- og orkustofnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share