28/06/2026
Fyrsta hálendisvaktin með félögum okkar, Súlur frá Akureyri, er komin á sinn stað og vaktar Fjallabakið. Aðrar sveitir taka svo við keflinu í næstu viku og hópar verða þá til taks víðar á hálendinu.
Þetta er 20. sumarið sem félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg sinna vaktinni en 19 ár eru síðan Kjölur fyrst tók þátt og þá á Kili (skemmtilegur orðaleikur þar) Öll sumur síðan hefur sveitin farið til fjalla og sumir félagar ekki misst úr eitt einasta ár. Verkefnin hafa verið fjölbreytt og mis alvarleg eins og gengur. Ýmislegt sem telst minni háttar í byggð, getur orðið alvarlegt á fjöllum.
Í ár verður Kjölur með bækistöð í Herðubreiðarlindum um miðjan ágúst. Þetta er fyrsta vaktin okkar á svæðinu norðan Vatnajökuls og mikil tilhlökkun að kynnast aðstæðum og fjallasýnina á þeim slóðum.