Orkuveitan

Orkuveitan Orkuveitan styður vaxandi samfélög, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu. Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.

Fyrirtæki Orkuveitunnar eru Orka náttúrunnar, Veitur, Ljósleiðarinn og Carbfix.

14/08/2026
Það var okkur sönn ánægja að taka á móti japönskum þingmönnum í fylgd Keizo Takewaka, sendiherra Japans á Íslandi, og se...
07/08/2026

Það var okkur sönn ánægja að taka á móti japönskum þingmönnum í fylgd Keizo Takewaka, sendiherra Japans á Íslandi, og sendiráðunauts. 🇮🇸🇯🇵

Gestirnir sýndu mikinn áhuga á íslenskri nýsköpun á sviði jarðhita og kynntu sér meðal annars djúpborunarverkefnið IDDP-3, þar sem stefnt er að borun þriðju holunnar síðar á árinu. Einnig fengu þeir innsýn í lausnir Carbfix til föngunar og varanlegrar steinbindingar koltvísýrings.

Áhugi á starfsemi Orkuveitunnar og íslenskum lausnum í orkumálum heldur áfram að vaxa á alþjóðavísu, enda hefur Ísland margt fram að færa þegar kemur að endurnýjanlegri orku og loftslagslausnum. 🌍💚

07/08/2026

Við trúum því að öflug samfélög verði til þegar fólk fær að vera það sjálft.

Jafnrétti og inngilding eru ekki tímabundin verkefni heldur hluti af því hvernig við viljum starfa alla daga. Hjá Orkuveitunni leggjum við áherslu á að fólk njóti jafns réttar og sömu tækifæra og að fjölbreytileiki fái að blómstra, eins og sjá má í jafnréttisstefnu okkar.

Við stöndum með hinsegin samfélaginu í dag og alla daga. 💚
🌈 Gleðilega Hinsegin daga!

05/08/2026

Það má vera gaman þegar maður gerir gagn! 🌲🎉🌳

27/07/2026

Flott samvinna hjá Veitum og Listaháskóla Íslands 😍

Áður fyrr hittist fólk við vatnspóstana og þvottalaugarnar til að sækja vatn, þvo þvottinn — og auðvitað skiptast á nýju...
21/07/2026

Áður fyrr hittist fólk við vatnspóstana og þvottalaugarnar til að sækja vatn, þvo þvottinn — og auðvitað skiptast á nýjustu fréttum og slúðri bæjarins. 💧🫧

Í dag kemur þetta allt beint heim: drykkjarvatnið frá Veitum, heita vatnið frá ON og fréttirnar (og slúðrið) með Ljósleiðaranum.

Frá jarðhita til varanlegrar kolefnisbindingar 🌍Franski utanríkisráðherrann Jean-Noël Barrot heimsótti Hellisheiðarvirkj...
21/07/2026

Frá jarðhita til varanlegrar kolefnisbindingar 🌍

Franski utanríkisráðherrann Jean-Noël Barrot heimsótti Hellisheiðarvirkjun og kynnti sér íslenskar lausnir í endurnýjanlegri orku, sjálfbærum innviðum og loftslagsmálum.

Heimsóknin endurspeglar þann mikla alþjóðlega áhuga sem er á íslenskri þekkingu — og þeim lausnum sem hér hafa verið þróaðar en geta nýst langt út fyrir landsteinana. 🇮🇸🇫🇷

https://f.mtr.cool/mmlvpuxcte

Emma Soffía er alltaf prjónandi og sá eiginlega eftir því að hafa ekki tekið prjónana með sér í viðtalið.Emma lærði fyrs...
09/07/2026

Emma Soffía er alltaf prjónandi og sá eiginlega eftir því að hafa ekki tekið prjónana með sér í viðtalið.

Emma lærði fyrst hagfræði og færði sig svo í umhverfis- og loftslagsmál. Þetta samtvinnast vel í starfi hennar hjá Orkuveitunni þar sem hún sér um loftslagsbókhald.

„Loftslagsbókhald er í rauninni bara eins og fjárhagsbókhald að mörgu leyti. En í staðinn fyrir að telja peninga erum við að telja losun.“

Það sem henni finnst gefandi er þegar vinnan verður loksins sýnileg. Þegar aðgerð sem hefur verið rædd, reiknuð og ýtt áfram fer að skila sér í gögnunum. Eins og þegar bílafloti Veitna fór að nota eldsneyti sem losar minna. „Núna er ég síðan að sjá alltaf á gögnunum mánaðarlega að það minnkar raunverulega losun.“

Í skrifstofustarfi er ekki alltaf hægt að benda á eitthvað og segja: þetta bjó ég til. En stundum birtist afurðin í einni tölu sem lækkar.

„Þarna dró ég úr losun. Það breytti einhverju. Alveg eins og þegar maður sér peysuna sem maður var að prjóna.“

Address

Bæjarháls 1
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

5166100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Orkuveitan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share