Hreyfingin

Hreyfingin - Fyrir fólkið í landinu - http://www.hreyfingin.is [email protected]

Once elected, I went inside the system, to the heart of it, the legislative assembly, like a hacker, analyzing its stren...
17/01/2015

Once elected, I went inside the system, to the heart of it, the legislative assembly, like a hacker, analyzing its strengths and weaknesses.
My conclusion is that the rule of law is an illusion: the rules we vote on do not apply to all, and thus there is no rule of law. Laws should be considered universal and the same rule of law should apply to all, not only the 99%.
I now see most of our democracies as one dictatorship with 100 talking-heads on the neck of a corporate monster.

Activist and Icelandic Pirate Party MP Birgitta Jónsdóttir on what we can do and the tools we can all use to strengthen democracy and make it real.

18/11/2013

FRÉTTATILKYNNING FRÁ HREYFINGUNNI

Hreyfingin lögð niður

Á landsfundi Hreyfingarinnar þann 16. nóvember var samþykkt einróma að Hreyfingin skyldi lögð niður í samræmi við 1. grein í kaflanum um félagsslit í samþykktum Hreyfingarinnar, en þar segir:

„Þegar markmiðum Hreyfingarinnar er náð eða augljóst er að þeim verði ekki náð mun Hreyfingin hætta starfsemi og hún lögð niður.“

Hreyfingin á rætur sínar í Borgarahreyfingunni sem var stofnuð sem róttækt umbótaafl í íslenskum stjórnmálum í aðdraganda kosninganna árið 2009 og starfaði Hreyfingin ætíð í þeim anda. Hreyfingin hafnaði styrktarfé frá lögaðilum, hafði engan formann og notaðist við samhljóða (consensus) ákvörðunartöku í starfi sínu. Hreyfingin tók afstöðu til allra mála á þeirra eigin forsendum og hafnaði gamalgróinni hefð flokksátaka Fjórflokksins.
Í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga beitti Hreyfingin sér fyrir stofnun breiðfylkingar gegn ríkjandi stjórnmálaumhverfi og bauð fram undir merkjum Dögunar. Úrslit kosninganna eru öllum kunn og Fjórflokkurinn hefur hér enn öll völd.
Hreyfingin óskar þjóðinni velfarnaðar með þá framtíðarsýn sem hún valdi sér í kosningunum en er enn þeirrar skoðunar að eina leið íslensks samfélags og stjórnmála úr því öngstræti sem við erum föst í sé með nýju stjórnaskránni sem var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 20. október 2012. Sú stjórnarskrá er raunveruleg stjórnarskrá íslensku þjóðarinnar, stjórnarskrá sem hún hefur sjálf samið og samþykkt. Höfnun Fjórflokksins á Alþingi á lýðræðislegri niðurstöðu þjóðaratkvæðgreiðslunnar er því ekkert annað en hreint og klárt valdarán pólitískrar yfirstéttar í landinu.
Hreyfingin þakkar öllu samferðafólki fyrir undanfarin ár og hvetur til áframhaldandi andófs.

Lýðræði er samræða um val - Flokksræði er samráð um völd

Erindi úr Heimsósómakvæði
Töpuð er trúin og baráttan búin í byltingarflokki
velferðarbrúin er brotin og fúin og brestir í stokki,
þjóðin er lúin og framseld og flúin og flestir í sjokki,
hrakin og snúin og hamingju rúin í helvítis fokki.

Bjarki Karlsson, Árleysi alda 2013

Hreyfingin, 18. nóvember 2013

03/03/2013

Í fimm ár hafa heimilin í landinu mátt kljást við mikla hækkun lána sinna. Þessa hækkun má rekja til umfangsmikilla lögbrota sem fram voru af eigendum og stjórnendum Glitnis, Kaupþings og Landsbanka Íslands og fjölmargra annarra smærri fjármálafyrirtækja

27/02/2013

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að vantrauststillaga á ríkisstjórnina sé enn í skoðun hjá sér. Það fari eftir því hvort að stjórnarskrármálið verði tekið fyrir á næstunni.

20/02/2013

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, lagði síðdegis fram þingsályktunartillögu um vantraust á ríkisstjórnina. Hann vill að þing verði rofið eigi síðar en 28. febrúar næstkomandi og að starfsstjórn skipuð fulltrúum allra flokka taki við af ríkisstjórninni.

,,Ef menn ætla að reyna að komast hjá því að láta lántaka njóta einhvers ávinnings af því sem mér virðist bréf framkvæmd...
16/02/2013

,,Ef menn ætla að reyna að komast hjá því að láta lántaka njóta einhvers ávinnings af því sem mér virðist bréf framkvæmdastjórnar ESB bera með sér, þá verð einfaldlega allt brjálað. Því er skynsamlegt að fara leið Hreyfingarinnar."

Í meira og minna rúm fjögur ár hefur hópur fólks haldið upp baráttu fyrir því að stökkbreytt lán heimilanna verði leiðrétt. Stjórnvöld slógu skollaeyrum við óskum okkar og áeggjan, enda virtust orð forsvarsmanna fjármálafyrirtækjanna vega þyngra í

11/02/2013

Þór Saari hefur lagt fram dagskrártillögu í þá veru að fiskveiðistjórnunarfrumvarp atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra verði tekið af dagskrá þingsins í dag og stjórnarskrármálið verði tekið á dagskrá í stað þess.

28/01/2013

Þinghópur Hreyfingarinnar fagnar niðurstöðu EFTA dómstólsins í Icesave-málinu. Sigurinn er margra, ekki síst allra þeirra sem lögðu nótt við dag að hindra að samningarnir næðu í

25/01/2013

„Ég er búinn að fá nóg af þingstörfum – að minnsta kosti í bili,“ segir þingmaðurinn Þór Saari sem hyggst taka oddasæti í uppstillingarnefnd Dögunar og getur því ekki skipað ...

23/01/2013

Ny Tid : Leter ved vulkanøy

23/12/2012

Address

Austurvöllur
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hreyfingin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Hreyfingin:

Share