Félag sjálfstæðismanna í Grafarvogi

Félag sjálfstæðismanna í Grafarvogi Göngum hreint til verks. Tryggjum atvinnu - Verjum heimilin Stétt með stétt.

28/07/2026

Guðlaugur Þór Þórðarson

28/07/2026

Diljá Mist

28/07/2026

Diljá Mist

28/07/2026

Diljá Mist

07/07/2026

Guðlaugur Þór Þórðarson fer yfir hlutina

Diljá Mist með góðan málfluttning hér.
07/07/2026

Diljá Mist með góðan málfluttning hér.

Mogginn í dag þrátt fyrir sumarfrís-plan Kristrúnar 😉

Enn ein greinin frá Pawel Bartoszek þar sem hann hvetur til að Ísland treysti á ESB og evruna og verði þar í slagtogi við skuldugustu ríkin. Hann lætur þess ekki getið að í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Sviss eru lágir vextir. Ekkert ríkjanna hefur veðjað á evruna, enda er það hættuspil.

Pawel nefnir það heldur ekki að íbúar ESB eru að jafnaði eldri en Íslendingar þegar þeir eignast húsnæði. Eins og Konráð Guðjónsson hefur bent á, er meðalaldur fyrstu kaupenda á Íslandi og í ESB svipaður (þó lægri á Íslandi). Enda er málflutningurinn til handa ungu fólki aðeins handvalinn.

Hann nefnir Rúmeníu hins vegar sérstaklega. Hátt hlutfall Rúmena sem býr í eigin húsnæði hefur hins vegar lítið að gera með lága vexti. Hlutfallið er fyrst og fremst arfleifð sölu ríkisíbúða á mjög lágu verði eftir fall kommúnismans.

Hann gerir svo sérstaka grein fyrir því að aðeins 47% Þjóðverja búa í eigin húsnæði. Mér finnst hann sleppa því sem máli skiptir í þessu fyrirmyndarríki Evrópusambandsins. Þar eru miklar hindranir í vegi ungs fólks sem vill eignast eigið húsnæði. Svo sem há útborgun, stimpilgjöld eða skattur af fasteignakaupum o.s.frv. Auk þess er ekkert skattahagræði þeim til handa sem kjósa að búa í eigin húsnæði. Fólk er því nauðbeygt til að leigja og eignast þar af leiðandi ekki fasteignir sem eru ein helsta eignamyndun almennings hér á landi.

Reyndar svipar þessu að hluta til ástandsins sem Samfylkingin og Viðreisn, m.a. borgarfulltrúinn Pawel Bartoszek, mótuðu. Þá var stefna þeirra einmitt að leggja stein í götu þeirra sem kjósa að búa í eigin húsnæði og hvetja þess í stað til uppbyggingar leiguhúsnæðis.

Nú er sögulegt tækifæri í boði sem mun aldrei koma upp aftur.Tækifæri til að eignast hluta af söguni.Á morgun föstudagin...
25/06/2026

Nú er sögulegt tækifæri í boði sem mun aldrei koma upp aftur.

Tækifæri til að eignast hluta af söguni.

Á morgun föstudaginn 26. júní verður opinn markaður í Valhöll milli kl. 10 og 18 þar sem verður til sölu postulínstell og hótelsilfur sérmerkt Sjálfstæðisflokknum.

Um er að ræða stell sem áður var notað í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll. Eitthvað sem allir sjálfstæðismenn ættu að vilja eiga í sínum fórum.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Við þökkum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fyrir vel unnin störf á vettvangi Alþingis og það framlag sem hún hefur lagt ti...
04/06/2026

Við þökkum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fyrir vel unnin störf á vettvangi Alþingis og það framlag sem hún hefur lagt til samfélagsins á undanförnum árum.

Við óskum henni velfarnaðar og farsældar í þeim verkefnum sem fram undan eru og þökkum fyrir samstarfið og þjónustuna við landsmenn.

Það er gott að vera komin heim. Á Alþingi þar sem reglur samfélagsins verða til. Þar sem við spyrjum hvernig við gerum betur fyrir fólkið okkar. Tryggjum öryggi, frelsi og farsæld í landi sem er ríkt af tækifærum, auðlindum og mannauði. Það er ekki sjálfsagt að fá tækifæri til að taka þátt í því.

Nýverið fóru fram glæsilegar sveitarstjórnarkosningar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann sterka sigra um allt land. Það gerðist ekki af tilviljun heldur vegna þess að hugmyndafræðin um frelsi, ábyrgð, framtak og trú á einstaklinginn á enn sterkt erindi. Sú hugmyndafræði höfðaði líka til mín þegar ég var yngri. Hún kveikti neista og hún kallaði mig til verka.

Árið 2015, þá 24 ára gömul, fór ég í viðtal þar sem ég talaði um að stjórnmálin þyrftu að vera opnari fyrir ungu fólki og nýjum hugmyndum. Ég sagði þá, orðrétt: „Alþingi ætti að vera eftirsóknaverður staður til að starfa á í nokkur ár, en síðan á maður að geta farið annað. Við eigum að hætta að horfa á stjórnmál sem ævistarf.“

Ári síðar var ég kjörin á þing. Og nú eru liðin tíu ár. Ég hef gefið stjórnmálunum öll mín fullorðinsár. Ég hef fengið þann heiður að vera þingmaður Reykvíkinga, sitja í forystu Sjálfstæðisflokksins, gegna embætti dómsmálaráðherra og síðar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Ég hef gefið mig alla í verkefnin. Lært, þroskast og kynnst fólki um land allt. Ég hef séð styrkinn í íslensku þjóðinni. Séð hvað gerist þegar frelsi, ábyrgð og tækifæri fara saman. Og með því að fara frá Íslandi um tíma áttaði ég mig líka á öðru: að reynslan sem ég hef öðlast hér inni getur líka nýst á öðrum vettvangi.

Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi.

Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina.
Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum.

Þakklæti er mér efst í huga á þessari stundu. Frá mínum dýpstu hjartarótum vil ég þakka samstarfsfólki, Sjálfstæðismönnum sem veittu mér tækifærið og starfsfólki Alþingis fyrir samfylgdina. Ég vil þakka stuðninginn, hvatninguna, vinnuna og gleðina síðustu ár.

Við mælum með þessari grein eftir Diljá Mist.
31/05/2026

Við mælum með þessari grein eftir Diljá Mist.

Lægri vextir (stundum 100 milljarðar á ári – stundum 500!) og 25% lægra matvöruverð. Allt þetta án nokkurra skuldbindinga og lítils ef nokkurs fórnarkostnaðar af Íslands hálfu - allt fyrir ekkert!

Skrifaði um víkingalottóauglýsingar ESB-sinna í Viðskiptablaðið og hvatti þá sem hafa skoðun á framtíð Íslands að láta ekki sitt eftir liggja í umræðunni um aðild Íslands að ESB.

Grein í fyrstu athugasemd.

28/05/2026

Er það til of mikils mælst að ráðherrar og stjórnarliðar sem saka aðra um að „dreifa falsupplýsingum“, jafnvel um lygar, valdi ekki stöðugri upplýsingaóreiðu þegar við ræðum hér aðild Íslands að ESB?

Skoðun dagsins um meintan krónuflótta. Grein í fyrstu athugasemd👇

Address

Hverafold 3, 2. Hæð
Reykjavík
112

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félag sjálfstæðismanna í Grafarvogi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Félag sjálfstæðismanna í Grafarvogi:

Shortcuts

Share