Gigtarfélag Íslands

Gigtarfélag Íslands Byggjum upp og bætum líðan Gigtarfélagið stendur fyrir sjúkraþjálfun, vatnsleikfimi og þjálfun á höndum. Einnig er gefið út fræðsluritið Gigtin, 1x-2x á ári.

Félagið heldur námskeið og fræðslufundi um gigtarsjúkdóma og tengd efni.

13/08/2026

Nú hefur framkvæmdastjóri Gigtarfélagsins lokað hringnum og dreift fræðsluefni um land allt. Mikið fræðsluefni er á heimasíðu Gigtarfélagsins, gigt.is og mun meira efni bætast við á síðuna á næstu dögum.

13/08/2026

Hringferð Gigtarfélagsins heldur áfram og nú er fræðsluefni komið á allt Austurland. Við hvetum alla félaga til að skrá sig í landshlutadeild fyrir sitt svæði. Í október fer Stefán annan hring með Stebba Jak tónlistarmanni og halda þeir fræðslufundi og tónleika víða um landið.

12/08/2026

Hringferð Gigtarfélagsins heldur áframa og var fræðsluefni afhent á Seyðisfirði í dag.

12/08/2026

Í ár eru liðin 50 ár frá stofnun Gigtarfélagsins. Af því tilefni höfum við gert veglegan bækling um hryggbólgusjúkdóma og mikið af fræðsluefni sem er á heimasíðu félagsins. Framkvæmdastjóri félagsins er nú á ferð og flugi um landið að dreifa fræðsluefni til heilbrigðissstofnanna og vekja athygli á því að félagið þjónar öllum landsmönnum hvar sem er á landinu. Við getum fylgst með ferðalaginu hér.

10/08/2026
Hér finnið þið alla flottu hlauparana sem ætla að hlaupa fyrir Gigtarfélagið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ár. Vi...
09/08/2026

Hér finnið þið alla flottu hlauparana sem ætla að hlaupa fyrir Gigtarfélagið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ár. Við erum óendanlega þakklát þeim fyrir stuðninginn og það að þau taki þátt og veki athygli á gigtarsjúkdómum. Við hvetjum alla til að heita á þau á hlaupastyrkur.is. Söfnunarfé fer allt í stuðning við fólk með gigt og í gerð fræðsluefnis um gigt á íslensku en lítið er til af fræðsluefni á íslensku.https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/godgerdamal/492-gigtarfelag-islands

Tilgangur Gigtarfélags Íslands er „að bæta lífsgæði fólks með gigtarsjúkdóma“ . Hlutverk félagsins er að upplýsa, fræða og styðja gigtarfólk í hvívetna. Starfið miðast við félagsstarf og forvarnir í víðum skilningi. Hjá Gigtarfélaginu má finna viðhaldsendurhæfingu...

Address

Brekkuhús 1, Jarðhæð
Reykjavík
112REYKJAVÍK

Telephone

+3545303600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gigtarfélag Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Gigtarfélag Íslands:

Shortcuts

Share