Árnastofnun

Árnastofnun Á Árnastofnun er unnið að rannsóknum í íslenskum fræðum og skyldum fræðigreinum.

Hér er hægt að horfa á fyrirlestur sem Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar og prófessor við Háskóla Íslands, flut...
20/08/2026

Hér er hægt að horfa á fyrirlestur sem Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar og prófessor við Háskóla Íslands, flutti í Eddu 15. ágúst síðastliðinn í tengslum við handritasýninguna Heimur í orðum / World in Words.

Í erindinu fjallaði Guðrún um Bergsbók sem er eitt þeirra glæsilegu handrita sem fengin hafa verið að láni úr Konungsbókhlöðu í Stokkhólmi á sýninguna. Handritið var skrifað á Íslandi um 1400 en flutt til Noregs á sextándu öld, fór þaðan til Danmerkur og loks til Svíþjóðar.

Það er feikistórt, meira en 200 blöð, og geymir sögurnar miklu um Ólaf Tryggvason og Ólaf helga, sem hafa þegar hér er komið sögu vaxið mjög og innlimað margs konar efni um konungana, eins og Íslendingasögurnar Hallfreðar sögu og Fóstbræðra sögu.

Milli sagnanna tveggja eru skrifuð stórkostleg stök kvæði um konungana tvo, þar á meðal Geisli Einars Skúlasonar og sjálf Lilja í elstu varðveittu gerð. Í Bergsbók eru ritaðar meira en 650 vísur og verður í erindinu hugað að þessu margbreytilega og merkilega efni og skáldunum sjálfum. Handritið er nefnt eftir Bergi Sokkasyni, ábóta á Munkaþverá, sem í handritinu er sagður hafa ritað Ólafs sögu Tryggvasonar.

Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar og prófessor við HÍ, flu...

20/08/2026

Hvað er á seyði hjá Árnastofnun? Lítum við hjá safnkennaranum.

Komið og nælið ykkur í fróðlegt og fræðandi efni á sumarútsölunni okkar í Eddu. 🌞📚 Henni lýkur kl. 17 á morgun (21. ágús...
20/08/2026

Komið og nælið ykkur í fróðlegt og fræðandi efni á sumarútsölunni okkar í Eddu. 🌞📚 Henni lýkur kl. 17 á morgun (21. ágúst).

Jarðhæð Eddu er samskomustaður fyrir alla. Þar er kaffihúsið Ýmir og handritasýningin Heimur í orðum og þar eru regluleg...
19/08/2026

Jarðhæð Eddu er samskomustaður fyrir alla. Þar er kaffihúsið Ýmir og handritasýningin Heimur í orðum og þar eru reglulega haldnir tónleikar, fjölskyldusmiðjur og fyrirlestrar auk annarra viðburða. Nánari upplýsingar í fyrstu athugasemd.

Allt frá árinu 1949 hefur menntamálaráðuneytið veitt erlendum námsmönnum styrki til að stunda nám í íslensku sem öðru má...
13/08/2026

Allt frá árinu 1949 hefur menntamálaráðuneytið veitt erlendum námsmönnum styrki til að stunda nám í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands.

Árið 2010 tók Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að sér umsýslu með styrkjunum. Þeir eru einkum ætlaðir þeim sem þegar hafa lagt stund á íslensku eða önnur norræn mál í heimalöndum sínum. Styrkþegarnir hafa komið frá um 40 löndum í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu.

Styrkir til erlendra námsmanna til að stunda nám í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands árið 2026.

Bókin Agnesarkver eftir Natalie M. Van Deusen, prófessor við Alberta-háskóla í Edmonton í Kanada, er komin út hjá Stofnu...
12/08/2026

Bókin Agnesarkver eftir Natalie M. Van Deusen, prófessor við Alberta-háskóla í Edmonton í Kanada, er komin út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Í Agnesarkveri er greinargott yfirlit yfir heimildir um Agnesi og sögu hennar auk þess sem texti kvæðanna fjögurra er birtur ásamt inngangi og fræðilegri umfjöllun. Myndir sem tengjast sögu Agnesar prýða bókina og henni fylgir nafnaskrá. Ritstjórar bókarinnar eru Annette Lassen og Margrét Eggertsdóttir.

Sjá hlekk í fyrstu athugasemd fyrir nánari upplýsingar.

Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum fór fram 15.–25. júní í Eddu og var að þessu sinni afar fjölsóttur.
14/07/2026

Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum fór fram 15.–25. júní í Eddu og var að þessu sinni afar fjölsóttur.

Sumarskóli í handritafræðum fór fram 15.–25. júní 2026 í Eddu og var að þessu sinni afar fjölsóttur.

Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við ...
08/07/2026

Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands árið 1986.

Af því tilefni gáfum við okkur á tal við nokkra aðila sem hafa verið viðloðandi skólastarfið gegnum tíðina til að spyrjast fyrir um sögu og þróun námskeiðanna.

Niðurstaðan eru tveir þættir sem hlýða má á í hlekknum hér fyrir neðan.

Við gáfum okkur á tal við nokkra aðila sem hafa verið viðloðandi skólastarfið gegnum tíðina til að spyrjast fyrir um sögu og þróun námskeiðanna.

Uppsala-Edda er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Oft er texti hennar á skjön við hin handritin og hefur það lön...
07/07/2026

Uppsala-Edda er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Oft er texti hennar á skjön við hin handritin og hefur það löngum valdið fræðimönnum heilabrotum.

Hér er hægt að hlusta á fyrirlestur Hauks Þorgeirssonar um Uppsala-Eddu sem fluttur var í Eddu fyrir skemmstu.

Hér er hægt að hlusta á fyrirlestur sem Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, flutti í Eddu 20. júní 2026.

Tímaritið Orð og tunga óskar eftir greinum til birtingar í 29. hefti tímaritsins (2027). Frestur til að skila greinarhan...
06/07/2026

Tímaritið Orð og tunga óskar eftir greinum til birtingar í 29. hefti tímaritsins (2027). Frestur til að skila greinarhandritum er til 15. október 2026.

Tímaritið Orð og tunga óskar eftir greinum til birtingar í 29. hefti tímaritsins (2027).

Address

Arngrímsgata 5
Reykjavík
107

Opening Hours

Monday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Friday 10:00 - 12:00

Telephone

+3545254010

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Árnastofnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Árnastofnun:

Shortcuts

Share