Rás 1

Rás 1 Útvarp allra landsmanna - FM 93,5 og 92,4. Ríkisútvarpið var stofnað árið 1930 og hóf útsendingar 20.

desember það ár. Það starfar á grundvelli laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu . Ríkisútvarpið skal stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjölbreytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi með fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Það skal leggja rækt við íslenska tungu, menningu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð. Fjölmiðlaefnið skal vera fréttir og fréttaskýr

ingar, fræðsluþættir, íþróttaþættir, afþreying af ýmsum toga, lista- og menningarþættir og sérstakt efni fyrir börn og ungmenni.

Í dag klukkan 13 fer í loftið fimmti og síðasti þáttur Sigríðar Bjargar Tómasdóttur af Hljóðrás ævi minnar. Hægt er að h...
07/08/2026

Í dag klukkan 13 fer í loftið fimmti og síðasti þáttur Sigríðar Bjargar Tómasdóttur af Hljóðrás ævi minnar. Hægt er að hlusta á alla þættina í spilara RÚV.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.

Við þökkum hlustendum fyrir þægilegheitin og umburðarlyndið í Morgunglugga sumarsins. Morgunvaktin tekur við á ný eftir ...
07/08/2026

Við þökkum hlustendum fyrir þægilegheitin og umburðarlyndið í Morgunglugga sumarsins. Morgunvaktin tekur við á ný eftir helgi.

Berglind Viggósdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag 🎧Hún hefur misst tvo syni og hefur heitið því að berjast f...
05/08/2026

Berglind Viggósdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag 🎧

Hún hefur misst tvo syni og hefur heitið því að berjast fyrir bættum úrræðum innan kerfisins fyrir börn sem passa ekki inn í hið hefðbundna kerfi. Eftir að hafa barist í hljóði fyrir sonum sínum allt frá unga aldri ákvað hún að skila skömminni og gera sitt til að bæta kerfið í minningu þeirra.

Þú getur hlustað á viðtalið í heild sinni hér í spilara RÚV og á öllum helstu hlaðvarpsveitum 👉👉 https://www.ruv.is/utvarp/spila/segdu-mer-med-viktoriu-hermannsdottur/38216/bpasfp

„Á endanum er það fólkið sem kýs að gera ekki neitt sem veitir öfgaöflum brautargengi,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir, s...
04/08/2026

„Á endanum er það fólkið sem kýs að gera ekki neitt sem veitir öfgaöflum brautargengi,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, sem er meðal viðmælenda í fyrsta þætti nýrrar stuttþáttaraðar um bakslagið í málefnum hinsegin fólks hér á landi 🏳️‍🌈

Í fyrra kom út rannsóknarskýrsla, kortlagning á stöðu líðan og réttindum hinsegin fólks á Íslandi, þar sem í ljós kemur að líðan fólks virðist ekki í samræmi við þau lagalegu réttindi sem hafa náðst á síðustu áratugum.

Þáttaröðin er og verður ferðalag þar sem leitast er eftir svörum við stórum spurningum á borð við:
Hvað gerðist á síðustu árum og af hverju?
Hvað veldur bakslagi?

Þú getur hlustað á fyrsta þáttinn í Spilara RÚV og á öllum hlestu hlaðvarpsveitum 👉👉 https://www.ruv.is/utvarp/spila/meining/39138/bl7v1d

Sigríður Birna Sigvaldadóttir er sjálfboðaliði ársins hjá Rauða krossinum. Hún starfar með föngum í afplánun og segir st...
04/08/2026

Sigríður Birna Sigvaldadóttir er sjálfboðaliði ársins hjá Rauða krossinum. Hún starfar með föngum í afplánun og segir starfið afar gefandi.

Silja Sóley Birgisdóttir borgarfulltrúi, var gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Hún segist hafa komið sjá...
04/08/2026

Silja Sóley Birgisdóttir borgarfulltrúi, var gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Hún segist hafa komið sjálfri sér á óvart í kosningabaráttunni enda séu aðeins örfá ár síðan að hún var svo feimin og kvíðin að koma fram að hún fékk að flytja kynningar fyrir kennara sína í einrúmi. Þegar faðir hennar byrjaði að klæðast kvenmannsfötum fannst henni fyrst óþægilegt að athyglin beindist að þeim en segir þó fáa hafa kippt sér upp við það að hann klæddi sig eins og hann langaði til.
Hér má hlusta á viðtalið við Silju Sóleyju 👇
https://www.ruv.is/utvarp/spila/segdu-mer-med-viktoriu-hermannsdottur/38216/bpasfp

Vikulokin á Rás 1 á morgun kl. 11:02.Umsjónarmaður þáttarins er Urður Örlygsdóttir. Gestir hennar verða:• Kolbrún Bergþó...
31/07/2026

Vikulokin á Rás 1 á morgun kl. 11:02.

Umsjónarmaður þáttarins er Urður Örlygsdóttir. Gestir hennar verða:

• Kolbrún Bergþórsdóttir
• Jónas Hagan Guðmundsson
• Hermann Guðmundsson

Farið verður yfir helstu fréttir og málefni líðandi stundar. 📻

Sigurður Þorri heimsótti Morgungluggann og tók með sér plötu með Hank Williams. Við heyrðum hljóðritun frá útvarpsstöð s...
31/07/2026

Sigurður Þorri heimsótti Morgungluggann og tók með sér plötu með Hank Williams. Við heyrðum hljóðritun frá útvarpsstöð sem er eldri en Rás 1

Snorri Helgason er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag 🎧Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur verið heill...
30/07/2026

Snorri Helgason er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag 🎧

Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur verið heillaður af tónlist frá barnsaldri. Hann les allt sem hann kemst yfir um tónlist, meira segja ævisögur tónlistarmanna sem hann er ekki sérlega hrifinn af. Snorri missti föður sinn sama dag og útgáfutónleikar hans fóru fram og hann segir ekkert annað hafa komið til greina en að halda tónleikana og um leið minnast föður síns, tónlistarmannsins Helga Péturssonar 🎶

Þú getur hlustað á viðtalið í heild sinni hér í spilara RÚV og á öllum helstu hlaðvarpsveitum 👉👉 https://www.ruv.is/utvarp/spila/segdu-mer-med-viktoriu-hermannsdottur/38216/bpasfo

Address

Efstaleiti 1
Reykjavík
150

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Rás 1 posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category