Veitur

Veitur Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tengir samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu.

Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar.

Fertug hitaveitulögn fær hreinsun með svíni!💧🐷Veitur hafa hafið hreinsun og ástandsmat á Reykjaæð I, einni af mikilvægus...
03/06/2026

Fertug hitaveitulögn fær hreinsun með svíni!💧🐷

Veitur hafa hafið hreinsun og ástandsmat á Reykjaæð I, einni af mikilvægustu flutningsæðum hitaveitunnar sem flytur heitt vatn frá Mosfellsbæ að Perlunni.

Með sérstökum hreinsibúnaði, sem gjarnan er kallaður „svín“, eru útfellingar hreinsaðar innan úr lögninni og með því geta Veitur viðhaldið mikilvægum innviðum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt. 🌱

„Svínið burstar burt útfellingar sem eru fastar innan á lögninni og geta haft áhrif á flutningsgetuna. Þegar hreinsun er lokið þá sendum við skanna í gegnum hana til að kanna hvar þarf að bregðast við með fyrirbyggjandi viðhaldi. Þá getum við lagað lögnina þar sem þarf í staðin fyrir að taka hana alla upp og endurnýja“ segir Indriði Hauksson rekstrarstjóri hitaveitu.

Umhverfisvæn nýsköpun nýtt til að ástandsmeta 3,5 kílómetra af mikilvægri stofnlögn hitaveitunnar.

Að byggja upp innviði með loftslagið að leiðarljósi🌱Veitur standa frammi fyrir stóru verkefni á næstu árum - að finna au...
02/06/2026

Að byggja upp innviði með loftslagið að leiðarljósi🌱

Veitur standa frammi fyrir stóru verkefni á næstu árum - að finna aukinn forða heits vatns fyrir höfuðborgarsvæðið og tryggja örugga þjónustu fyrir vaxandi samfélag.

⚡Við jarðhitaleit verður notast við rafmagn þar sem því verður við komið og lífdísil annars staðar, sem getur dregið úr losun um allt að 90% miðað við notkun dísilolíu.
🚗 Orkuskipti eigin bílaflota Veitna er einnig í fullum gangi og stefnt er að því að ljúka því fyrir lok árs 2030.
♻️ Samhliða því er Veitur að þróa og innleiða lausnir sem draga úr losun, meðal annars með skurðlausum lausnum og nýjum leiðum til að nýta lífrænan úrgang úr fráveitu.

„Markmið Veitna er að draga úr áhrifum starfsemi sinnar á loftslagið,“ segir Bryndís Björnsdóttir, sérfræðingur Veitna í umhverfismálum.
Nánar👇

Markmið Veitna er að draga úr áhrifum starfsemi sinnar á loftslagið.

Silja verður á WGC 2026⚡Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna verður meðal fulltrúa Veitna á WGC 2026 í Calgary...
02/06/2026

Silja verður á WGC 2026⚡

Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna verður meðal fulltrúa Veitna á WGC 2026 í Calgary í júní, þar sem alþjóða samfélag jarðhitageirans kemur saman.
Silja flytur erindið: ,,Communicating Complexity: Innovative Public Outreach During a Major Hot Water Downtime in Iceland“.

//

Meet Silja at WGC 2026⚡

Silja Ingólfsdóttir, Communication Officer, will be among Veitur’s representatives at WGC 2026 in Calgary this June, where the global geothermal community will come together.
Silja will present “Communicating Complexity: Innovative Public Outreach During a Major Hot Water Downtime in Iceland”.

Hittu okkur á íslenska básnum á WGC2026 🌿Fulltrúar frá Veitum verða á íslenska básnum á World Geothermal Congress 2026 í...
29/05/2026

Hittu okkur á íslenska básnum á WGC2026 🌿

Fulltrúar frá Veitum verða á íslenska básnum á World Geothermal Congress 2026 í Calgary í Kanada
- Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla
- Rún Ingvarsdóttir, samskiptastýra
- Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi

Hægt verður að hitta fulltrúa Veitna:
🕒 Þriðjudag, 9. júní, kl. 14:00

//

Meet us at the Icelandic Pavilion at WGC2026 🌿

Representatives from Veitur will be available at the Icelandic Pavilion during the World Geothermal Congress 2026 in Calgary, Canada:
- Brynja Ragnarsdóttir, Managing Director Water Utilities
- Rún Ingvarsdóttir, Head of Communications
- Silja Ingólfsdóttir, Communications Officer

Meet the Veitur team:
🕒 Tuesday, June 9, 2 PM

Heimildarmynd tekin upp í Klettagörðum💧🎥Í vikunni fengum við skemmtilega heimsókn frá RÚV en verið er að vinna að heimil...
29/05/2026

Heimildarmynd tekin upp í Klettagörðum💧🎥

Í vikunni fengum við skemmtilega heimsókn frá RÚV en verið er að vinna að heimildar- og fræðslumynd fyrir 12 ára börn í tengslum við LIFE Icewater verkefnið. En verkefninu er ætlað að auka þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns á Íslandi. Kristín Sverrisdóttir, rekstrarstjóri fráveitu hjá Veitum var fengin í viðtal.

Óskaðu eftir samtali með fulltrúum Veitna⚡World Geothermal Congress fer fram í Calgary í Kanada dagana 8.-11. júní 2026....
28/05/2026

Óskaðu eftir samtali með fulltrúum Veitna⚡

World Geothermal Congress fer fram í Calgary í Kanada dagana 8.-11. júní 2026. Þar munu leiðtogar, rannsakendur og frumkvöðlar sem vinna að mótun framtíðar sjálfbærrar orku koma saman.

Fulltrúar Veitna verða á svæðinu til að ræða innviði samfélagsins, upplýsingagjöf og sjálfbæra framtíð veitukerfa.
Hlekkur í fyrstu athugasemd til að bóka samtal👇

//

Request a meeting with Veitur⚡

World Geothermal Congress 2026 will take place in Calgary, Canada, from June 8–11, bringing together leaders, researchers, and innovators shaping the future of sustainable energy.

Representatives from Veitur will be there to discuss critical infrastructure, public communication, and the sustainable future of utility services.

Find the link in the first comment to book a meeting👇

27/05/2026

Fráveita Veitna tekur við skólpi frá heimilum og atvinnustarfsemi🚽
Í skólphreinsistöðvum m.a. Klettagörðum er skólpið hreinsað þannig það sé hæft til losunar.

Brynja verður á WGC 2026⚡Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla, verður meðal fulltrúa Veitna á WGC 2026 í Calgar...
21/05/2026

Brynja verður á WGC 2026⚡

Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla, verður meðal fulltrúa Veitna á WGC 2026 í Calgary í júní, þar sem alþjóða samfélag jarðhitageirans kemur saman. Brynja leiðir uppbyggingu og rekstur þeirra innviða sem tryggja heimilum og samfélaginu aðgang að heitu vatni, köldu vatni og fráveitu.

Öflugir og áreiðanlegir innviðir eru grunnur að lífsgæðum, öryggi og sjálfbærni samfélagsins og mikilvægi þeirra verður sífellt meira með vaxandi samfélagi og breyttum áskorunum framtíðarinnar.

//

Meet Brynja at WGC 2026⚡

Brynja Ragnarsdóttir, Managing Director of Water Utilities, will be among Veitur’s representatives at WGC 2026 in Calgary this June, where the global geothermal community comes together.

Brynja leads the development and operation of the infrastructure that ensures homes and communities have reliable access to hot water, cold water, and wastewater services.
Strong and reliable infrastructure is the foundation of quality of life, safety, and sustainability and its importance continues to grow alongside expanding communities and the evolving challenges of the future.

Í gær tók Veitur á móti 200 stelpum og stálpum úr 9. bekk á árlega viðburðinum Stelpur, stálp og tækni. 👩‍🔧⚡Markmið dags...
21/05/2026

Í gær tók Veitur á móti 200 stelpum og stálpum úr 9. bekk á árlega viðburðinum Stelpur, stálp og tækni. 👩‍🔧⚡

Markmið dagsins er að vekja áhuga ungra stelpna og stálpa á tæknigreinum og sýna þeim hversu mörg spennandi tækifæri leynast í faginu. Dagurinn heppnaðist gríðarlega vel og líkt og sjá má voru veðurguðirnir með okkur í liði.

Veðurguðirnir voru sannarlega með okkur í liði þetta árið og var útisvæðið í fallegu Elliðaárstöð nýtt vel.
Takk fyrir daginn!☀️

Aukinn forði fyrir vaxandi samfélag!🛁Veitur undirbúa borun eftir heitu vatni á Bakka í Ölfusi. Svæðið er gjöfult lághita...
20/05/2026

Aukinn forði fyrir vaxandi samfélag!🛁

Veitur undirbúa borun eftir heitu vatni á Bakka í Ölfusi. Svæðið er gjöfult lághitasvæði þar sem rannsóknir gefa til kynna að nóg sé af heitu vatni en Þorlákshöfn og nágrenni fá heitt vatn frá tveimur borholum við Bakka. Ný hola í líkingu við þá sem er við hliðina með ákjósanlegri efnasamsetningu myndi nýtast vel í hitaveituna á svæðinu.🌡️

Borplanið er tilbúið og borinn mætir á svæðið á næstu dögum.

Vonir standa til að ný hola bæti enn frekar afhendingaröryggi á svæðinu og styðji við vaxandi samfélag í Ölfusi.

Aukinn forði fyrir vaxandi samfélag í Ölfusi, en tvær borholur eru þegar nýttar á Bakka.

Address

Bæjarháls 1
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545166000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Veitur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Veitur:

Share