30/06/2026
Í síðustu viku héldu fyrstu hópar björgunarsveitafólks af stað á hálendisvakt sumarsins. 🚙⛰️
Fram undan eru annasamir mánuðir þar sem nærri 250 félagar úr 26 björgunarsveitum víðs vegar að af landinu munu sinna vaktinni og vera ferðafólki til aðstoðar á hálendinu.
Vaktstöðvarnar eru í Landmannalaugum, Herðubreiðarlindum og Nýjadal á Spengisandsleið, þar sem sjálfboðaliðar sinna útköllum, veita upplýsingar og auka öryggi þeirra sem ferðast um hálendið.
HSSR mun eiga sinn hóp í Nýjadal í lok júlí og hlökkum við til að leggja okkar af mörkum í þessu mikilvæga verkefni.
Við óskum öllum sem standa hálendisvaktina góðrar ferðar og öruggrar vaktar! 💛