Sóttvarnalæknir

Sóttvarnalæknir Um forvarnir, viðbúnað og aðgerðir vegna smitsjúkdóma, upplýsingar til almennings um sóttvarnir og bólusetningar Ekki er fylgst með síðunni allan sólarhringinn.

Lögum samkvæmt ber sóttvarnalæknir ábyrgð á bólusetningum gegn smitsjúkdómum auk almennra og opinberra sóttvarnaráðstafana, en þar á meðal eru ráðstafanir vegna heilsufarslegra afleiðinga eiturefna og geislavirkra efna. Hann sér um að skipuleggja og samræma sóttvarnir og ónæmisaðgerðir um land allt. Honum ber að koma á framfæri upplýsingum um útbreiðslu smitsjúkdóma og að hafa umsjón með forvörnum

gegn smitsjúkdómum, m.a. með upplýsingum, fræðslu og leiðbeiningum til almennings. Eitt af meginmarkmiðum sóttvarnalæknis er að auka þekkingu almennings á bólusetningum svo og á mikilvægi sóttvarna almennt. Á þessari Facebook-síðu getur þú nálgast upplýsingar um bóluefni, gegn hvaða sjúkdómum þau beinast, öryggi bóluefna og aukaverkanir. Hægt er að senda inn fyrirspurnir varðandi efni er snýr að bólusetningum. Þá verða birtar hér nýjar upplýsingar og/eða rannsóknaniðurstöður um tengd efni. Innlegg eða athugasemdir á síðu sóttvarnasviðs sem falla ekki að skilyrðum Facebook (sjá hér: www.facebook.com/terms.php) eða fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa, auk þess að innihalda ásakanir af einhverjum toga fást ekki birtar á síðunni og verður þegar í stað eytt. Innlegg sem sett eru inn af öðrum aðilum eru sett þar inn á ábyrgð viðkomandi einstaklings eða lögaðila. Umsjón með síðunni:
Starfsmenn sóttvarnalæknis munu sinna uppfærslu síðunnar samhliða öðrum verkefnum á sviði sóttvarna. Nokkur tími gæti liðið frá því að fyrirspurn eða ábendingar berast þar til svarað er, sér í lagi ef efnið krefst nánari skoðunar. Rétt er að benda á að einnig er hægt að koma ábendingum eða kvörtunum um bólusetningar og annað efni en tengist bólusetningum á [email protected]

Það sem ekki á heima á þessari síðu. Facebook síðan er ekki vettvangur til að setja inn upplýsingar um eða til að fjalla um tiltekin mál einstaklinga. Ef þú vilt beina fyrirspurn til sóttvarnalæknis er hægt að gera það með tölvupósti á [email protected]

Upplýsingar sóttvarnalæknis um bólusetningar:
https://island.is/s/landlaeknir/sottvarnir-og-smitsjukdomar

📌 Ný skýringar- og kennslumyndbönd sem sýna hvernig bakteríur geta borist á milli einstaklinga og umhverfis.
30/06/2026

📌 Ný skýringar- og kennslumyndbönd sem sýna hvernig bakteríur geta borist á milli einstaklinga og umhverfis.

Nú eru aðgengileg þrjú ný skýringar- og kennslumyndbönd sem fjalla á einfaldan og myndrænan hátt um þá ósýnilegu áskorun sem felst í að rjúfa smitleiðir og útbreiðslu baktería og mikilvægi sýkingavarna í heilbrigðisþjónustu.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Surasang frosnum ostrum sem Dai Phat flytur inn og selur í sinni verslun...
24/06/2026

Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Surasang frosnum ostrum sem Dai Phat flytur inn og selur í sinni verslun vegna nóvóveiru. Fyrirtækið hefur i samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Surasang frosnum ostrum sem Dai Phat flytur inn og selur í sinni verslun vegna nóvóveiru.

👉 Júníblað Farsóttafrétta er komið út. Þar er meðal annars fjallað um ný sóttvarnalög, hugtaki um bráða ógn við lýðheils...
22/06/2026

👉 Júníblað Farsóttafrétta er komið út. Þar er meðal annars fjallað um ný sóttvarnalög, hugtaki um bráða ógn við lýðheilsu og herferðina Skissum sýklalyfjaónæmi.

Í Farsóttafréttum sóttvarnalæknis að þessu sinni er fjallað um nýja heildstæða löggjöf um sóttvarnir sem var samþykkt á Alþingi í vor og tekur gildi 1. september næstkomandi.

18/06/2026
Í nýjast tölublaði Læknablaðsins er m.a. yfirlitsgrein um greiningu, mat og meðferð sýklasóttar hjá börnum (Læknablaðið,...
11/06/2026

Í nýjast tölublaði Læknablaðsins er m.a. yfirlitsgrein um greiningu, mat og meðferð sýklasóttar hjá börnum (Læknablaðið, 6. tbl. bls. 262).

Megintilgangur greinarinnar er að gera „lækna og heilbrigðisstarfsfólk betur meðvitað um sýklasótt og mikilvægi þess að greina og meðhöndla hana eins fljótt og auðið er með vökvagjöf í æð, breiðvirkum sýklalyfjum" og öðrum úrræðum.

Sýklasótt er lífshættulegt heilkenni sem myndast þegar breytt eða veikluð svörun við sýkingu leiðir til truflana á líffærastarfsemi. Á heimsvísu greinast árlega um 50 milljón tilfelli, þar af eru börn um helmingur. Þrátt fyrir framfarir í bólusetningum og meðferð er sýklas...

11/06/2026

Sóttvarnalæknir hefur gefið út Ársskýrslu sóttvarna fyrir árið 2025.

🔸 7. júní er alþjóðlegur dagur matvælaöryggis
09/06/2026

🔸 7. júní er alþjóðlegur dagur matvælaöryggis

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) hafa tilnefnt 7. júní sem alþjóðlegan dag matvælaöryggis (World Food Safety Day).

❗️ Sóttvarnalæknir fylgist með faraldri ebólu af völdum Bundibugyoveiru í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (DRC) og Úganda, í...
20/05/2026

❗️ Sóttvarnalæknir fylgist með faraldri ebólu af völdum Bundibugyoveiru í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (DRC) og Úganda, í gegnum Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO). Sjá nánar í frétt á vef embættis landlæknis.

Sóttvarnalæknir fylgist með faraldri ebólu af völdum Bundibugyoveiru í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (DRC) og Úganda, í gegnum Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO).

Address

Katrínartún 2
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 16:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 16:00

Telephone

+3545101900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sóttvarnalæknir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Sóttvarnalæknir:

Shortcuts

Share

Category