Björt framtíð

Björt framtíð Björt framtíð er frjálslynt, grænt, umbóta- og alþjóðlega sinnað stjórnmálaafl.

Er munur á heilsu og lýðheilsu? Hvaða öfl trompa lýðheilsu? Myrkraöflin? Guðmundur Steingrímsson spyr.
14/01/2019

Er munur á heilsu og lýðheilsu? Hvaða öfl trompa lýðheilsu? Myrkraöflin? Guðmundur Steingrímsson spyr.

Fréttablaðið er með mesta dreifingu allra dagblaða á Íslandi. Fréttir, fróðleikur, pistlar, skoðanir, myndasögur, dánartilkynningar og auglýsingar.

Björt framtíð óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og bjartrar framtíðar á nýju ári.
27/12/2017

Björt framtíð óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og bjartrar framtíðar á nýju ári.

Merry Christmas to all of those who celebrate it!

Björt Ólafsdóttir er í opinskáu viðtali í Fréttablaðinu í dag.  Nýkjörinn formaður Bjartrar framtíðar segist "ekki munu ...
02/12/2017

Björt Ólafsdóttir er í opinskáu viðtali í Fréttablaðinu í dag. Nýkjörinn formaður Bjartrar framtíðar segist "ekki munu stökkva frá borði ... hún ætlar þvert á móti að leggja mikið á sig til að rífa upp fylgið á ný." Meiraprófið gæti komið að gangi svo hún geti leitt rútufarma fólks áfram til góðra verka. 😀

Björt Ólafsdóttir segir VG sek um hræsni með að ganga inn í ríkisstjórnarsamstarfið og segir innanflokkskosningar um stjórnarslit hafi verið of snemma. Úrslit alþingiskosninganna hafi verið skellur.

Auka Ársfundur Bjartrar framtíðar var haldinn í dag á Hótel Cabin í Borgartúni.Meðal þess sem fram fór á fundinum var ko...
25/11/2017

Auka Ársfundur Bjartrar framtíðar var haldinn í dag á Hótel Cabin í Borgartúni.

Meðal þess sem fram fór á fundinum var kosning í forystu Bjartrar framtíðar.

Björt Ólafsdóttir var kjörin formaður Bjartrar framtíðar.

Þrjú gáfu kost á sér í embætti stjórnarformanns þau voru: Nichole Leigh Mosty, Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir og Ágúst Már Garðarsson.

Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir var kjörin stjórnarformaður flokksins með 55% atkvæða.

Á fundinum var einnig rætt um framtíð Bjartrar framtíðar þar á meðal sveitastjórnakosningar á næsta ári, innra starf flokksins og framtíðarsýn.

Mikill einhugur ríkti á fundinum og ljóst að enn er mikill hugur í fólki að halda starfi Bjartrar framtíðar áfram. Mikill samhljómur var um að rödd Bjartrar framtíðar er mikilvæg í íslenskum stjórnmálum.

Theo­dóra Sig­ur­laug Þor­steins­dótt­ir var kosin stjórnarformaður Bjartrar framtíðar á aukaaðal­fundi flokks­ins sem hald­inn er á Hót­el Ca­bin í dag. Áður hafði Björt Ólafsdóttir verið sjálfkjörin formaður flokksins.

Björt Ólafsdóttir var í dag sjálf­kjör­in sem nýr formaður Bjartr­ar framtíðar á aukaaðal­fundi flokks­ins sem hald­inn ...
25/11/2017

Björt Ólafsdóttir var í dag sjálf­kjör­in sem nýr formaður Bjartr­ar framtíðar á aukaaðal­fundi flokks­ins sem hald­inn er á Hót­el Ca­bin. Fund­ur­inn hófst klukk­an 11 og þar sem Björt var ein í fram­boði til for­manns var hún form­lega val­in sem formaður með lófa­taki rétt fyr­ir há­degi.

Þrjú fram­boð bár­ust vegna kosn­ing­ar á embætti stjórn­ar­for­manns flokks­ins. Þau Nichole Leigh Mosty, Theo­dóra Sig­ur­laug Þor­steins­dótt­ir og Ágúst Már Garðars­son hafa boðið sig fram í embættið.

Kosn­ing í stjórnarformann hófst ra­f­rænt klukk­an 12:00 og lýk­ur 15:00.

Björt Ólafsdóttir var í dag sjálfkjörin sem nýr formaður Bjartrar framtíðar á aukaaðalfundi flokksins sem haldinn er á Hótel Cabin. Fundurinn hófst klukkan 11 og þar sem Björt var ein í framboði til formanns var hún formlega valin sem formaður með lófataki rétt fyrir hádegi.

Auka Ársfundur Bjartrar framtíðar hefst nú á Hótel Cabin í Borgartúni um klukkan 11.15Borist hafa þrjú framboð í embætti...
25/11/2017

Auka Ársfundur Bjartrar framtíðar hefst nú á Hótel Cabin í Borgartúni um klukkan 11.15

Borist hafa þrjú framboð í embætti stjórnarformanns þau eru:

Nichole Leigh Mosty
Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir
Ágúst Már Garðarssson

Í embætti formanns hefur eitt framboð borist það er:

Björt Ólafsdóttir

Kosning hefst rafrænt klukkan 12:00 og lýkur 15:00

Framboð til formanns og stjórnarformanns Bjartrar framtíðar Birt þann 25.11.17 Ársfundur Bjartrar framtíðar hefst nú á Hótel Cabin í Borgartúni um 11.00 Borist hafa þrjú framboð í embætti stjórnarformanns þau eru: Nichole Leigh Mosty Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir Ágúst Már Garðarssson Í embæt...

23/11/2017

Síðan okkar www.bjortframtid.is var ein þeirra sem lenti í ósköpunum sem dundu á hýsingafyrirtækinu 1984. Hún er komin upp aftur en því miður ekki með nýjustu útgáfu. Mögulega er til nýrra afrit og það mun koma í ljós í næstu viku hvort við náum því afriti upp. Á meðan viljum við biðja um skilning á því að efni síðunnar er ekki 100% uppfært. Við óskum 1984 alls hins besta við björgunaraðgerðir.

Bréf frá Óttari Proppé sem birtist fyrir nokkru á hans persónulegu Facebook-síðu.„Kæru félagar.Úrslit alþingiskosninga á...
31/10/2017

Bréf frá Óttari Proppé sem birtist fyrir nokkru á hans persónulegu Facebook-síðu.

„Kæru félagar.

Úrslit alþingiskosninga á laugardag voru sérstaklega ömurleg fyrir flokkinn okkar og þá umhverfisvænu frjálslyndispólitík sem við stöndum fyrir. Mér finnst eðlilegt að axla ábyrgð á þessari stöðu og segja af mér embætti formanns Bjartrar framtíðar. Verkefnin framundan eru stór og mikilvæg. Það fer betur á því að aðrir leiði þá endurskoðun og uppbyggingu sem framundan er.
Síðustu tvö ár hafa verið viðburðarík og söguleg. Björt framtíð hefur fengið tækifæri til þess að hafa töluverð áhrif í gegnum störf á Alþingi og í ríkisstjórn. Það var brotið blað í íslenskum stjórnmálum þegar við ákváðum að slíta ríkisstjórnarsamstarfi vegna leyndarhyggju samstarfsfólks og trúnaðarbrests tengdum kynbundnu ofbeldi. Það fordæmi mun hafa áhrif til langframa.
Póitískar áherslur Bjartrar framtíðar og gildi hafa haft mikil áhrif á stuttum tíma. Við höfum áorkað ýmsu í því yfirlýsta markmiði okkar að breyta stjórnmálunum. Það hefur verið mikill heiður að njóta trausts og fá tækifæri til að taka þátt í því.

Það er augljóst að þátttaka í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafði mikil neikvæð áhrif á traust til Bjartar framtíðar. Það var nær ómögulegt að vekja athygli á málefnum og áherslum flokksins í aðdraganda kosninganna. Það er miður.
Það er auðvelt að vera vitur eftir á. Augljóst er að róttæk naflaskoðun er framundan. Ég hóf þátttöku í stjórnmálum til að gera gagn. Það er hægt að gera á ýmsa vegu. Í þessum kosningum gerði formennska mín flokknum ekki gagn. Við slíkar aðstæður gerir það hugsjónunum ógagn að rembast eins og rjúpa við staur. Þá er betra að rétta keflið áfram og hjálpa til á annan hátt.

Úrslit kosninga eru áhyggjuefni og ekki bara fyrir okkar flokk. Það eru grundvallarbreytingar í loftinu og ekki allar jákvæðar. Gildi og áherslur Bjartrar framtíðar skipta máli fyrir samfélagið.
Ég þakka ykkur öllum stuðninginn og samferðina. Þetta hefur verið mikið tripp og lyginni líkast á köflum. Hjartað ólmast af þakklæti og líka af spenningi fyrir framtíðinni. Það er allt hægt ;)

ást og virðing,
Óttarr Proppé“

Óttarr Proppé er hættur sem formaður Bjartrar framtíðar. Þetta kemur fram í bréfi sem Óttarr sendi flokksmönnum. Flokkurinn galt afhroð í nýafstöðnum kosningum og fékk aðeins 1,2 prósent atkvæða. Óttarr segir úrslitin hafa verið „sérstaklega ömurleg fyrir flokkinn“ og þá umhverfisvænu frjálslyndispó...

Karíókí og stemmari 🎶🎵🎶
28/10/2017

Karíókí og stemmari 🎶🎵🎶

Nichole Leigh Mosty stendur við loforðasúpu Bjartrar framtíðar
28/10/2017

Nichole Leigh Mosty stendur við loforðasúpu Bjartrar framtíðar

Stemmari í góða veðrinu, loforðasúpan er að slá í gegn. ❌🅰
28/10/2017

Stemmari í góða veðrinu, loforðasúpan er að slá í gegn. ❌🅰

Björt Ólafsdóttir stendur við loforðasúpu Bjartrar framtíðar
28/10/2017

Björt Ólafsdóttir stendur við loforðasúpu Bjartrar framtíðar

Address

Njálsgata 22
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00
Saturday 10:00 - 17:00
10:00 - 17:00
Sunday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Björt framtíð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share