Minjastofnun Íslands

Minjastofnun Íslands Minjastofnun Íslands tók til starfa 1. janúar 2013 skv. lögum um menningarminjar nr. 80/2012. Stofnunin hóf starfsemi sína þann 1. Stofnunin tók þann 1.

Minjastofnun Íslands er stjórnsýslustofnun sem heyrir undir ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála. janúar 2013 og er staðsett á s*x stöðum, í Reykjavík, Stykkishólmi, Sauðárkróki, Akureyri, Djúpavogi og Selfossi. Minjastofnun Íslands starfar samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012 og lögum um skil menningarverðmæta til annarra landa nr. 57/2011. janúar 2013 við hlutverkum Fornleifaver

ndar ríkisins og Húsafriðunarnefndar ríkisins auk stjórnsýsluhlutverks Borgarminjavarðar varðandi hús og fornleifar, og hlutverki Safnaráðs varðandi útflutning menningarminja og skil menningarverðmæta til annarra landa. Markmið laga um menningarminjar og hlutverk Minjastofnunar Íslands er að stuðla að verndun menningarminja og tryggja að íslenskum menningararfi verði skilað óspilltum til komandi kynslóða.

Húsverndarstofa opnar aftur miðvikudaginn 5. ágúst. Í Húsverndarstofu er hægt að leita ráðgjafar um hvernig best er að b...
04/08/2026

Húsverndarstofa opnar aftur miðvikudaginn 5. ágúst.
Í Húsverndarstofu er hægt að leita ráðgjafar um hvernig best er að bera sig að áður en framkvæmdir hefjast, ræða um tæknilegar útfærslur, skoða litakort og bækur eða fræðast um byggingarsögu. Einnig er hægt að fá upplýsingar um styrki til framkvæmda.

Húsverndarstofa er opin alla miðvikudaga milli kl. 15-17 og hefur aðsetur í Kjöthúsi á Árbæjarsafni.

Húsverndarstofa er rekin í samvinnu Borgarsögusafns, Minjastofnunar Íslands og Iðunnar fræðsluseturs.

Sérfræðingar í viðhaldi á eldri húsum veita ráðgjöf á Árbæjarsafni alla miðvikudaga kl. 15-17.

Þór Ingólfsson Hjaltalín, sviðsstjóri minjavarðasviðs Minjastofnunar Íslands, tók við stjórnarformennsku í Baltic Region...
28/07/2026

Þór Ingólfsson Hjaltalín, sviðsstjóri minjavarðasviðs Minjastofnunar Íslands, tók við stjórnarformennsku í Baltic Region Heritage Committee (BRHC) þann 1. júlí 2026.
Arfleifðarnefnd Eystrasaltssvæðisins, BRHC var stofnuð árið 1998 og er skipuð tilnefndum fulltrúum frá yfirvöldum sem hafa umsjón með stjórnun menningararfs í aðildarríkjum Eystrasaltsráðsins. Áherslan beinist bæði að gildi menningararfs fyrir svæðið og að sjálfbærri stjórnun og nýtingu hans. BRHC leggur áherslu á menningararf sem stefnumótandi auðlindar fyrir þróun Eystrasaltssvæðisins.

Þann 1. júli 2026 tók Ísland við formennsku í Eystrasaltsráðinu af Póllandi, til eins árs, 2026-2027.

Í garð er gengið síðasta sumarið af fornleifauppgreftri í Höfnum á Skaga norðan við Skagaströnd. Ýmislegt merkilegt hefu...
28/07/2026

Í garð er gengið síðasta sumarið af fornleifauppgreftri í Höfnum á Skaga norðan við Skagaströnd. Ýmislegt merkilegt hefur komið í ljós við rannsóknirnar. Hópur fornleifafræðinga grefur upp verbúðir sem stóðu þar allt frá elleftu öld fram á þá átjándu.

Senn fer fornleifauppgreftri við Hafnir á Skaga að ljúka. Mynt frá tímum Ólafs kyrra Noregskonungs fannst á dögunum en hann réð ríkjum í Noregi frá 1067.

Afgreiðsla húsafriðunarsjóðs verður lokuð vegna sumarleyfa frá mánud. 13. júlí til föstud. 31. júlí 2026. Beiðnir um útb...
29/06/2026

Afgreiðsla húsafriðunarsjóðs verður lokuð vegna sumarleyfa frá mánud. 13. júlí til föstud. 31. júlí 2026. Beiðnir um útborgun styrkja fyrir sumarleyfi þurfa að berast húsafriðunarsjóði eigi síðar en mánud. 6. júlí 2026.

Afgreiðslan opnar aftur þriðjudaginn 4. ágúst 2026.

Fornverkaskólinn hlaut nýverið viðurkenningu frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Í ár...
22/06/2026

Fornverkaskólinn hlaut nýverið viðurkenningu frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Í ár eru einnig að verða 20 ár síðan Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum. Áföngunum var fagnað á Tyrfingsstöðum sl. föstudag þar sem gestum var boðið að reka smiðshöggið á verkið.

Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Í ár eru einnig að verða 20 ár síð

Á miðvikudagseftirmiðdegi eftir vinnu þann 3. júní rak starfsmaður Minjastofnunar augun í færslu frá gönguklúbbnum Vesen...
18/06/2026

Á miðvikudagseftirmiðdegi eftir vinnu þann 3. júní rak starfsmaður Minjastofnunar augun í færslu frá gönguklúbbnum Vesen og vergangur sem farið hafði í gönguferð að hinni friðlýstu Óttarsstaðafjárborg fyrr í vikunni. Ljóst var af myndum og færslu að þarna væru framkvæmdir í gangi sem ekki lægi leyfi Minjastofnunar fyrir.
Ekki er enn vitað hver stóð fyrir framkvæmdum en þekki einhver til er viðkomandi hvattur til að hafa samband við Minjastofnun Íslands.

Á miðvikudagseftirmiðdegi eftir vinnu þann 3. júní rak starfsmaður Minjastofnunar augun í færslu frá gönguklúbbnum Vesen og vergangur sem farið hafði í gön

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur Evrópsku minjaverndarverðlaunin / Europa Nostra Awards 2026, sem eru virtustu minja...
21/04/2026

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur Evrópsku minjaverndarverðlaunin / Europa Nostra Awards 2026, sem eru virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu.
Við óskum Fornverkaskólanum og Byggðasafni Byggðasafni Skagfirðinga innilega til hamingju!

Fornverkaskólinn - The Heritage Craft School
Byggðasafn Skagfirðinga - Skagafjörður Heritage Museum

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur Evrópsku minjaverndarverðlaunin / Europa Nostra Awards 2026, sem eru virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu.

Aðalfundur og hið árlega málþing EAC (European Archaeological Council) var haldið dagana 19. – 21. mars í Altamira, Sant...
17/04/2026

Aðalfundur og hið árlega málþing EAC (European Archaeological Council) var haldið dagana 19. – 21. mars í Altamira, Santillana del Mar á Spáni.
Fluttir voru 25 fyrirlestrar um forvarnir gegn menningararfsglæpum á einum og hálfum degi af sérfræðingum víðsvegar að úr Evrópu.
Fulltrúar Minjastofnunar Íslands voru Þór Hjaltalín og Agnes Stefánsdóttir sem einnig situr í stjórn EAC sem varaforseti.

Aðalfundur og hið árlega málþing EAC (European Archaeological Council) var haldið dagana 19. – 21. mars í Altamira, Santillana del Mar á Spáni.

Address

Suðurgata 39
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3545701300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Minjastofnun Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Minjastofnun Íslands:

Shortcuts

Share