Kvennasögusafn Íslands

Kvennasögusafn Íslands Kvennasögusafn var stofnað 1. janúar 1975 á heimili Önnu Sigurðardóttur og hefur starfað sem séreining á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni frá 1996.

Við söfnum, varðveitum, skráum og miðlum heimildum sem og stuðlum að rannsóknum um sögu kvenna. Anna Sigurðardóttir stofnaði Kvennasögsafn á heimili sínu 1. janúar 1975 ásamt Elsu Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur. Frá árinu 1996 hefur Kvennasögusafn Íslands starfað sem sérstök eining innan Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðu. Hlutverk Kvennasögusafns er að safna, s

krá og varðveita heimildir um sögu kvenna. Safninu er ætlað að miðla þekkingu um sögu kvenna, aðstoða við heimildaleit og hvetja til rannsókna á sviði kvennasögu og kvennafræða.

Kvennasögusafn er lokað vegna sumarfrís frá miðvikudeginum 1. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Hafið það gott í su...
30/06/2026

Kvennasögusafn er lokað vegna sumarfrís frá miðvikudeginum 1. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Hafið það gott í sumar!

Á heimasíðu okkar má sjá yfirlit yfir stafrænan safnkost okkar sem er auðvitað ávallt aðgengilegur (hlekkur í athugasemd).

//

Kvennasogusafn will be closed from 1 July until Agust 4th. Happy summer!

---
Ljósmynd úr safni Halldóru Valgerðar Steinsdóttur (f. 1939), dagmóður. Tilvísun: KSS 2021/12, ljósmynd 15.

Við þökkum Bændablaðinu fyrir heimsóknina og höfum þegar heyrt af dagbókum kvenbónda sem afkomendur vilja koma fyrir á s...
29/06/2026

Við þökkum Bændablaðinu fyrir heimsóknina og höfum þegar heyrt af dagbókum kvenbónda sem afkomendur vilja koma fyrir á safni til varanlegrar varðveislu!

„Rakel hvetur fólk til að koma með þessi gögn á Kvennasögusafnið eða fara með þau á héraðsskjalasöfnin frekar en að henda gersemum í ruslið. „Það er misskilningur að fólk þurfi að vera frægt til að það sé þess virði að varðveita bréf og dagbækur þeirra. Það er alls ekki þannig, það er mikilvægt að fá sem fjölbreyttasta flóru af fólki til að endurspegla samfélagið.“ Ef lesendur telja sig eiga gögn sem gætu átt heima á Kvennasögusafninu er hægt að hafa samband á kvennasogusafn[hjá]landsbokasafn.is.“

Kvennasögusafn Íslands kallar eftir skjalasöfnum bóndakvenna.

Hlekkur hér að neðan.

Til hamingju með kvenréttindadaginn!Þann 19. júní 1915 fengu konur kosningarétt og kjörgengi til Alþingis með séraldursá...
19/06/2026

Til hamingju með kvenréttindadaginn!

Þann 19. júní 1915 fengu konur kosningarétt og kjörgengi til Alþingis með séraldursákvæði og hafði Bríet Bjarnhéðinsdóttir þetta að segja um það:
„En það allra furðulegasta í þessu máli er það, að allir flokkarnir hafa tekið upp hinn nafnfræga íslenzka, stjórnvizkulega búhnykk, að veita ekki konum fullan kosningarrétt, heldur smá skamta þeim hann úr hnefa i 15 ár.“

Árið 1920 unnu konur loks fullnaðarsig­ur þegar ný stjórn­ar­skrá vegna sam­bands­lag­anna frá 1918 gekk í gildi og veitti kon­um fullt og skil­yrðis­laust jafn­rétti á við karla um kosn­inga­rétt og kjörgengi til Alþing­is.

Það var svo tveimr árum síðar, 1922, að konur buðum fram sérlista í Alþingiskosningum og skipuðu hann forstöðukona kvennaskóla, riststjóri kvennablaðs, kennslukona og skáld. Náði efsta konan á listanum, Ingibjörg H. Bjarnason, kjöri og varð því fyrst kvenna til að taka sæti á Alþingi í febrúar 1923.

Til hamingju með daginn! Ljósmynd úr safni Sigríðar Árnadóttur kennara (1907–1998). Tilvísun: KSS 2025/18, ljósmynd 52.
17/06/2026

Til hamingju með daginn!

Ljósmynd úr safni Sigríðar Árnadóttur kennara (1907–1998). Tilvísun: KSS 2025/18, ljósmynd 52.

Nú viðrar vel til lautarferða. Góða helgi!Þorbjörg Árnadóttir hjúkrunarkona og rithöfundur (í forgrunni lengst til hægri...
12/06/2026

Nú viðrar vel til lautarferða. Góða helgi!

Þorbjörg Árnadóttir hjúkrunarkona og rithöfundur (í forgrunni lengst til hægri) í lautarferð ásamt fjölskyldu sinni árið 1947. Tilvísun ljósmyndar: KSS 74, ljósmynd 126.

Til hamingju Hólmfríður og Una með sýninguna ykkar á Hönnunarmars um grafíska hönnun Rauðsokka í tímaritinu Forvitin rau...
10/05/2026

Til hamingju Hólmfríður og Una með sýninguna ykkar á Hönnunarmars um grafíska hönnun Rauðsokka í tímaritinu Forvitin rauð.

Það er alltaf jafn gefandi að sjá safnkost Kvennasögusafn nýttan á frumlegan og skapandi hátt. Við hlökkum til að sjá hvernig þið þróið rannsóknarverkefnið ykkar áfram!

Til hamingju með daginn!---Ljósmynd úr safni MFÍK (tilvísun: KSS 2018/16). Nánari upplýsingar um myndina fylgdu ekki og ...
01/05/2026

Til hamingju með daginn!

---
Ljósmynd úr safni MFÍK (tilvísun: KSS 2018/16). Nánari upplýsingar um myndina fylgdu ekki og eru því vel þegnar.

Address

Arngrímsgata 3
Reykjavík
107

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kvennasögusafn Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Kvennasögusafn Íslands:

Shortcuts

Share

Category