04/07/2026
Í mati Scope Ratings er bent á að helstu styrkleikar íslenska hagkerfisins séu háar tekjur á mann í alþjóðlegum samanburði, tiltölulega lágar og lækkandi skuldir hins opinbera, trúverðug ríkisfjármálastefna og sterk skuldbinding stjórnvalda til ábyrgrar ríkisfjármálastjórnar.
Scope Ratings hefur veitt ríkissjóði Íslands lánshæfiseinkunnina AA- í innlendri og erlendri mynt með stöðugum horfum.