VIRK

VIRK VIRK eflir starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku og virkni á vinnumarkaði.

VIRK í starfi styður einstaklinga og stjórnendur í að kortleggja og efla vinnufærni – áður en vandinn verður of stór 🙏 S...
18/08/2026

VIRK í starfi styður einstaklinga og stjórnendur í að kortleggja og efla vinnufærni – áður en vandinn verður of stór 🙏 Sjá nánar hér: bit.ly/virkistarfi

Mörgum finnst gott að setja upp áætlun fyrir hverja viku. Á virk.is má finna þetta eyðublað sem hægt er að prenta út og ...
14/08/2026

Mörgum finnst gott að setja upp áætlun fyrir hverja viku. Á virk.is má finna þetta eyðublað sem hægt er að prenta út og skrifa inn í: bit.ly/vikuáætlun

11/08/2026

Húsnæði VIRK í Borgartúni 18 verður lokað frá 12.–24. ágúst vegna framkvæmda. Starfsemin verður þó í fullum gangi og viðtöl að mestu færð í fjarviðtöl. Eins verður svarað í síma á venjulegum opnunartíma. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Aftur í vinnu er gagnvirkt verkfæri fyrir þau sem að stefna aftur í starf eftir fjarveru frá vinnumarkaði en hentar einn...
07/08/2026

Aftur í vinnu er gagnvirkt verkfæri fyrir þau sem að stefna aftur í starf eftir fjarveru frá vinnumarkaði en hentar einnig þeim sem eru í atvinnuleit eða að huga að breytingum á starfsvettvangi.

Aftur í vinnu spannar feril atvinnuleitar frá því að einstaklingur hugar að því að sækja um starf og þar til hann er kominn í starf.

Efni sem spannar allt ferli atvinnuleitar frá því þú byrjar að hugsa um að breyta til yfir í fyrstu vikurnar í nýju starfi.

Sérstaklega var horft til þess við úthlutun styrkja VIRK 2025 að styrkja verkefni og/eða úrræði sem sniðin eru að þörfum...
05/08/2026

Sérstaklega var horft til þess við úthlutun styrkja VIRK 2025 að styrkja verkefni og/eða úrræði sem sniðin eru að þörfum einhverfra einstaklinga. Verkefni Opna háskólans hjá HR, Forritun fyrir einhverft ungt fólk, var eitt verkefnanna sem hlaut styrk þá frá VIRK. Verkefnið tókst vel og námið verður sett upp aftur í haust – sjá nánar í frétt hér: bit.ly/nýtækifæri

VIRK veitir á hverju ári rannsóknar-, þróunar og uppbyggingarstyrki tengdum starfsendurhæfingu sem m.a. hafa orðið til þess að fjölga úrræðum sem nýtast þjónustuþegum VIRK. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar.

Umhyggja í ágúst 🧡 Jákvæðar og uppbyggilegar tillögum fyrir hvern dag. Tillögurnar eru í anda þess sem rannsóknir hafa s...
31/07/2026

Umhyggja í ágúst 🧡 Jákvæðar og uppbyggilegar tillögum fyrir hvern dag.

Tillögurnar eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.

Hér má sjá virknidagatal með jákvæðum tillögum fyrir hvern dag mánaðarins frá Action for happiness. Tillögurnar eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og n...

29/07/2026
„Í VIRK hittum við gjarnan fólk sem hefur einangrast félagslega, bæði í vinnu og einkalífi. Eitt af því fyrsta sem fagað...
24/07/2026

„Í VIRK hittum við gjarnan fólk sem hefur einangrast félagslega, bæði í vinnu og einkalífi. Eitt af því fyrsta sem fagaðilar leggja áherslu á er að rjúfa þann vítahring einangrunar og einmanaleika. Unnið er markvisst að því að efla tengsl í nærumhverfi og einnig á vinnustað þegar ráðningarsamband er til staðar. Við leggjum ríka áherslu á virk samskipti við ráðgjafa og að tengja þjónustuþega við úrræði sem auka félagsleg tengsl samhliða því að vinna með þær áskoranir sem hver og einn stendur frammi fyrir.

Á öllum stigum er horft til þess hvernig streita, félagsleg einangrun og skerðing á tengslum geta haft áhrif á starfsgetu og líðan. Sá þáttur er alltaf hluti af þeirri heildrænu nálgun sem unnið er eftir þegar tekist er á við hindranir í starfsgetu.

Þrátt fyrir mikilvægi faglegs stuðnings gegnir samfélagið í heild mikilvægu hlutverki þegar kemur að því að draga úr félagslegri einangrun og einmanaleika. Við sem einstaklingar getum einnig haft áhrif með því að vera vakandi fyrir eigin líðan og annarra. Þá getur skipt miklu máli að þora að leita eftir stuðningi og halda í félagsleg tengsl, einnig að vera tilbúin til þess að gefa af sér, veita öðrum athygli og hlustun sé þess er þörf. Í þessu samhengi geta litlir hlutir skipt sköpum. Eitt símtal, skilaboð eða stutt spjall – það þarf oft ekki mikið til. Þannig getum við öll haft áhrif og lagt okkar af mörkum til þess að draga úr áhrifum félagslegrar einangrunar og einmanaleika.“

Áhugaverð grein Fríðu og Guðbjargar Huldu, forvarnarfulltrúum hjá VIRK

Einmanaleiki getur haft djúpstæð áhrif á heilsu, starfsgetu og líðan. Greinin fjallar um hvernig félagsleg einangrun verður til, hvers vegna hún skiptir máli og hvað við getum öll gert til að efla tengsl.

VIRK í starfi styður einstaklinga og stjórnendur í að kortleggja og efla vinnufærni – áður en vandinn verður of stór 🙏  ...
17/07/2026

VIRK í starfi styður einstaklinga og stjórnendur í að kortleggja og efla vinnufærni – áður en vandinn verður of stór 🙏
Sjá nánar hér: bit.ly/virkistarfi

Address

Borgartún 18
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3545355700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when VIRK posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to VIRK:

Shortcuts

Share

Category