Félagsmiðstöðin Norðurbrún 1

Félagsmiðstöðin Norðurbrún 1 Félagsmiðstöðin Norðurbrún 1 þjónustar alla eldri borgara sem vilja taka þátt í félagsstarfi. Heitar máltíðir eru seldar í hádegi alla daga. sími 568 3838.

Endilega kynnið ykkur dagskrá Norðurbrúnar eins eru allir velkomnir að kíkja í heimsókn og skoða staðinn. Félagsmiðstöðin er opin öllum aldurshópum alla virka daga frá kl. 09:00-17:00. Fjölbreytt dagsskrá er í boði, meðal annars spilamennska, boccia, myndlist, tréskurður, leirmunanámskeið, fjölbreytt námskeið, upplestur, kvikmyndasýningar og leikfimi. Einnig eru ýmsar skemmtanir í boði eins og jól

askemmtun, hausthátíð og ferðalög.

Í dagbók Morgunblaðsins má fylgjast með dagskrá félagsstarfsins í Norðurbrún.

Í félagsmiðstöðinni eru boðið upp á ýmiskonar þjónustu, svo sem hárgreiðslu, fótaaðgerðir og bænastund. Nauðsynlegt er að panta þær fyrirfram. Kaffiveitingar eru seldar alla virka daga

Nánari upplýsingar varðandi þjónustuna eru veittar í síma: 411-2760

Fótaaðgerðastofan hjá Betu er opin mánud og miðvikud. Hárgreiðslustofa Ingunnar er opin þriðjud. fimmtud. og föstud. frá kl.10:00-17:00 sími 578-7820. Bókabíllinn er á fimmtudögum kl: 10.00 - 10.30. Bónusbíllinn kemur alla miðvikudaga kl. 14.40
Guðsþjónusta og sparikaffi er fyrsta föstudag í mánuði. Bingó er annan og fjórða hvern föstudag í mánuði.

Á morgun verður svaka stuð hjá okkur í Norðurbrún.Við ætlum að grilla pylsur og fáum Bjarna töframann í heimsókn, sem mu...
14/08/2026

Á morgun verður svaka stuð hjá okkur í Norðurbrún.

Við ætlum að grilla pylsur og fáum Bjarna töframann í heimsókn, sem mun skemmta okkur með uppistandi og söng. Við hlökkum mikið til.

Hér kemur einnig dagskrá Norðurbrúnar fyrir næstu viku.

Það er enn sumarfrí hjá nokkrum dagskrárliðum, en handavinnan byrjar aftur og verður alla mánudaga og miðvikudaga kl. 13:00–14:30.

Á miðvikudaginn förum við í sumarferð. Við heimsækjum Hveragarðinn í Hveragerði, skoðum svæðið og fáum tækifæri til að sjóða egg í hvernum og smakka hverabakað rúgbrauð.

Að því loknu förum við á Selfoss og heimsækjum Skyrland, þar sem við fáum stutta og lifandi fræðslu um ævintýri skyrsins. Í lokin gefst tækifæri til að kíkja á kaffihúsið á staðnum.

Skráning og greiðsla í ferðina fer fram í afgreiðslu Norðurbrúnar.

Á fimmtudaginn hefst bingóið aftur eftir sumarfrí og verður áfram annan hvern fimmtudag kl. 15:30. Munið endilega að koma aðeins fyrr og fá ykkur góðar veitingar áður en bingóið hefst.

Ég hlakka til að njóta vikunnar með ykkur.

Kæru íbúar og gestir Norðurbrúnar.Hér er dagskrá félagsstarfsins fyrir næstu viku.Nokkrir dagskrárliðir eru í sumarfríi ...
07/08/2026

Kæru íbúar og gestir Norðurbrúnar.

Hér er dagskrá félagsstarfsins fyrir næstu viku.

Nokkrir dagskrárliðir eru í sumarfríi út ágúst, en við munum að sjálfsögðu finna eitthvað skemmtilegt að gera í staðinn.

Morgunleikfimi og slökun verða á sínum stað alla morgna kl. 10:00 og mun Annetta halda utan um þær stundir.

Við bætum einnig við nýjum dagskrárlið á mánudögum kl. 14:00–15:00 út ágúst: göngutúr um hverfið. Ef veðrið er gott er aldrei að vita nema við stoppum í ís á leiðinni.

Á miðvikudaginn ætlum við, eins og margir landsmenn, að fylgjast með almyrkvanum. Tveir starfsmenn munu bjóða upp á göngutúr út á bílastæðið hjá Hrafnistu, þar sem talið er að best sé að fylgjast með myrkvanum.

Mikilvægt er að nota sólmyrkvagleraugu allan tímann, nema á meðan almyrkvinn stendur yfir. Starfsfólk verður til aðstoðar. Hægt er að kaupa sólmyrkvagleraugu í afgreiðslunni á 1.000 kr. og rennur ágóðinn til styrktar félagsstarfi Norðurbrúnar.

Á laugardaginn ætlum við svo að vera með brekkusöng, vonandi úti ef veður leyfir. Bjarni töframaður kemur til okkar og skemmtir með uppistandi og söng. Félagsstarfið verður með pylsur og gos til sölu.

Við hlökkum til að eiga skemmtilega viku með ykkur.

Hér er dagskráin fyrir næstu vikur.Yfir sumartímann verður aðeins rólegra um að vera í félagsstarfinu vegna sumarfría. V...
10/07/2026

Hér er dagskráin fyrir næstu vikur.

Yfir sumartímann verður aðeins rólegra um að vera í félagsstarfinu vegna sumarfría. Við höldum þó áfram með morgunleikfimina, boccia, spjallhringinn og handavinnuna, en aðrir dagskrárliðir fara í sumarfrí á meðan.

Allir eru einnig velkomnir að dunda sér í listasmiðjunni, taka þátt í mósaíkverkinu eða fara í gönguferðir þegar veður leyfir.

Við hlökkum til að eiga notalegar sumarstundir með ykkur.

Kæru vinir.Hér eru nokkrar myndir frá síðustu tveimur vikum í félagsstarfinu okkar.Við höfum haldið áfram með okkar föst...
10/07/2026

Kæru vinir.

Hér eru nokkrar myndir frá síðustu tveimur vikum í félagsstarfinu okkar.

Við höfum haldið áfram með okkar föstu dagskrárliði, þó aðeins hafi fækkað í dagskránni vegna sumarfría. Þann 3. júlí vorum við með pizzuveislu sem heppnaðist mjög vel, enda alltaf vinsælt að breyta aðeins til öðru hverju.

Við erum einnig byrjuð á nýju og spennandi verkefni í listasmiðjunni, sameiginlegu mósaíkverki, þar sem allir eru velkomnir að taka þátt.

Annars eru þetta búnar að vera yndislegar tvær vikur, þrátt fyrir að félagsstarfið sé í rólegri kantinum yfir sumartímann.

Dásamlegu vinir félagsmiðstöðvarinnar Norðurbrúnar 1.Hér kemur dagskráin okkar fyrir tímabilið 6.–10. júlí.Í lok vikunna...
06/07/2026

Dásamlegu vinir félagsmiðstöðvarinnar Norðurbrúnar 1.

Hér kemur dagskráin okkar fyrir tímabilið 6.–10. júlí.

Í lok vikunnar set ég inn myndir frá síðustu tveimur vikum.

Góðan daginn, kæru Facebookvinir Norðurbrúnar 1Hér kemur dagskráin fyrir þessa viku.Yfir sumartímann verður aðeins róleg...
30/06/2026

Góðan daginn, kæru Facebookvinir Norðurbrúnar 1

Hér kemur dagskráin fyrir þessa viku.

Yfir sumartímann verður aðeins rólegra um að vera í félagsstarfinu vegna sumarfría, en um miðjan ágúst fer dagskráin aftur af stað af fullum krafti.

Við höldum þó áfram með morgunleikfimina, boccia og hreyfismiðjuna á þriðjudögum með þeim Sunnevu og Hrafnhildi, enda fátt betra en að hreyfa sig, hlæja og hafa gaman saman.

Á föstudaginn verður síðan pizzuveisla í matsalnum kl. 18:00. Boðið verður upp á pizzu og gos á 1.500 kr.

Við hlökkum til að sjá ykkur í vikunni.

Vikan fram undan verður full af skemmtilegum dagskrárliðum.Á dagskrá verða meðal annars handavinna, samsöngur með Unni, ...
22/06/2026

Vikan fram undan verður full af skemmtilegum dagskrárliðum.

Á dagskrá verða meðal annars handavinna, samsöngur með Unni, boccia, Hreyfismiðjan, hugleiðsla og slökun, heimsókn frá Skugga, Rauða kross hundinum okkar og að sjálfsögðu spjallhringurinn góði.

Ég hlakka til að njóta vikunnar með ykkur.

Síðasta vika var dásamleg hjá okkur í Norðurbrún. Við áttum yndislegar stundir í félagsstarfinu og veðrið var heldur bet...
22/06/2026

Síðasta vika var dásamleg hjá okkur í Norðurbrún. Við áttum yndislegar stundir í félagsstarfinu og veðrið var heldur betur með okkur í liði.
Að vanda var haldið hátíðlega upp á 17. júní. Húsið var skreytt, grillaðar voru pylsur og hamborgarar og við nutum lifandi tónlistar saman.
Takk kærlega fyrir frábæra viku, elsku íbúar, gestir og þátttakendur í félagsstarfinu.

Address

Norðurbrún 1
Reykjavík
104

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félagsmiðstöðin Norðurbrún 1 posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share