10/08/2026
Ferðamálastofa sendi í kvöld póst á ferðaþjónustuaðila þar sem þeir eru beðnir að hjálpa til við að koma mikilvægum upplýsingum til ferðafólks varðandi almyrkvann 12. ágúst. Um er að ræða einblöðung á ensku með helstu upplýsingum, sem má til dæmis prenta út og hafa sýnilegan í móttöku, við upplýsingaborð eða á öðrum áberandi stað þar sem gestir sjá hann.
https://www.ferdamalastofa.is/is/um-ferdamalastofu/frettir/almyrkvinn-mikilvaegar-upplysingar-til-ferdafolks