Samkeppniseftirlitið

Samkeppniseftirlitið Samkeppniseftirlitið hefur það að leiðarljósi að standa vörð um heilbrigða samkeppni á Íslandi. Að því starfi kemur öflugur hópur sérfræðinga hjá SKE.

The Icelandic Competition Authority promotes effective competition, by enforcing the competition rules of the EEA Agreement and the Icelandic Competition law Act No. 44/2005.

Samkeppniseftirlitið lauk 29. júlí sl. rannsókn á kaupum Brims hf. á öllu hlutafé í Lýsi hf. og dótturfélögum þess.Ranns...
11/08/2026

Samkeppniseftirlitið lauk 29. júlí sl. rannsókn á kaupum Brims hf. á öllu hlutafé í Lýsi hf. og dótturfélögum þess.

Rannsóknin leiddi ekki í ljós vísbendingar um að samruninn væri líklegur til að raska samkeppni með umtalsverðum hætti. Samkeppniseftirlitið taldi því hvorki forsendur til íhlutunar vegna kaupanna né ástæðu til frekari rannsóknar og lauk málinu á fyrsta fasa.

Nánar um ákvörðunina má lesa um á vef Samkeppniseftirlitsins, sjá fyrstu athugasemd 👇

Samkeppniseftirlitið hefur birt samantekt, rit nr. 3/2026, um forviðræður vegna mögulegs samruna Arion banka og Kviku og...
02/07/2026

Samkeppniseftirlitið hefur birt samantekt, rit nr. 3/2026, um forviðræður vegna mögulegs samruna Arion banka og Kviku og helstu frumniðurstöður eftirlitsins.

Þar sem bankarnir féllu frá samrunaáformum sínum var ekki tekin bindandi ákvörðun í málinu. Samantektin er birt í ljósi almennrar þýðingar málsins fyrir samkeppni á fjármálamarkaði og til að stuðla að jafnræði í aðgengi að upplýsingum um mikilvægar úrlausnir stjórnvalda.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Samkeppniseftirlitið hefur birt umræðuskjal um þróun eldsneytismarkaðarins hér á landi og áhrif breytinga á opinberum gj...
02/07/2026

Samkeppniseftirlitið hefur birt umræðuskjal um þróun eldsneytismarkaðarins hér á landi og áhrif breytinga á opinberum gjöldum og virðisaukaskatti á eldsneyti.

Í greiningunni kemur meðal annars fram að álagning á bensíni og dísel hafi hækkað verulega á síðustu árum og að verðmunur á Íslandi og öðrum Evrópuríkjum hafi aukist.

Samhliða kallar Samkeppniseftirlitið eftir sjónarmiðum fyrirtækja, hagsmunaaðila og almennings um samkeppni á eldsneytismarkaði. Frestur til að skila sjónarmiðum er til 15. ágúst.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Í nýjum hlaðvarpsþætti Gímaldsins er fjallað um hátt matvöruverð á Íslandi og samkeppni á dagvörumarkaði. Meðal viðmælen...
29/06/2026

Í nýjum hlaðvarpsþætti Gímaldsins er fjallað um hátt matvöruverð á Íslandi og samkeppni á dagvörumarkaði. Meðal viðmælenda er Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Í þættinum ræðir Páll Gunnar meðal annars um niðurstöður nýlegs umræðuskjals Samkeppniseftirlitsins, þar sem fram kemur að Íslendingar greiða að meðaltali 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar nágrannalandanna og Evrópusambandsins.

„Fákeppni leiðir til þess að samkeppni slævist. Fyrirtæki búa ekki við nógu mikla hvata til þess að hagræða í rekstri,“ segir Páll Gunnar í þættinum.

🔗 Lesa fréttina og nálgast umræðuskjalið á samkeppni.is hér:
https://www.samkeppni.is/utgafa/frettir/fakeppni-leidir-til-thess-ad-samkeppni-slaevist/

European Competition Network (ECN) birti í vikunni sameiginlega yfirlýsingu um heimildir samkeppnisyfirvalda í Evrópu ti...
26/06/2026

European Competition Network (ECN) birti í vikunni sameiginlega yfirlýsingu um heimildir samkeppnisyfirvalda í Evrópu til að kalla inn til skoðunar samruna sem falla utan hefðbundinna tilkynningarmarka.

„Það er mikilvægt að samkeppnisyfirvöld hafi viðeigandi úrræði til að bregðast við þegar ástæða er til. Á Íslandi hefur slík heimild verið fyrir hendi um árabil og hefur reynst mikilvægt tæki til að tryggja virka samkeppni og vernda hagsmuni neytenda,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar)...
23/06/2026

Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar) er fyrirsjáanlegt að tafir verði á afgreiðslu og yfirferð nýrra samrunatilkynninga hjá Samkeppniseftirlitinu í sumar.

Samkeppniseftirlitið telur rétt að gera fyrirtækjum og ráðgjöfum þeirra grein fyrir þessu svo hægt sé að taka tillit til framangreinds og gera viðeigandi ráðstafanir.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇 See less

Landsréttur hefur snúið við frávísunarúrskurði héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins ...
15/06/2026

Landsréttur hefur snúið við frávísunarúrskurði héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins gegn Samskipum til efnismeðferðar.

Málið varðar stjórnvaldssekt vegna ólögmæts samráðs Samskipa og Eimskips. Landsréttur taldi ekki efni til að vísa málinu frá og verður það því tekið til efnislegrar meðferðar fyrir héraðsdómi.

Sjá tengil á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Íslendingar greiða um 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og aðeins í Sviss er matvara dýrari. Þá ha...
10/06/2026

Íslendingar greiða um 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og aðeins í Sviss er matvara dýrari. Þá hafa verðhækkanir á matvöru verið meiri á Íslandi en í nágrannalöndum frá árinu 2020.

Þetta eru meðal niðurstaðna í nýju riti Samkeppniseftirlitsins um dagvöruverð á Íslandi og samanburð við önnur Evrópulönd. Í ritinu er fjallað um þróun verðlags, samanburð við nágrannalönd og möguleg áhrif samkeppni á verð til neytenda.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Lyfja hf. og eigandi XY-lyfja ehf. sem á og rekur Borgar Apótek hafa tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að fallið hafi verið...
05/06/2026

Lyfja hf. og eigandi XY-lyfja ehf. sem á og rekur Borgar Apótek hafa tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að fallið hafi verið frá fyrirhuguðum viðskiptum um kaup Lyfju á Borgar Apóteki.

Samrunatilkynningin hefur því verið afturkölluð og lýkur þar með meðferð málsins hjá eftirlitinu.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að niðurstöður úttektar norska samkeppniseftirlitsins á bankamarkaði geti haft mi...
28/05/2026

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að niðurstöður úttektar norska samkeppniseftirlitsins á bankamarkaði geti haft mikilvægt gildi við mat á samkeppnisaðstæðum hér á landi og mun eftirlitið fylgjast grannt með framvindu rannsóknarinnar í Noregi.

Páll Gunnar Pálsson bendir einnig á að þrátt fyrir að rekstrarkostnaður íslenskra banka hafi lækkað verulega á síðustu árum hafi vaxtamunur bankanna ekki minnkað samhliða.

Hann segir jafnframt að Samkeppniseftirlitið hafi heimildir til sambærilegra markaðsrannsókna hér á landi, en skortur á fjárheimildum hafi takmarkað nýtingu þeirra.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Address

Borgartún 26
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Friday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00

Telephone

+3545850700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samkeppniseftirlitið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Samkeppniseftirlitið:

Shortcuts

Share