Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard

Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard www.lhg.is Helstu verkefni Landhelgisgæslunnar eru:

Löggæsla og eftirlit á hafinu umhverfis Ísland.
Ábyrgð og yfirstjórn á leit og björgun á sjó.

Aðstoð við björgun og sjúkraflutninga á landi. Sjómælingar og sjókortagerð
Sprengjueyðing
Rekstur fjarskipta- og ratsjárstöðva. Umsjón með öryggissvæðum og eignum NATO á Íslandi. Hjá Landhelgisgæslu Íslands starfa um 200 manns.

Norge og Island styrker kystvaktsamarbeidet i nord🇳🇴🇮🇸I over tusen år har havet mellom Norge og Island knyttet mennesker...
19/08/2026

Norge og Island styrker kystvaktsamarbeidet i nord🇳🇴🇮🇸

I over tusen år har havet mellom Norge og Island knyttet mennesker og samfunn sammen. I dag øker aktiviteten i Arktis og Nord-Atlanteren, og med det øker også behovet for samarbeid om sikkerhet, beredskap og forvaltning av havområdene.

For besetningen på KV Hopen har besøket på Island derfor handlet om å møte menneskene vi samarbeider med, lære av hverandre og øve sammen. I Reykjavik besøkte besetningen den islandske hovedredningsentralen, før representanter fra den den islandske kystvakten og ambassaden møttes om bord for å diskutere felles utfordringer. Derfra fortsatte samarbeidet i praksis. KV Hopen trente på heiseoperasjoner med den islandske kystvaktens helikopter, før besetningene gjennomførte en felles havariøvelse med kystvaktskipet Freyja. Her øvde de på å behandle skadde og stanse vanninntrenging om bord på det islandske fartøyet, dette er situasjoner der det er avgjørende å kjenne hverandres kapasiteter og arbeidsmåter.

Den samme erfaringsutvekslingen fortsatte på land, der Kystvakten fikk møte flere av de islandske aktørene som arbeider med beredskap, kontroll og forvaltning. I Akureyri møtte Kystvakten det islandske fiskeridirektoratet for å dele erfaringer om fiskerikontroll og bærekraftig forvaltning av ressursene i havet. I Húsavík gikk samarbeidet over i praktisk trening, der røykdykkerne fra KV Hopen øvde på søk sammen med det lokale brannvesenet. Med bind for øynene måtte de ta seg gjennom et ukjent bygg og finne skadde. Videre i Seyðisfjörður ga møter med tolletaten og politiet innblikk i hvordan Island kontrollerer mennesker og varer som kommer sjøveien, en viktig oppgave i et lite kystsamfunn som hvert år tar imot store mengder reisende med cruiseferger.

Samarbeid mellom nasjoner bygges mellom mennesker. Når vi kjenner hverandre, kapasitetene våre og måten vi arbeider på bedre, er vi bedre rustet til å løse oppdrag.

Besøket er det siste stoppet i KV Hopens historiske tokt over atlanterhavet som en del av Operation Arctic Cohesion 2026 og samarbeidet i Arctic Coast Guard Forum, der de arktiske kystvaktene møtes for å øve sammen, dele erfaringer og styrke samarbeidet om sikkerhet, beredskap og miljø til sjøs. I et Arktis med økende aktivitet blir dette samarbeidet stadig viktigere.

Áhöfn og sjóliðar frá kólumbíska skólaskipinu ARC Gloria, sem nú er í heimsókn í Reykjavíkurhöfn, heimsóttu varðskipið F...
19/08/2026

Áhöfn og sjóliðar frá kólumbíska skólaskipinu ARC Gloria, sem nú er í heimsókn í Reykjavíkurhöfn, heimsóttu varðskipið Freyju í vikunni.

Einar Valsson, skipherra, tók á móti hópnum og kynnti þeim starfsemi varðskipsins og verkefni Landhelgisgæslunnar.

ARC Gloria er þriggja mastra skólaskip og flaggskip kólumbíska sjóhersins, sem gegnir mikilvægu hlutverki við þjálfun sjóliða og kynningu á Kólumbíu um allan heim. Skipið hefur vakið athygli gesta og gangandi í Reykjavík undanfarna daga.

Brunamálaskólinn hefur, í samstarfi við Landhelgisgæslu Íslands, Brunavarnir Árnessýslu, Slökkvilið Grindavíkur, Landsbj...
14/08/2026

Brunamálaskólinn hefur, í samstarfi við Landhelgisgæslu Íslands, Brunavarnir Árnessýslu, Slökkvilið Grindavíkur, Landsbjörgu, Lögregluna og Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þróað nýtt kennsluefni um samskipti og samhæfingu við þyrlur Landhelgisgæslunnar á vettvangi.

Verkefnið var unnið sumarið 2025 þar sem settar voru upp raunverulegar aðstæður með aðkomu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar. Annars vegar í tengslum við almenna móttöku þyrlu á slysavettvang og hins vegar við notkun þyrla við slökkvistarf vegna gróðurelda, enda aðstæður sem allir viðbragðsaðilar á Íslandi þurfa að vera undirbúnir fyrir.

Afurð verkefnisins endurspeglar mikilvægi góðrar samvinnu og samhæfingar milli viðbragðsaðila og þann ávinning sem fæst með sameiginlegri þjálfun, miðlun reynslu og faglegri aðkomu allra sem koma að slysavettvangi eða öðrum björgunarstörfum.

HMS og Brunamálaskólinn þakka öllum sem komu að verkefninu fyrir faglegt framlag og vonar að það verði fyrirmynd að áframhaldandi samstarfi og samæfingum innan viðbragðskerfisins.

🎥Meðfylgjandi myndbönd verða gerð aðgengileg sem hluti af kennsluefni fyrir viðbragðsaðila um land allt.

Kennslumyndbandið er hluti af samstarfsverkefni Brunmálaskólans, Landhelgisgæslu Íslands, Brunavarna Árnessýslu, Slökkviliðs Grindavíkur, Landsbjargar, Lögreglu og Heilbrigðisstofnun Suðurlands að því markmiði að auka þjálfun, samhæfingu og öryggi viðbragðsaðila í verkefnum...

Flugsveit belgíska flughersins er væntanleg til landsins í lok vikunnar, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalags...
06/08/2026

Flugsveit belgíska flughersins er væntanleg til landsins í lok vikunnar, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-16 orrustuþotum og um 110 liðsmönnum, en um er að ræða aðra loftrýmisgæslu Belgíu á Íslandi.

Flugsveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlangshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands.

Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðuneytisins, í samstarfi við Isavia.

Með fyrirvara um veður er gert ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 7. – 18. ágúst.

Fyrir þetta verkefni verður sett upp þotugildra á Akureyrarflugvelli.

Ráðgert er að loftrýmisgæslu belgíska flughersins ljúki um miðjan september.

Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í kvöld og ...
30/07/2026

Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í kvöld og tóku yfir stjórn skipsins. Áhöfnin á Hval 9 óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar fyrr í kvöld þar sem áhöfnin taldi öryggi sínu ógnað auk þess sem skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. Skipstjóri Bandero var handtekinn og skipið fært til hafnar í Reykjavík.

Á sjötta tímanum í dag fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu um að Bandero hefði siglt inn fyrir 12 sjómílna landhelgi Íslands og stefndi í átt að hvalveiðiskipinu Hval 9. Áhöfnin á Hval 9 tilkynnti Landhelgisgæslunni að skipinu hefði verið ógnað.

Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skipuðu áhöfn Bandero að yfirgefa íslenska landhelgi en engin svör bárust frá skipinu. Þá hélt þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var á eftirlitsflugi, þegar í stað á vettvang og bað áhöfn Bandero að yfirgefa svæðið en við því var ekki orðið. Jafnframt var áhöfnin á varðskipinu Freyju kölluð út. Þegar varðskipið kom á staðinn skömmu síðar var skipstjóra Bandero fyrirskipað að stöðva vélar skipsins, en skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þá kölluð út til að flytja sérsveit ríkislögreglustjóra um borð í varðskipið Freyju og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar hélt á vettvang á aðgerðabátum.

Á tólfta tímanum í kvöld fóru sérsveitarmenn frá ríkislögreglustjóra og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar um borð í Bandero, handtóku skipstjóra þess og tóku yfir stjórn skipsins. Bandero verður fært til hafnar í Reykjavík en gert er ráð fyrir að skipið komi til Sundahafnar síðar í kvöld.

Aðgerðin var unnin í náinni samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra auk þess sem dómsmálaráðuneytið var upplýst á öllum stigum hennar.

Á þessum árstíma eru að jafnaði margir á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Í kerfum stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar í Skóga...
22/07/2026

Á þessum árstíma eru að jafnaði margir á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Í kerfum stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð voru rúmlega 870 skip í ferilvöktun í gær.

Nokkur viðbúnaður var hjá Landhelgisgæslunni í gærmorgun þegar tveir bátar duttu úr ferilvöktun og hættu að senda staðsetningu sína til stjórnstöðvarinnar.

Bátarnir voru kallaðir upp á rás 16 en engin svör bárust. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Bolungarvík var því kallað út, sem og áhöfn varðskipsins Freyju.

Jafnframt voru bátar í grenndinni beðnir um að svipast um eftir bátunum tveimur en einungis einn svaraði. Sá lagði á sig töluverða siglingu til að hafa uppi bátunum en þegar komið var að þeim kom í ljós að engin hætta væri á ferðum.

Af gefnu tilefni minnir Landhelgisgæslan áhafnir skipa og báta á að sinna ávallt hlustvörslu á neyðarrás 16 á VHF. Það er mikilvægur þáttur í öryggi sjófarenda og getur jafnframt komið í veg fyrir að hefja þurfi umfangsmiklar leitaraðgerðir að óþörfu.

Í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar höfum við verið að fara í gegnum myndasafnið okkar og þar leynast fjölma...
20/07/2026

Í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar höfum við verið að fara í gegnum myndasafnið okkar og þar leynast fjölmargar skemmtilegar myndir.

Um borð í varðskip Landhelgisgæslunnar hafa góðir gestir komið í gegnum tíðina og meðfylgjandi myndir eru frá slíkum heimsóknum á áttunda áratug síðustu aldar.

Fylgjendur þessarar síðu kannast vafalítið við einhverja sem þarna eru.

🇨🇦🇮🇸 Áhöfnin á kanadíska varðskipinu Louis S. St-Laurent kom til Reykjavíkur í vikunni og færði Landhelgisgæslunni virði...
17/07/2026

🇨🇦🇮🇸 Áhöfnin á kanadíska varðskipinu Louis S. St-Laurent kom til Reykjavíkur í vikunni og færði Landhelgisgæslunni virðingarvott í tilefni af 100 ára afmæli stofnunarinnar.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, tók við gjöfinni fyrir hönd Landhelgisgæslunnar.

⚓️ Samstarf Landhelgisgæslunnar og kanadísku strandgæslunnar er öflugt og afar mikilvægt.

✍️ Í fyrra var undirritaður samstarfssamningur milli stofnanna sem fól í sér að efla samstarf á Norður-Atlantshafi, m.a. með því að stuðla að aukinni upplýsingamiðlun og sameiginlegri þjálfun.

🙏🏼 Takk fyrir okkur!

Engan sakaði þegar fiskibátur varð aflvana skammt utan hafnarinnar á Stykkishólmi í dag og rak í átt að landi. Þyrlusvei...
17/07/2026

Engan sakaði þegar fiskibátur varð aflvana skammt utan hafnarinnar á Stykkishólmi í dag og rak í átt að landi. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um atvikið skömmu eftir hádegi.

S*x voru um borð í bátnum og í fyrstu var talið að akkeri, sem áhöfnin lét falla, næði ekki að stöðva rek hans. Bátar í grenndinni voru jafnframt beðnir um að halda á vettvang til aðstoðar. Björgunarskip frá Rifi og Stykkishólmi voru ræst út og þyrla Landhelgisgæslunnar flaug einnig til Stykkishólms þar sem hún var til taks.

Aðstæður á vettvangi voru góðar og akkeri fiskibátsins hélt honum þar til björgunarskipið Björg tók hann í tog til hafnar í Stykkishólmi.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt þremur útköllum það sem af er degi. Meðan þyrlan var til taks í Stykkishólmi var hún kölluð út vegna fjórhjólaslyss norðan Hólmavíkur. Þyrlan tók á loft frá Stykkishólmi á þriðja tímanum og var komin skömmu síðar á vettvang. Tveir voru fluttir með þyrlunni á Landspítalann í Fossvogi sem lenti þar laust fyrir klukkan fjögur.

Fyrr í dag annaðist þyrlusveitin einnig sjúkraflug vegna slyss sem varð um borð í rútu á Landmannaleið. Einn slasaður var fluttur með þyrlunni til Reykjavíkur.

Ljósmyndir úr safni: Lloyd Horgan og Landsbjörg.

07/07/2026

🚁 Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist fimm útköll í gær vegna veikinda og slysa. Sjaldgæft er að útköll sveitarinnar séu svo mörg á einum degi.

Síðasta útkall dagsins var farið í gærkvöldi en það var samvinnuverkefni danska sjóhersins og Landhelgisgæslunnar. Koma þurfti sjómanni á norsku fiskiskipi, sem statt var austur af Grænlandi, undir læknishendur í Reykjavík.

Þyrla danska varðskipsins Thetis sótti manninn og flutti hann um borð í danska varðskipið sem statt var um 130 sjómílur vestur af Íslandi. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti manninn þangað og flaug með hann til Reykjavíkur en áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF var einnig kölluð út til að fylgja þyrlunni að danska skipinu.

Meðfylgjandi myndband sýnir þegar þyrlan kom að Thetis seint í gærkvöldi.

🇮🇸🇩🇰

Address

Skógarhlíð 14
Reykjavík
105

Telephone

+3545452000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard:

Shortcuts

Share