Félagsstofnun stúdenta

Félagsstofnun stúdenta Félagsstofnun stúdenta er þjónustufyrirtæki fyrir stúdenta við Háskóla Íslands. Aðalmarkm

Félagsstofnun stúdenta er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir stúdenta við Háskóla Íslands. Aðalmarkmiðið er að bjóða góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði stúdenta. Gildi FS eru: Góð þjónusta - Virk samvinna - Jákvæð upplifun - Markviss árangur

14/08/2026

Vilt þú vinna með okkur? 🎓

Veitingasala Félagsstofnunar stúdenta (FS) sér um veitingarekstur á háskólasvæðinu undir merkinu Háma og Kaffistofur stúdenta.

FS leitar að aðstoðarmanneskju í veitingasölu Hámu á Sögu til að sinna almennum verkefnum í eldhúsi Sögu, þjónusta viðskiptavini Hámu og sinna frágangi og uppvaski.

Helstu verkefni
- Afgreiðsla við kassa og almenn þjónusta við viðskiptavini.
- Uppvask og dagleg þrif og viðhald á hreinlæti í eldhúsi, veitingasölu, tækjum og búnaði.
- Móttaka, frágangur og áfylling á hráefnum og öðrum vörum eftir þörfum.
- Aðstoða við undirbúning á matvælum eftir þörfum og samkvæmt fyrirmælum kokks/yfirkokks og verklagsreglum Hámu.
- Fylgja verklagsreglum um matvælaöryggi og hollustuhætti og vinna samkvæmt innra eftirlitskerfi Hámu (HACCP).
- Önnur tilfallandi störf sem falla undir almenn störf í veitingasölu.
Taka þátt í fræðslu og þjálfun sem tengist starfinu.

Starfið hentar stúdentum við Háskóla Íslands einkar vel.

Um 40% starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun september.

Vinnutími: 11:30–14:30 alla virka daga.

Um tímabundið starf er að ræða og lýkur ráðningu í desember 2026. Möguleiki er á framlengingu frá janúar til maí 2027.

Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð þjónustulund og jákvætt viðmót.
- Góð skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt og eftir fyrirmælum.
- Stundvísi og reglusemi.
- Snyrtimennska og rík hreinlætisvitund.
- Þekking á háskólasamfélaginu er kostur
- Góð tök á íslensku og ensku eru skilyrði.
- Hreint sakavottorð er skilyrði

Umsóknir skulu berast á [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst.

Vissir þú að Félagsstofnun stúdenta rekur Leikskóla stúdenta? Sólgarður er ungbarnaleikskóli fyrir börn nemenda við Hásk...
12/08/2026

Vissir þú að Félagsstofnun stúdenta rekur Leikskóla stúdenta?

Sólgarður er ungbarnaleikskóli fyrir börn nemenda við Háskóla Íslands. Nemendur við aðra háskóla á Íslandi geta þó einnig sótt um og átt möguleika á plássi ef þau eru í boði eftir úthlutun til nemenda HÍ.

Sótt er um á leikskoli.vala.is

⚒️ Vegna viðhalds á eldhúsi verður enginn heitur matur í boði dagana 28.-31. júlí. Súpa og vörur úr kæli verða áfram í b...
28/07/2026

⚒️ Vegna viðhalds á eldhúsi verður enginn heitur matur í boði dagana 28.-31. júlí. Súpa og vörur úr kæli verða áfram í boði 🥪

Við erum að leita að öflugum og þjónustuliprum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa Stúdentagarða. Hvetjum öll áhugasöm...
25/06/2026

Við erum að leita að öflugum og þjónustuliprum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa Stúdentagarða. Hvetjum öll áhugasöm um að sækja um 🏡

Stúdentagarðar Félagsstofnunar stúdenta leita að öflugum og þjónustuliprum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa. Þjónustufulltrúi stúdentagarða sinnir almennri þjónustu og upplýsingagjöf til þeirra sem leita til Stúdentagarða FS og vinnur náið með þjónustu- og samskipta...

Stúdentagarðar FS óska eftir að ráða smið til starfa. Meira um starfið hér fyrir neðan - við hvetjum öll áhugasöm til að...
24/06/2026

Stúdentagarðar FS óska eftir að ráða smið til starfa. Meira um starfið hér fyrir neðan - við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um 🔨

Stúdentagarðar óska eftir að ráða smið til starfa. Smiður sinnir almennu viðhaldi á Stúdentagörðum og öðrum einingum Félagsstofnunar stúdenta, svo sem leikskólum og veitingasölu eftir þörfum. Smiður annast jafnframt nýsmíði og sér um innkaup á efni eftir þörfum. Smiður ...

Haustúthlutun Stúdentagarða er hafin 🏡Nú höfum við hafið haustúthlutun íbúða og herbergja á Stúdentagörðum, en í ár fáum...
02/06/2026

Haustúthlutun Stúdentagarða er hafin 🏡

Nú höfum við hafið haustúthlutun íbúða og herbergja á Stúdentagörðum, en í ár fáum við inn 270 íbúðir og herbergi vegna loka leigusamninga í júní-september. Þó gæti enn eitthvað bæst við á næstu vikum vegna uppsagna.

Úthlutað er eftir úthlutunarreglum og við vonumst til að úthlutun verði lokið um og eftir miðjan júnímánuð. Við biðjum umsækjendur því að bíða með að athuga með stöðu sína þar til í lok júní þar sem erfitt er að segja til um líkur á úthlutun fyrr en um það leyti.

Þó haustúthlutun sé stærsta úthlutun á Stúdentagörðum er þó úthlutað allan ársins hring svo þau sem ekki komast að nú í sumar, eiga enn möguleika á að komast að þegar líður á haustið.

Við hlökkum mikið til að taka á móti nýjum nemendum og íbúum á næstu vikum og mánuðum 🎓

//

We have officially started our fall allocation process at Student Housing 🏡

This year, we're allocating 270 rooms and apartments due to lease agreements ending between June and September. However, additional apartments and rooms might become available in the next few weeks due to tenant terminations.

We allocate according to our allocation rules and hope to finish allocations around mid-June. We'd like to ask applicants to wait until the end of June to check their status, as predicting their chances of receiving an allocation earlier is difficult.

The fall allocation is the biggest allocation at Student Housing. However, we allocate apartments and rooms all year, so those who do not receive an allocation this summer might still get one in the fall.

We are looking forward to welcoming new students and residents in the coming weeks and months 🎓

🌼 MAÍ 🌼
30/04/2026

🌼 MAÍ 🌼

Gangi ykkur vel í lokaprófum kæru stúdentar 🤝
09/04/2026

Gangi ykkur vel í lokaprófum kæru stúdentar 🤝

Höfum gaman í apríl ✨💃
07/04/2026

Höfum gaman í apríl ✨💃

Gerðu lokaprófin aðeins léttari og keyptu lokaprófspakkanna hjá Bóksala stúdenta!🖊📖
07/04/2026

Gerðu lokaprófin aðeins léttari og keyptu lokaprófspakkanna hjá Bóksala stúdenta!🖊📖

Address

Háskólatorgi
Reykjavík
102

Opening Hours

Monday 10:00 - 14:00
Tuesday 10:00 - 14:00
Wednesday 10:00 - 14:00
Thursday 10:00 - 14:00
Friday 10:00 - 14:00

Telephone

+3545700700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félagsstofnun stúdenta posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Félagsstofnun stúdenta:

Shortcuts

Share