05/03/2026
Frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur var samþykkt á Alþingi í morgun. Meginbreytingin er sú að stöðvaskylda er endurvakin og að leigubifreiðastjórar eiga að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gilt starfsleyfi.
Leigubifreiðastöðvum verður einnig gert skylt að skrá rafrænt allar ferðir, þ.m.t. upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar og akstursleið og greiðslur farþega. Loks eiga stöðvar að bjóða upp á einfalt og gagnsætt ferli fyrir kvartanir og ábendingar farþega.
„Það er fagnaðarefni að Alþingi hafi samþykkt nauðsynlegar breytingar á lögum um leigubifreiðaþjónustu. Stöðvaskylda hefur verið endurvakin og rafrænt eftirlit innleitt, sem tryggir aukið aðhald og öryggi í greininni. Ný reglugerð hefur nú lokið samráðsferli og verður ný námskrá kynnt fljótlega. Þetta er fyrsta skrefið í að leggja grunn að leigubifreiðamarkaði sem byggir á fagmennsku, öryggi og gagnsæi," segir Eyjólfur af þessu tilefni.
Hlekkur á frétt um málið er í fyrsta kommenti.